Recent News

  2010/08/29
Verðskrá í QSL Bureau hækkar frá 1. september n.k.
Last changed: 29 ágú. 2010 22:46 by TF3SG - Guðmundur Sveinsson

Frá 1. september að  telja er nauðsynlegt að hækka verð á þjónustu ÍRA QSL Bureau.  Verð fyrir hvert kort verður 7 krónur.  Þessi hækkun er meðal annars tilkomin vegna hækkunar á gjaldskrá Íslandspósts sem varð 1. mars 2010.  

 

73

Guðmundur, TF3SG

Posted at 29 ágú. @ 11:17 PM by TF3SG - Guðmundur Sveinsson | 0 Comments
Flokkun korta sem berast ÍRA Bureau,
Last changed: 29 ágú. 2010 18:28 by TF3SG - Guðmundur Sveinsson

Það eru vinsamleg tilmæli QSL managers TF3SG til þeirra sem skila inn QSL kortum til þýskra amatöra,  þ.e. DA, DB, DC o.s.frv. og einnig DL1, DL2, o.s.frv., skuli raðað.  Þessi forvinna auðveldar og flýtir fyrir flokkun korta sem fara eiga til þýskalands. Hið þýska Bureau tekur ekki við óflokkuðum kortum.  73, Guðmundur TF3SG

Posted at 29 ágú. @ 6:54 PM by TF3SG - Guðmundur Sveinsson | 0 Comments
  2010/08/28
Fréttir af framkvæmdum í félagsaðstöðunni...
Last changed: 28 ágú. 2010 12:30 by TF2JB

(Nr. 1 af 4)

Minolta 4320 ljósritunarvél félagsins komin á sinn stað á 1. hæð í félagsaðstöðunni. Ljósmynd: TF2JB.

Nýlega var ljósritunarvél félagsins tekin í notkun á ný eftir að hafa verið í geymslu í nokkur ár. Hún er af gerðinni Minolta 4320 og er fjölnota, þ.e. getur bæði ljósritað á hefðbundna stærð pappírs (A4) og A3, auk þess að geta stækkað/minnkað texta frumrits. Það, að vélin getur ljósritað í A3 pappírsstærð gefur t.d. möguleika á að ljósrita á eitt blað opnu úr tímariti eins og QST. Þess má geta, að í félagsaðstöðu Í.R.A. liggja hverju sinni frammi nýjustu tímarit landsfélaga radíóamatöra á Norðurlöndunum, Evrópu (t.d. frá Þýskalandi, Frakklandi og Ítalíu) og frá Asíu og Norður Ameríku. Það var Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, sem færði félaginu þessa frábæru vél á sínum tíma. Loks má geta þess, að Heimir Konráðsson, TF1EIN, sá um rafmagnsvinnu, þ.e. lagði rafmagn að vélinni og setti upp sérstakan stýrirofa og eru honum færðar bestu þakkir.

(Nr. 2 af 4)

Ljósritunarvélin flutt á milli hæða. Frá vinstri: TF3SNN, TF3SG, TF3AO og TF3PPN. Ljósmynd: TF3LMN.

Það var nokkuð átak að flytja vélina úr geymslunni í kjallara félagsaðstöðunnar upp í samkomusalinn á 1. hæð þar sem vélin er bæði stór og þung (sem nokkuð má merkja má af svipnum á burðarmönnunum á ljósmyndinni hér að ofan).

(Nr. 3 af 4).

Guðmundur Sveinsson, TF3SG, QSL Manager Í.R.A. í nýrri vinnuaðstöðu kortastofunnar. Ljósmynd: TF3LMN.

Við sama tækifæri og ljósritunarvél félagsins var flutt upp á 1. hæð í félagsaðstöðunni fékk Guðmundur Sveinsson, TF3SG, QSL Manager bætta vinnuaðstöðu. Á myndinni má sjá Guðmund raða kortum til útsendingar erlendis.

(Nr. 4 af 4)

Annar nýju stólanna við fjarskiptaborð-A. Ljósmynd: TF2JB.

Nýlega voru fest kaup á tveimur nýjum stólum í fjarskiptaherbergi félagsins samkvæmt sérstakri heimild stjórnarfundar nr. 2 starfsárið 2010/2011. Þeir eru af gerðinni Markus (vörunúmer 40103100) og voru keyptir í IKEA. Þeir koma í stað rúmlega 40 ára gamalla skrifstofustóla sem félaginu voru gefnir notaðir á sínum tíma.

