ALÞJÓÐLEGA VITA- OG VITASKIPAHELGIN
Nýlega var vakin athygli á að Alþjóðlega Vita- og vitaskipahelgin 2021 nálgast og fer fram helgina 21.-22. ágúst n.k. Margir félagar hafa haft samband og spurst fyrir um hvaða fleiri vitar hafi verið virkjaðir hér á landi af radíóamatörum, eftir að fram kom að Knarrarósviti hafi oftast verið virkjaður, eða 18 sinnum.
Á tímabilinu 1998-2020 voru alls 7 vitar virkjaðir og 11 mismunandi kallmerki notuð, sbr. eftirfarandi:
AKRANES – TF3DT (2016)
GARÐSKAGI – TF8IRA (2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015, 2016, 2017)
GARÐSKAGI – TF8RX (2001, 2003)
GARÐSKAGI – TF7ØIRA (2016)
KNARRARÓS – TF1IRA (1998, 1999, 2000, 2001, 2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008, 2009, 2013, 2014, 2015, 2016, 2017, 2018, 2019)
KNARRARÓS – TF6ØIRA (2006)
MALARRIF – TF3DT (2018)
MALARRIF – TF3JA (2018)
REYKJANES – TF8RX (2000)
SELVOGSVITI – TF1OL (2020)
VATNSNES – TF8RX (2004)
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!