Niðurstöður úr CQ WPX DX SSB keppninni 2011
Þann 5. janúar var skýrt frá glæsilegri niðurstöðu Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW í CQ WPX DX SSB keppninni 2011 samkvæmt upplýsingum sem þá voru kunngerðar af keppnisnefnd CQ tímaritsins. Nú hafa borist heildarniðurstöður úr keppninni og eru þær birtar hér á eftir.
Keppnin fór fram helgina 26.-27. mars 2011. Að þessu sinni sendu fjórar TF-stöðvar inn keppnisdagbækur í jafn mörgum keppnisflokkum, þ.e. einmenningsflokki, 14 MHz, háafli; einmenningsflokki, 14 MHz, lágafli; einmenningsflokki, 21 MHz, háafli, aðstoð og einmenningsflokki, 3,7 MHz, háafl. Líkt og áður hefur komið fram, náði Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, afreksárangri í keppninni og varð í 2. sæti yfir heiminn og 1. sæti í Evrópu í sínum keppnisflokki.
Niðurstöður í keppninni fyrir TF-stöðvar:
Keppnisflokkur |
Kallmerki |
Árangur, punktar |
QSO |
Forskeyti |
---|---|---|---|---|
Einmenningsflokkur, 14 MHz, hámarksafl | TF3CW* |
Unknown macro: {center}7,473,715
|
Unknown macro: {center}3105
|
Unknown macro: {center}1145
|
Einmenningsflokkur, 14 MHz, lágafl | TF3JA |
Unknown macro: {center}77
|
Unknown macro: {center}7
|
Unknown macro: {center}7
|
Einmenningsflokkur, 21 MHz, hámarksafl, aðstoð | TF3AO |
Unknown macro: {center}150,398
|
Unknown macro: {center}422
|
Unknown macro: {center}278
|
Einmenningsflokkur, 3,7 MHz, hámarksafl | TF3SG |
Unknown macro: {center}18,486
|
Unknown macro: {center}81
|
Unknown macro: {center}79
|
Stjórn Í.R.A. óskar Sigurði innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!