Góður árangur í CQ WW SSB keppninni
A.m.k. fimm TF stöðvar voru skráðar á þyrpingu (e. cluster) í CQ World-Wide SSB DX-keppninni helgina 27.-28. október: TF3AM (öll bönd, háafl), TF3AO (21 MHz, háafl, aðstoð), TF3CW (14 MHz, háafl), TF3SG (öll bönd, háafl) og TF3W (öll bönd, háafl, fleirmenningsflokkur).
TF3CW hafði alls 4.336 QSO (á 33 klst.) nú samanborið við 3.871 QSO 2011 og TF3W hafði alls 5.819
QSO (á 48 klst.). Það mun svo koma í ljós á næstu dögum hvernig okkar stöðvum gekk í samkeppninni, en keppendur hafa 5 daga til að skila gögnum til keppnisnefndar CQ eða til 2. nóvember n.k.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!