Vörulýsing IKEA fyrir Markus stólana er eftirfarandi: Hentugur fyrir skrifstofuna, þæginlegur að sitja í á löngum vinnudögum. Stilltu hæðina til að sitja þægilega. Festanlegar stillingar til að auka stöðugleikann og til þess að stýra setstöðunni. Með bakstuðningi; léttir á og styður við bakið. Með hálspúða; auka stuðningur við höfuð og háls. Möskvarnir á bakinu hleypa lofti í gegn um sig og að bakinu á þér þegar þú situr lengi. Stóllinn er að hluta til úr gervileðri og bakáklæði er úr pólýester, en áklæði á slitflötum er úr gegnumlituðu nautaleðri. Umsagnir þeirra sem prófað hafa eru afar jákvæðar. Hvor stóll um sig kostaði 32.950 krónur.

Posted at 28 ágú. @ 12:31 PM by TF2JB | 0 Comments
  2010/08/27
Viðtal við TF3CY í útvarpi
Last changed: 27 ágú. 2010 13:42 by TF3SG - Guðmundur Sveinsson

Viðtal var við TF3CY í gær í síðdegisútvarpi rás tvö út af EME samböndum. Það var Ragnheiður Thorlasíus sem tók viðtalið við Benedikt og fyrir þá sem áhuga hafa má nálgast það á vef RUV rás 2.

73
Guðmundur, TF3SG

Posted at 27 ágú. @ 2:12 PM by TF3SG - Guðmundur Sveinsson | 2 Comments
  2010/08/23
Vitahelgin 2010 tókst vel
Last changed: 24 ágú. 2010 09:35 by Admin TF3SNN


myndir eru á myndasíðu félagsins, hér
takk fyrir mig Gulli og Smári og allir aðrir sem tóku þátt í að gera þessa helgi eftirminnilega.
73 de TF3JA

Posted at 23 ágú. @ 11:46 AM by TF3JA | 0 Comments
  2010/08/20
Vita- og vitaskipahelgin hefst á morgun, 21. ágúst...
Last changed: 20 ágú. 2010 14:59 by TF2JB


Garðskagaviti er yst á Garðskaga.

Vitahelgin hefst á morgun, laugardag, við Garðskagavita og er allt að verða tilbúið. Vel lítur út með veður. Stórt gasgrill verður á staðnum og geta allir fengið að nota það sem þess óska. Miðað er við að fólk hafi sjálft með sér matföng ásamt meðlæti og drykkjarföngum. Nefndin býr yfir magni af einnota diskum og hnífapörum fyrir þá sem það vilja. Gasgrillið verður tilbúið til afnota kl. 18:00. Nefndin mun reisa stóra samkomutjald félagsins á staðnum.

Kraftmikil kjötsúpa verður ókeypis í boði nefndarinnar frá kl. 12:00 á hádegi á laugardag og fram eftir degi, svo lengi sem hún endist.

Á vegnum nefndarinnar verða starfræktar tvær stöðvar undir kallmerkinu TF8IRA; önnur á CW og hin á SSB. Þær verða staðsettar í gamla vitavarðarhúsinu (örskammt frá vitanum). Þær eru opnar fyrir alla leyfishafa.

Líkt og áður hefur komið fram, er byggðasafn á staðnum og handverkssala (sem er á efri hæð í gamla vitavarðarhúsinu). Þar er í boði úrval af vörum frá handverksfólki á Suðurnesjum (alls um 70 manns). Þá er starfræktur veitingastaður og bar á staðnum (á efri hæð fyrir ofan byggðasafnið). Þaðan er frábært útsýni og er hægt að sitja úti þegar veður er gott. Á staðnum er góð aðstaða fyrir fjölskyldur, m.a. frítt tjaldsvæði og góð aðstaða fyrir hjól- og tjaldhýsi og W.C. aðstaða. Undirbúningsnefndin hvetur félagsmenn til að fjölmenna.

Garðskagaviti er 28,5 metra hár (hæsti viti landsins); reistur árið 1944. Fjarlægð frá Reykjavík er um 57 km.

