Ný kallmerki frá Póst- og fjarskiptastofnun
Póst- og fjarskiptastofnunin, PFS hefur nýlega úthlutað eftirtöldum nýjum kallmerkjum:
Kallmerki |
Leyfi |
Leyfishafi / not |
Staðsetning |
Skýringar / rétthafi |
---|---|---|---|---|
TF3APE | Sérheimild | APRS stafvarpi | 104 Reykjavík | Ari Þ. Jóhannesson TF3ARI |
TF3APF | Sérheimild | APRS stafvarpi | 110 Reykjavik | Eldra kallmerki TF3RPF; Í.R.A. |
TF3APG | Sérheimild | APRS stafvarpi | 101 Reykjavík | Eldra kallmerki TF3RPG; Í.R.A. |
TF3OZ | G-leyfisbréf | Óskar Þórðarson | 170 Seltjarnarnes | Stóðst G-próf þann 28.5.2011 |
TF3RPI | Sérheimild | FM endurvarpi | 109 Reykjavík | 145.075 MHz RX / 145.675 TX; TF3ARI |
TF3Z | G-leyfisbréf | Sameiginleg stöð | 221 Hafnarfjörður | Sigurður R. Jakobsson TF3CW o.fl. |
Stjórn Í.R.A. óskar hlutaðeigandi til hamingju með ný kallmerki.
___________
Kallmerki radíóamatöra
Kallmerkið er einkenni hverrar amatörstöðvar. Engar tvær stöðvar radíóamatöra í heiminum hafa sama kallmerki og er því sérhvert kallmerki einstakt. Öll íslensk kallmerki radíóamatöra byrja á TF sem er alþjóðlegt forskeyti fyrir Ísland samkvæmt úthlutun Alþjóða fjarskiptastofnunarinnar, ITU. Sem dæmi um forskeyti kallmerkja radíóamatöra í öðrum löndum, má nefna í OZ í Danmörku, LA í Noregi og LU í Argentínu.
Íslensk kallmerki eru yfirleitt á bilinu 4-6 stafir að lengd. Þau eru samsett af forskeyti og síðan 1-3 persónubundnum bókstöfum (ath. að stafurinn N bætist aftan við tveggja bókstafa viðskeyti þegar um N-leyfi er að ræða). Landið skiptist í 10 kallsvæði, frá 0-9. Algengasti tölustafur í forskeytum íslenskra kallmerkja er tölustafurinn 3 (höfuðborgarsvæðið) annarsvegar, og tölustafurinn 8 (Suðurnes) hinsvegar. Þannig hafa flest íslensk kallmerki radíóamatöra forskeytin TF3 og TF8.
Uppbygging kallmerkja. Dæmi: TF3IRA. Forskeytið í kallmerkinu TF stendur fyrir Ísland. Tölustafurinn 3 (sem er hluti forskeytisins) hefur landfræðilega tilvísan og merkir að stöðin hafi lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Viðskeytið IRA stendur fyrir Íslenskir radíóamatörar. Í sumum þjóðlöndum hefur tölustafur/tölustafir í forskeyti kallmerkis ekki landfræðilega skírskotun; þau lönd eru þó í minnihluta í heiminum.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!