Vilhjálmur TF3DX fór á kostum í Skeljanesi
Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, flutti erindið Hvernig reiknar IARU forritið sviðsstyrk og öryggismörk amatörsendinga? þann 15. mars í félagsaðstöðunni við Skeljanes.
Erindið var mjög áhugavert, vel flutt og veitti framúrskarandi góða innsýn í umfjöllunarefnið út frá fræðilegum forsendum og beitingu í reynd. Um 30 félagsmenn og gestir sóttu erindið og stóðu umræður fram undir kl. 23.
Stjórn Í.R.A. þakkar Vilhjálmi Þór Kjartanssyni, TF3DX, fyrir vel heppnað og áhugavert erindi og Jóni Svavarssyni, TF3LMN, fyrir myndatökuna.
ICNIPRcalc forrit IARU Svæðis 1 nefnist ICNIRPcalc V1.01. Auðvelt er að setja ýmsar breytur inn í forritið, m.a. tíðni, tegund loftnets, mismunandi afl og láta forritið reikna örugga fjarlægð frá loftneti í sendingu. Forritið veitir leyfishöfum dýrmæta vísbendingu hvað varðar útgeislunarhættu.
ICNIRPcalc V1.01 má sækja á eftirfarandi vefslóð: http://www.iaru-r1.org/index.php?option=com_content&view=article&id=860:new-version-of-icnirpcalc-now-for-download-&catid=43:emc&Itemid=95
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!