Það er Ayr Amateur Radio Group í Skotlandi sem stendur fyrir Vita- og vitaskipahelgunum. Sjá hlekk: http://illw.net/

F.h. undirbúningsnefndar (TF3SNN, TF3JA og TF8SM), Sveinn Bragi Sveinsson, TF3SNN, formaður.

(Birt að beiðni TF3SNN).

Posted at 20 ágú. @ 1:59 PM by TF2JB | 0 Comments
  2010/08/19
Allt bendir til að TF1RPB komi mjög vel út...
Last changed: 27 ágú. 2010 22:13 by TF2JB


Hustler G6-144B loftnetið komið upp. Ljósmynd: TF3WS.

Félagsmenn hafa verið duglegir að prófa endurvarpsstöðina TF1RPB í Bláfjöllum eftir að nýtt loftnet var tengt við hana í fyrradag (17. ágúst). Þór Þórisson, TF3GW, hafði samband í kvöld og sagði að Páll (TF1RPB) hefði aldrei verið svona sterkur austur í sumarhús hans, Rjúpnahæð, sem er staðsett á Langholtsfjalli í Árnessýslu.

Hann sagðist líka hafa prófað útbreiðsluna úr bíl sínum alla leiðina austur í dag (frá heimili sínu í Reykjavík) og er mjög ánægður með árangurinn. Að vísu þurfi nauðsynlega að stilla endurvarpann þannig að hann leyfi mönnum að senda út í allt að 5 mínútur, en eins og stöðin er stillt nú, segir Þór, "...leyfir endurvarpinn vart nema 1,5 mínútna sendingartíma - þá rofni sendingin vegna naumt skammtaðrar "time-out" stillingar.

Félagsmenn eru beðnir um að sýna þolinmæði þar til hægt verður að fara upp á fjallið og endurforrita stöðina samkvæmt þessari ábendingu. Loks má geta þess, að Heimir Konráðsson, TF1EIN, sem er búsettur í Hveragerði hefur nú gott samband við TF1RPB úr bílnum, hvar sem er í bænum.


Zodiac RT-4000 endurvarpsstöðin vel fest við vegginn. Ljósm.: TF3WS.

"Cavity" síurnar og PS-1330 aflgjafinn við TF1RPB. Ljósmynd: TF3WS.

Bestu þakkir til Sigurðar Harðarsonar, TF3WS, fyrir ljósmyndirnar.

Posted at 19 ágú. @ 9:33 PM by TF2JB | 1 Comment
  2010/08/17
Endurvarpinn TF1RPB í Bláfjöllum QRV á ný...
Last changed: 27 ágú. 2010 22:14 by TF2JB


TF1RPB er búinn endurvarpa af gerðini RT-4000 frá Zodiac.

TF1RPB er QRV á ný frá Bláfjöllum. Sigurður Harðarson, TF3WS, lagði á fjallið í dag, setti upp nýtt loftnet og stillti. Stöðin var fullbúin og QRV um kl. 20 í kvöld og virðist koma ágætlega út. Vinnutíðnir: 145.150 MHz RX / 145.750 MHz TX.

Nýja loftnetið er systurloftnet þess sem er tengt við TF3RPC, þ.e. af gerðinni Hustler G6-144B frá New-tronics. Um er að ræða 3 metra háa stöng með 4 kvartbylgju radíölum. Ávinnungur er 6 dB yfir tvípól. Sjá má nánari tæknilegar upplýsingar á heimasíðunni: http://www.dxengineering.com/Products.asp?ID=73&SecID=14&DeptID=8

Gaman væri að sem flestir prófuðu endurvarpann á nýja loftnetinu til að kanna útbreiðslu hans.

Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði fyrir frábæra aðstoð.

Posted at 17 ágú. @ 9:15 PM by TF2JB | 0 Comments
  2010/08/12
Fyrsta EME sambandið frá TF til ZL á 50 MHz...
Last changed: 05 sep. 2010 14:16 by TF2JB


Benedikt, TF3CY, við EME tilraunir frá Hliðsnesi á Álftanesi í gær, 11. ágúst. Ljósmynd: Jón Ingvar, TF1JI.

