Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, mætti í Skeljanes laugardaginn 22. febrúar og kynnti búnað félagsins til fjarskipta um OSCAR 100 gervitunglið. Félagsmönnum gafst einnig tækifæri til að fara í loftið með tilsögn frá gervihnattastöð TF3IRA.
Í boði var svokallaður „opinn laugardagur“ og var félagsaðstaðan opin frá kl. 10-15 til að gefa sem flestum tækifæri til að nýta viðburðinn. Þetta fyrirkomulag heppnaðist vel og var góð mæting og dreifing yfir daginn.
Menn fóru í loftið, bæði á tali (SSB) og morsi. Menn voru almennt sammála um að þessi upplifun væri mjög sérstök; sterk merki, engar truflanir og góður DX. Sérprentaðar greinar Ara um OSCAR 100 úr CQ TF sem lágu einnig frammi til kynningar.
Alls mættu 24 félagsmenn og 3
gestir í Skeljanes þennan ágæta og sólríka laugardag.
Stjórn ÍRA þakkar Ara fyrir vel
heppnaðan viðburð.
Farið yfir undirstöðuatriði gervihnattafjarskipta áður en farið var í loftið. Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, Gunnar Bergþór Pálsson TF2BE og Gísli Gissur Ófeigsson TF3G. Guðmundur Gunnarsson TF3GG sagði þessa tegund fjarskipta áhugaverð og sérstaklega að hægt væri að vera á morsi í samböndum um OSCAR 100.Hans Konrad Kristjánsson TF3FG var afar ánægður og tók sín fyrstu QSO á SSB í gegnum OSCAR 100, m.a. við radíóamatöra í Brasilíu.Biðraðir mynduðust hjá Ara í fjarskiptaherberginu. Á mynd: Björgvin Víglundsson TF3BOI, Guðmundur Gunnarsson TF3GG, Gunnar Bergþór Pálsson TF2BE og Gísli Gissur Ófeigsson TF3G.Gervihnattafjarskiptin útskýrð í salnum á neðri hæð. Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson TF3IG, Óskar Sverrisson TF3DC og Gunnar Bergþór Pálsson TF2BE. Undir sófaborðinu má sjá mælitæki frá RigExpert af gerðinni AA-1400 sem var tengt við fartölvuna á borðinu. En í kaffihléi var hönk af RG-213 kóaxkapli tengd við tækið og m.a. greint sýndarviðnám á fæðilínunni (sem var mismunandi eftir lengd enda kapallinn samsettur). Þórarinn Benedikz TF3TZ og Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A ræddu m.a. búnað sem þarf til að verða QRV og möguleika sem bjóðast í samböndum um gervihnöttinn OSCAR 100.Björgvin Víglundsson TF3BOI, Kristján Benediktsson TF3KB og Wilhelm Sigurðsson TF3AWS skoðuðu m.a. stöðu OSCAR 100 í gráðumá himinhvolfinu, séð frá Íslandi.(Ljósmyndir: Jónas Bjarnason TF3JB).
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!