10. Stjórnarfundur ÍRA 2014
Stjórnarfundur nr. 10, 19. 11. 2014. kl. 18.00
Mættir: TF8HP, TF3GW, TF3GB, TF3DC.
- Umræða um heimasíðuna og vandamál henni tengd.
- Fjaraðgangur og nýjustu fréttir í því máli. Farið yfir bréfaskriftir við PFS. Álit Prófnefndar um fjaraðgang, vægi þess og vægi tilmæla IARU ráðstefnunnar VA14_C4_REC_04 í málinu. Ákveðið að senda PFS álit Prófnefndar og fá álit þeirra á því. Taka fram til öryggis að álitið eigi við um starfrækslu íslenskra leyfishafa eingöngu.
- Fréttaskrif á heimasíðu. Stjórnin beri ábyrgð á því sem birtist á heimasíðunni. Það sem stjórnin telur rangt eða villandi, verði að leiðrétta eða fella út.
- Áhyggjuefni að félagsgjöld innheimtist slælega.
- Fundi slitið kl. 20.00.
TF3GB
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!