Benedikt Sveinsson, TF3CY, hafði fyrsta EME sambandið sem haft hefur verið frá Íslandi við ZL á 50 MHz í gærkvöldi (11. ágúst). Sambandið var við Rod, ZL3NW, sem býr í Kaipoi á Nýja sjálandi. Hann hafði einnig EME QSO á 6 metrunum við þá John, W1JJ á Rhode Island og Robert, K6QXY í Kaliforníu.

Samböndin voru höfð frá jörðinni Hliðsnesi á Álftanesi. Hann notaði Kenwood TS-570D sendi-/móttökustöð, heimasmíðaðan 600W RF-magnara (en Benedikt fékk nýverið sérstaka heimild PFS til að nota QRO afl á 50 MHz til EME-tilrauna). Tegund útgeislunar var JT65A. Hann notaði heimasmíðað 10 stika Yagi loftnet á 15,5 metra langri bómu, sem hann hafði sérstaklega smíðað fyrir EME-tilraunina sem gerð var 12. júlí s.l. Faðir Benedkts, Sveinn Guðmundsson, TF3T, aðstoðaði við tilraunina nú (sem áður) og Guðmundur Sveinsson, TF3SG, (bróðir hans) lagði til færanlega undirstöðu fyrir loftnetið.

Sjá nánar áhugaverðar ljósmyndir og frásögn á heimasíðu Benedikts: http://www.tf3cy.is/

Stjórn Í.R.A. óskar Benedikt innilega til hamingju með þessa frábæru útkomu.

Posted at 12 ágú. @ 8:39 AM by TF2JB | 0 Comments
  2010/08/11
PFS hefur úthlutað nýjum kallmerkjum...
Last changed: 11 ágú. 2010 11:17 by TF2JB

Póst- og fjarskiptastofnun hefur úthlutað eftirfarandi nýjum kallmerkjum:

Kallmerki Nafn leyfishafa/upplýsingar Staðsetning stöðvar Aðrar upplýsingar
TF2RR Sameiginleg stöð radíóklúbbsins Radíó refir (1) Borgarbyggð Áb.m.: Ársæll Óskarsson, TF3AO
TF3CAN Ágúst Magni Þórólfsson Kópavogur  
TF3RR Sameiginleg stöð radíóklúbbsins Radíó refir Kópavogur Áb.m.: Ársæll Óskarsson, TF3AO
TF3SQN Sigurður Sveinn Jónsson Reykjavík Kallmerki áður: TF3SVN

(1) Radíóklúbburinn Radíó refir (stofnfélagar): Georg Magnússon, TF2LL; Ársæll Óskarsson, TF3AO; Haraldur Þórðarson, TF3HP; Guðmundur Ingi Hjálmtýsson, TF3IG; og Jón Gunnar Harðarson, TF3PPN.

Í.R.A. óskar ofangreindum aðilum til hamingju með ný kallmerki.

Posted at 11 ágú. @ 11:26 AM by TF2JB | 0 Comments
  2010/08/06
Loggar úr TF-útileikum...
Last changed: 06 ágú. 2010 15:37 by TF3KX - Kristinn Andersen

Nú er minnt á að skila má inn loggum, eða afritum þeirra, fyrir QSO í útileikum, fyrir lok mánaðarins. Engar kröfur eru um að menn reikni stig sín sjálfir, frekar en þeir vilja, því það verður hvort eð er gert af þeim sem fara yfir loggana. Framsetning logga er tiltölulega frjáls og því er unnt að skila inn ljósriti af pappírsloggum, Excel, textaskrá eða öðru formi sem auðvelt er að prenta sem á pappír. Þeir sem hafa logginn í gagnagrunni eru þó beðnir um að senda ekki ADIF-skrár, heldur velja þá frekar Cabrillo-útgáfu sem sýnir samböndin listuð upp í röð. Munið að láta upplýsingar um stöðina ykkar fylgja (tæki, loftnet, QTH, afl, o.s.frv.) og myndir úr útileikunum eru alltaf vel þegnar fyrir CQ TF og vefsíðu ÍRA.

