Fallegt vorkvöld í Skeljanesi og góð mæting
Stjórn ÍRA hélt fund í Skeljanesi í kvöld og skipti með sér verkum. Að loknum stjórnarfundi þegar almennir félagsmenn voru mættir á staðinn var haldið út í port og undir sterkri stjórn TF3GB og með góðri aðstoð nokkurra kajakmanna var loftnetsefnið flutt á betri stað þar sem það verður ekki fyrir þegar starfsmenn frá borginni mæta eftir helgina til að bæta þakjárn og endurnýja rennur á aðal húsinu.
Góð mæting og menn almennt léttir í skapi og skeggræddu allt milli himins og jarðar.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!