Flóamarkaður Í.R.A. verður á sunnudag
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/tf2win.jpg)
TF2WIN gerði góð kaup í þessu stuttbylgjuviðtæki á flóamarkaði félagsins.
Flóamarkaður Í.R.A. 2012 verður haldinn í félagsaðstöðunni sunnudaginn 21. október, á milli kl. 13-15. Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS, mun stjórna sérstöku haustuppboði sem hefst kl. 14:00 stundvíslega.
Húsið verður opnað nokkru fyrr, eða kl. 12:00 fyrir þá félaga sem óska að selja/gefa stöðvar og/eða búnað, þannig að þeir hafi rúman tíma til að stilla dóti sínu upp.
Verulegt magn af dóti er í boði gefins fyrir félagsmenn Í.R.A. að þessu sinni og hefur því verið raðað upp við gönguleið í inngangssal á 1. hæð (sjá myndir). Þetta dót verður aukið að magni fyrir sunnudaginn.
Stjón Í.R.A. hvetur félagsmenn til að koma í Skeljanes á sunnudag og gera góð kaup.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/9-august-2012-005.jpg)
Þessi fallega lína frá Yaesu, FT-107M, er meðal tækja sem boðin verða upp á sunnudag.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/9-12-2012-ÍRA-004.jpg)
Nokkrar Yaesu FT-180A 100W stöðvar verða boðnar upp. Þær eru fyrir tíðnisviðið 1,6-18 MHz, SSB/AM.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/14.-október-2012-018.jpg)
Flóamarkaðurinn undirbúinn; dót fært úr geymslum félagsins. TF3TNT, TF3EE og TF3BJ.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/14.-október-2012-014.jpg)
Verulegur hluti dótsins var gefinn félaginu um s.l. páska og er nú gefins til félaganna. TF3SB skoðar.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/14.-október-2012-010.jpg)
Mikið af dótinu sem verður í boði gefins frá félaginu er vel nýtanlegt og heillegt.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!