Árangur TF3CW er á heimsmælikvarða
Í ágústhefti CQ tímaritsins 2012 eru birtar niðurstöður úr SSB-hluta CQ World-Wide DX keppninnar sem fram fór dagana 29.-30. október 2011. Þátttaka var mjög góð frá TF en alls sendu 11 TF-stöðvar inn keppnisdagbækur og dreifðust keppendur á átta mismunandi keppnisflokka. Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, náði afburðaárangi í sínum keppnisflokki, en hann keppti í einmenningsflokki á 14 MHz, hámarksafli. Heildarárangur varð 1.378.428 stig. Að baki þessum stigafjölda voru 3.871 QSO, 38 CQ svæði og 136 DXCC einingar. Sigurður varð í 1. sæti yfir Evrópu og handhafi Evrópubikarsins. Þessi niðurstaða tryggði honum jafnframt 3. sæti yfir heiminn; bronsverðlaunin.Árangurinn er framúr-
skarandi góður og til þess fallinn að efla áhuga íslenskra leyfishafa á þátttöku í alþjóðlegum keppnum.
Árangur Yngva Harðarsonar, TF3Y, sem tók þátt í keppninni frá TF4X er einnig framúrskarandi góður. Yngvi keppti í einmenningsflokki á 28 MHz, hámarksafli. Heildarárangur hans varð alls 538.785 stig.Að baki þessum stigafjölda
voru 3.098 QSO, 25 CQ svæði og 92 DXCC einingar. Árangur Andrésar Þórarinsssonar, TF3AM, var einnig góður. Andrés keppti í einmenningsflokki á öllum böndum, hámarksafli. Heildarárangur hans varð alls 445.250 stig. Að baki
þeim stigafjölda voru 1.233 QSO, 61 CQ svæði og 213 DXCC einingar.
Stjórn Í.R.A. óskar Sigurði R. Jakobssyni, TF3CW, innilega til hamingju með frábæran árangur í keppninni, svo og öðrum íslenskum leyfishöfum sem tóku þátt að þessu sinni. Í meðfylgjandi töflu má sjá útkomuna eftir keppnisflokkum.
Keppnisflokkur |
Kallmerki |
Árangur, stig |
QSO |
CQ svæði |
DXCC einingar |
---|---|---|---|---|---|
Öll bönd, einmenningsflokkur, hámarksafl |
TF3AM* |
445.250 |
1.233 |
61 |
213 |
Öll bönd, einmenningsflokkur, hámarksafl, aðstoð |
TF3SG* |
89.964 |
460 |
36 |
117 |
Öll bönd, einmenningsflokkur, hámarksafl, aðstoð |
TF3IG |
2.709 |
48 |
14 |
29 |
Öll bönd, einmenningsflokkur, lágafl, aðstoð |
TF3DC* |
30.502 |
144 |
33 |
118 |
Öll bönd, einmenningsflokkur, lágafl, aðstoð |
TF3PPN |
26.001 |
177 |
29 |
78 |
28 MHz, einmenningsflokkur, hámarksafl |
TF4X* |
537.785 |
3.058 |
25 |
92 |
28 MHz, einmenningsflokkur, lágafl |
TF8GX* |
254.790 |
1.487 |
24 |
71 |
14 MHz, einmenningsflokkur, hámarksafl |
TF3CW* |
1.378.428 |
3.861 |
38 |
136 |
21 MHz, einmenningsflokkur, hámarksafl, aðstoð |
TF3AO* |
146.718 |
1.071 |
18 |
81 |
21 MHz, einmenningsflokkur, hámarksafl, aðstoð |
TF3CY |
113.886 |
629 |
28 |
83 |
3.7 MHz, einmenningsflokkur, hámarksafl |
TF3ZA* |
135.136 |
960 |
18 |
85 |
*Bestur árangur í viðkomandi keppnisflokki (innan TF) og handhafi viðurkenningarskjals frá CQ tímaritinu.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!