FÉLAGSFUNDUR Í SKELJANESI 9. NÓVEMBER
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2023/11/iiirrrraaa-log.png)
Fræðsludagskrá ÍRA heldur áfram.
Fimmtudaginn 9. nóvember verður haldinn félagsfundur kl. 20:30. Fundarstjóri: Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Fundinum verður streymt yfir netið (nánari upplýsingar þegar nær dregur).
Dagskrá:
- Félagsstöð ÍRA í Skeljanesi.
- Endurúthlutun kallmerkja eftir lát leyfishafa.
- Önnur mál.
Efni er í umsjá stjórnar.
Húsið verður opnað kl. 20:00 QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólfið og raða kortum. Kaffiveitingar í fundarhléi.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
.
.
![](http://www.ira.is/wp-content/uploads/2023/11/20231105_120235-1-1030x430.jpg)
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!