Allir sem senda inn logg (sama hve fá samböndin voru) fá viðurkenningu fyrir þátttöku og að auki fá stigahæstu menn sérstakar viðurkenningar. Menn eru hvattir til að skila inn loggum hið fyrsta og ekki síðar en 31. ágúst:

Kristinn Andersen, TF3KX
Austurgötu 42
220 Hafnarfjörður

E-mail: tf3kx@simnet.is
Sími: 825-8130

Posted at 06 ágú. @ 3:48 PM by TF3KX - Kristinn Andersen | 0 Comments
Niðurstöður úr CQ WW DX SSB keppninni 2009
Last changed: 06 ágú. 2010 13:29 by TF2JB


Andrés Þórarinsson, TF3AM, var með bestan árangur í keppninni.

Í ágústhefti CQ tímaritsins eru birtar niðurstöður úr CQ WW DX SSB keppninni sem fram fór dagana 30.-31. október 2009. Ágæt þátttaka var frá TF, en alls sendu átta stöðvar inn keppnisdagbækur.

Andrés Þórarinsson, TF3AM, var með bestan árangur, bæði í sínum keppnisflokki (á öllum böndum) og í heild, eða 311,131 stig. Að baki þeim árangri voru 1,175 QSO, 40 svæði (e. zones) og 201 DXCC einingar (e. entities). Aðrir þátttakendur voru með ágætan árangur í sínum keppnisflokkum, einkum Jón Ágúst Erlingsson, TF3ZA, sem keppti á 14 MHz og var með 182,406 stig. Að baki þeim árangri voru 813 QSO, 29 svæði og 72 DXCC einingar, sbr. meðfylgjandi töflu.

Keppnisflokkur Kallmerki Árangur QSO CQ svæði DXCC einingar Skýringar
Öll bönd TF3AM* 311,131 1,175 40 201 Hámarks útgangsafl
Öll bönd TF3CW 27,840 334 14 66 Hámarks útgangsafl
Öll bönd (A) TF3DC 11,259 98 19 62 Hámarks útgangsafl, aðstoð
Öll bönd (L) TF8GX* 85,084 316 43 135 Mest 100W útgangsafl
14 MHz TF3ZA* 182,406 813 29 72 Hámarks útgangsafl
14 MHz (L) TF3G 3,471 66 7 32 Mest 100W útgangsafl
21 MHz TF3AO* 15,235 248 14 41 Hámarks útgangsafl, aðstoð
1.8 MHz TF3SG* 4,800 97 8 40 Hámarks útgangsafl

*Bestur árangur í viðkomandi keppnisflokki (innan TF) og handhafi viðurkenningarskjals.

Hamingjuóskir til þátttakenda með árangurinn.

Til skýringar: Í keppnisflokknum "Öll bönd" er lokaniðurstaðan summa þess árangurs sem náðst hefur á öllum böndum. Það er ástæða þess að TF8GX er t.d. skráður með alls 43 CQ svæði. Það sama á við um aðrar upplýsingar, þ.e. fjölda QSO'a og fjölda DXCC eininga. M.a. af þessari ástæðu er ekki raunhæft að bera saman niðurstöður á milli einstakra keppnisflokka.

Posted at 06 ágú. @ 10:40 AM by TF2JB | 0 Comments
Framkvæmdanefnd Vita- og vitaskipahelgarinnar fundar
Last changed: 06 ágú. 2010 00:08 by TF2JB


Frá vinstri: Jón Þóroddur, TF3JA, Sigurður Smári, TF8SM og Sveinn Bragi, TF3SNN. Ljósmynd: TF2JB.

Framkvæmdanefnd Vita- og vitaskipahelgarinnar fundaði í félagsaðstöðunni í Skeljanesi í kvöld fimmtudaginn 5. ágúst. Meginhlutverk nefndarinnar er að annast undirbúning viðburðarins við Garðskagavita helgina 21.-22. ágúst n.k.

Nefndin kynnti s.l. þriðjudag (2. ágúst) að hún væri tekin til starfa, með innkomu á póstlista Í.R.A. Þar kemur m.a. fram, að TF8IRA verði starfrækt frá vitanum. Einnig, að þeir sem hyggja á þátttöku í vitahelginni eru beðnir að skrá sig. Um er að ræða einfalda skráningu, annars vegar að slá inn kallmerki í sérstakan glugga og síðan hvort menn ætla að koma með eign stöð og loftnent.

