Vetrardagskráin kynnt á fimmtudag
Hér með er boðað til kynningar á vetrardagskrá Í.R.A. fyrir tímabilið september-desember í félagsaðstöðunni við Skeljanes fimmtudaginn 27. september kl. 20:30. Að auki verður opin málaskrá í boði.
Dagskrá verður sem hér segir:
1. Kynning á vetrardagskrá félagsins í október-desember n.k. (Andrés Þórarinsson, TF3AM).
2. Opin málaskrá. (Kjartan H. Bjarnason, TF3BJ).
3. Umræður.
Félagar, mætum stundvíslega! Kaffiveitingar verða í boði frá Björnsbakaríi.
F.h. stjórnar Í.R.A.,
Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!