Frestur framlengdur til 14. september n.k.
Á stjórnarfundi í Í.R.A. þann 5. þ.m. var samþykkt að framlengja áður auglýstan frest til félagsmanna sem áhuga hafa á að taka sæti í starfshópi er geri tillögur um neyðarfjarskiptastefnu félagsins. Áhugasamir eru beðnir um að setja sig í samband við stjórn eða að senda tölvupóst á ira (hjá) ira.is fyrir 14. september n.k.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn verði formlega skipaður á stjórnarfundi þann 14. september. Miðað er við að hópurinn skili síðan tillögum sínum til stjórnar fyrir 13. maí 2013, með það fyrir augum að málið verði formlega til kynningar á aðalfundi félagsins 2013.
Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA, neyðarfjarskiptastjóri Í.R.A., verður formaður starfshópsins og mun svara fyrirspurnum um verkefnið.
Ofangreindu til staðfestingar,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!