TF1RPB í Bláfjöllum QRV á ný
TF1RPB, endurvarpsstöð félagsins í Bláfjöllum, varð QRV á ný í morgun, þann 9. september, kl. 10:18. Þeir Sigurður Harðarson, TF3WS og Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARIlögðu á fjallið í býtið og höfðu meðferðis Kenwood endurvarpa félagsins, sem sóttur var suður á Garðskaga í gærdag og undirbúinn fyrir ferðina í gærkvöldi.
Notuð er sama tíðni og var í Bláfjöllum, þ.e. 145.750 MHz. Kenwood endurvarpinn er hins vegar búinn CTCSS tónlæsingu og var ákveðið að nota hana (líkt og gert var á Garðskaga). Um er að ræða hefðbundna tónlæsingu, CTCSS, og er hún stillt á 88,5 rið (sem er “default” tónstilling í flestum stöðvum).
Hægt er að hlusta á sendingar frá TF1RPB án þess að vera með stöð eða viðtæki sem búið er tónlæsingu. Hennar er einvörðungu þörf, vilji menn senda í gegn um endurvarpann. Þess skal getið að lokum, að TF1RPB er á ný búinn auðkenni á morsi sem sent er út reglulega.
Stjórn Í.R.A. færir þeim Sigurði Harðarsyni, TF3WS og Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI sérstakar þakkir fyrir að hafa brugðist skjótt við kalli og lokið verkefninu á farsælan hátt á mettíma.
(Þakkir til TF3ARI fyrir meðfylgjandi ljósmyndir).
Comment frá TF3JA
Gott mál og ef vel er að gáð má sjá móta fyrir seguloftnetinu á þaki hússins sem APRSið er tengt við.
Og núna klukkan að verða hálf þrjú eftir hádegi á mánudegi í miðju rokinu er ekki að sjá annað en að bráðabirgða segulloftnetið haldi enn…vindhviðurnar eru núna mældar á Hellisheiðinni um 20 m/s en fóru í nótt í 30 m/s…
73 de TF3JA
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!