Þeir sem vilja, geta líka sett inn ábendingar og tillögur. Félagsmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst á ira@ira.is

Posted at 06 ágú. @ 12:11 AM by TF2JB | 0 Comments
  2010/07/31
Garðskagaviti verður heimsóttur 21.-22. ágúst n.k.
Last changed: 02 ágú. 2010 20:33 by TF2JB


Ársæll Óskarsson, TF3AO, flutti erindi um "Vita- og vitaskipahelgar". Ljósmynd: TF3LMN.

Félagsfundurinn um Vita- og vitaskipahelgina var haldinn fimmtudagskvöldið (29. júlí). Mæting var ágæt og komu alls 22 félagsmenn. Jónas Bjarnason, TF2JB, setti fundinn kl. 20:30 og kynnti framlagða dagskrá. Ársæll Óskarsson, TF3AO, flutti erindi um viðburðinn „Vita- og vitaskipahelgi“. Erindið var fróðlegt, skemmtilegt og vel flutt. Sveinn Bragi Sveinsson, TF3SNN, var næstur og flutti erindi um „praktískar“ leiðir til að viðburður af þessu tagi megi takast sem best. Erindið var hnitmiðað og fróðlegt. Erling Guðnason, TF3EE, stýrði síðan umræðum um val á staðsetningu viðburðarins í ár. Umræðan varð strax mjög fylgjandi Garðskagavita, enda erfitt í raun að tala á móti honum, þ.e. hæsti viti á Íslandi, færri kílómetrar að aka frá Reykjavík (en austur), auk frábærrar aðstöðu sem þar er í boði. Í umræðum kom m.a. fram, að menn voru sammála að leggja til að notað verði kallmerkið TF8IRA. Einnig kom fram, að menn hefðu tilfinningar til Knarraróssvita (eftir að hafa farið þangað, jafnvel svo árum skiptir). Í lok umræðna var samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum að Garðskagaviti verði heimsóttur helgina 21.-22. ágúst n.k.

Þriggja manna framkvæmdanefnd var kjörin á fundinum til að annast undirbúning Vita- og vitaskipahelgarinnar. Hana skipa: Sveinn Bragi Sveinsson, TF3SNN, formaður; Sigurður Smári Hreinsson, TF8SM; og Jón Þ. Jónsson, TF3JA.


Frá vinstri: XYL DL9DAN, DJ2VO, DO4YSN, TF2JB, DL9DAN, DF6QV og TF8GX. Ljósmynd: TF3LMN.

Hópur þýskra radíóamatöra sem verið hefur hér á landi undanfarnar tvær vikur og verið í loftinu frá Vestmannaeyjum kom í heimsókn í félagsaðstöðuna á fimmtudagskvöldið. Þau voru afar ánægð með ferðina og nefndu sérstaklega hversu þakklát þau væru fyrir aðstoð og hjálpsemi íslenskra radíóamatöra. Þá voru þau einnig yfir sig heilluð af einstakri náttúru Íslands.

Posted at 31 júl. @ 2:28 AM by TF2JB | 0 Comments
  2010/07/27
Útileikarnir næstu helgi
Last changed: 28 júl. 2010 11:09 by TF4M


Varla þarf að minna á útileikana sem fara fram um helgina. Ef menn verða á ferðalögum er sjálfsagt að kippa með sér tækjunum og leggja nokkur QSO í púkkið. Og þeir sem verða heima við geta auðvitað tekið þátt líka, annað hvort tengdir eða "unplugged".

Aðaltímarnir hefjast kl. 17 á laugardag, kl. 09 og 21 á sunnudag og kl. 08 á mánudag, en annars má hafa sambönd hvenær sem er um helgina. Til upprifjunar væru dæmigerð skilaboð í sambandi á 3637 kHz: 59(RS)-003(nr)-Hengill(QTH)-Dípóll(ant)-100W(útafl)-ER(ekki rafveita). Annars má finna reglurnar í CQ TF og á vef Í.R.A.

Logg með a.m.k. einu sambandi þarf að senda inn fyrir lok ágúst til að fá viðurkenningu fyrir þátttöku, en hér á myndinni er einmitt hluti þátttakendanna í útileikunum í fyrra, með viðurkenningarskjölin. Heyrumst í loftinu!

73 - Kiddi, TF3KX

Posted at 27 júl. @ 10:31 PM by TF3KX - Kristinn Andersen | 0 Comments