FLÓAMARKAÐURINN Á MORGUN, SUNNUDAG.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2023/05/floa-2022-1-1030x579.jpg)
Flóamarkaður ÍRA að vori 2023 verður haldinn í Skeljanesi sunnudaginn 7. maí kl. 13-17.
Húsið opnar kl. 12:00 fyrir félaga sem óska að selja/gefa/kaupa stöðvar og/eða búnað, þannig að þeir hafi rúman tíma til að stilla dóti sínu upp. Uppboðið hefst síðan stundvíslega kl. 14:00. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS stjórnar uppboðinu.
Félagsmenn geta fylgst með uppboðinu yfir netið (á sama hátt og félagar í sal). Vefslóð: https://meet.google.com/wzr-rwwe-uud Notað verður forritið „Google Meet“. Jón Björnsson, TF3PW tæknistjóri mun opna á streymið skömmu fyrir kl. 14:00. Hringja má í 898-0559 (TF3JB) ef menn hafa spurningar.
Verið velkomin í Skeljanes – á staðinn og yfir netið!
Stjórn ÍRA.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2023/05/floa-2022-2-1030x581.jpg)
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!