TF Í.R.A. QSL Bureau hreinsar út
Áramótaútsending korta frá TF Í.R.A. QSL Bureau (kortastofu) hefur farið fram. Mathías Hagvaag, TF3-Ø35, QSL stjóri útsendra korta segir, að alls hafi farið sendingar á 130 kortastofur hjá landsfélögum radíóamatöra um allan heim í gær, mánudaginn 7. janúar. Að sögn Mathíasar, bíða þó tveir 2 kg. kassar til Þýskalands og Ítalíu sendingar (eftir nokkru viðbótarmagni korta). Þá hafi árið endanlega verið hreinsað upp.
Aðspurður sagði Mathías, að frá því hann tók við embættinu í júlí s.l., hafi alls verð póstlögð 28 kg af kortum til um 150 kortastofa um allan heim. Þegar þeir tveir kassar sem enn bíða sendingar fara í póst, verði þetta alls um 32 kg. korta.
Stjórn Í.R.A. þakkar Mathíasi Hagvaag, TF3-Ø35, fyrir vel unnin störf að QSL málum félagsmanna.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!