TF útileikarnir 2018; kynning
TF útileikarnir 2018 verða haldnir um verslunarmannahelgina, 4.-6. ágúst n.k.
Einar Kjartansson, TF3EK, umsjónarmaður leikanna, mætir í félagsaðstöðuna í Skeljanesi fimmtudaginn 26. júlí og kynnir reglurnar og segir frá loftnetum sem henta fyrir útileika.
Einn af kostum þess að vera /P er að þá eru betri aðstæður fyrir loftnet sem henta á lægri böndunum en flestir hafa heima. Loftnet þurfa ekki að vera flókin, 20 m langur vír með bíl sem mótvægi virkar ágætlega á 80m.
Erindi Einars hefst kl. 20:30.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Kaffiveitingar.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!