Rýmkun tíðniheimildar á 70 MHz í höfn
ÍRA hefur borist erindi frá Póst- og fjarskiptastofnun í dag 9. október 2018 þess efnis, að íslenskum leyfishöfum er veitt heimild til notkunar á tíðnisviðinu 70.000-70.250 MHz.
Fyrri heimild frá 19.2.2010 var fyrir 70.000-70.200 MHz. Þessi breyting kemur í kjölfar beiðni félagsins um rýmkun tíðniheimildar.
Þá er almenn heimild til okkar á 70 MHz framlengd til 31.12.2020.
Stjórn ÍRA fagnar þessum jákvæða áfanga sem er einkar mikilvægur fyrir þá radíóamatöra sem stunda tilraunir í sviðinu.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!