Truflanir í segulsviðinu
Töluverðar truflanir hafa verið í segulsviðinu s.l. sólarhring. Linuritin neðar á síðunni sýna það sem hefur verið að gerast frá kl. 09 í gær (2. september) til sama tíma í dag, 3. september. Í morgun stóð K-gildið í rúmlega 6, en vísun yfir 5 er flokkuð sem segulstormur. Skilyrðaspár eru þess efnis að truflanir muni halda áfram og ójafnvægis muni gæta eitthvað fram í vikuna.
Efsta línuritið (Z) sýnir styrkleika segulsviðs jarðar í stefnu lóðrétt niður, næsta línurit (H) sýnir láréttan styrkleika sviðsins og neðsta línuritið (D) sýnir áttavitastefnuna. Z og H eru sýnd í einingunum nanotesla (nT), en D er sýnt í gráðum sem reiknast sólarsinnis frá norðri um austur upp í 360°. Ef D er t.d. 346° merkir það að misvísun áttavitans í Leirvogi er 346° til austurs eða 14° til vesturs (360-346 = 14). Meðalmisvísun á Reykjavíkursvæðinu er um 2° meiri til vesturs og væri þá um 16° V í þessu dæmi.
Gögn eru endurnýjuð á tíu mínútna fresti. Sjá nánar vefslóð: http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.html
Sjá einnig upplýsingar á þessari vefslóð: http://www.solen.info/solar/
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!