Félagið


Veftré og leit

Félagið Íslenskir radíóamatörar (Í.R.A.)

Um Í.R.A.

Í.R.A. var stofnað 14. ágúst 1946. Félagið er landsfélag radíóamatöra á Íslandi og er í formlegu samstarfi við Póst- og fjarskiptastofnun um málefni radíóamatöra hér á landi. Í.R.A. á aðild að alþjóðasamtökum landsfélaga radíóamatöra I.A.R.U. (Region 1) og að samtökum norrænna landsfélaga radíóamatöra N.R.A.U.

Félagsfundir

Almennir félagsfundir eru haldnir einu sinni í viku á fimmtudagskvöldum kl. 20.00 og eru allir sem hafa áhuga á amatörradíói boðnir velkomnir. Félagið er til húsa við Skeljanes í Reykjavík. Staðsetning hússins er 64° 07' 33" N - 21° 56' 58" V. Locator HP94AD. Húsið er 14 km frá suðurenda og 2,5 km frá vesturenda grid-svæðisins. Leið 12 hjá Strætó hefur endastöð við húsið.

Stjórn félagsins

Samskipti við félagið fara alla jafna gegnum ritara. Sjá stjórnarmenn og tölvupóstföng þeirra í töflunni hér fyrir neðan (frekari upplýsingar í félagatali).

Formaður Jónas Bjarnason TF2JB email
Varaformaður Erling Guðnason TF3EE email
Ritari Sæmundur Þorsteinsson TF3UA email
Gjaldkeri Gísli G. Ófeigsson TF3G email
Meðstjórnandi Sveinn Bragi Sveinsson TF3SNN email
Varamaður Jón Ingvar Óskarsson TF1JI email
Varamaður Kjartan H. Bjarnason TF3BJ email

Öll bréf til ÍRA og QSL kort til TF QSL Bureau skal senda á póstfang Í.R.A.:

Íslenskir radíóamatörar
Pósthólf 1058
121 Reykjavík

Gerast félagsmaður í Í.R.A.

Hafir þú áhuga á því að ganga í félagið þá skal senda gjaldkera (sjá tölvupóstfang hér að ofan) tölvupóst með neðangreindum upplýsingum.

Aðildarumsókn að Í.R.A.
Nafn
Kennitala:
Heimili:
Póstnúmer:
Sveitarfélag:
Sími:
Netfang:
Kallmerki (ef við á):
Annað:

Undirsíður



Stjórn Í.R.A.



Félagsheimili Í.R.A., götukort



Félagsheimili Í.R.A. við Skeljanes



Staðsetning félagsheimilisins á Google Maps

Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.