,

OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 13. JÚLÍ

Mynd úr fundarsal ÍRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi.

Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 13. júlí fyrir félagsmenn og gesti og verður opið á milli kl. 20-22.

QSL stjóri verður búinn að tæma pósthóf félagsins og raða innkomnum kortum í hólf félagsmanna. Nýjustu tímarit landsfélaga radíóamatöra í nágrannalöndunum liggja frammi. Kaffiveitingar.

Töluvert liggur frammi af radíódóti, bæði niðri og í fundarsal.

Verið velkomin í Skeljanes!

Stjórn ÍRA.

Töluvert er í boði af radíódóti (á báðum hæðum). Fyrstur kemur, fyrstur fær.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

15 + 7 =