VÍSBENDING UM VIRKNI
Teknar voru saman upplýsingar um TF kallmerki sem fengu skráningu á þyrpingu (e. cluster) dagana 1.-10. nóvember. Alls fengu 16 TF kallmerki skráningar. Flestir voru QRV á stafrænum mótunum (FT8 og/eða FT4), en einnig á morsi (CW), fjarritun (RTTY) og tali (SSB). Bönd: 6, 10, 12, 15, 17, 20, 30, 40 og 80 metrar.
Kallmerki fær skráningu þegar leyfishafi [eða hlustari] hefur haft samband við [eða heyrt í] TF kallmerki. Svokallað „self spotting“ er ekki tekið með. Upplýsingarnar eru fengnar á http://new.dxsummit.fi/#/ Sambærilegar síður eru í boði á netinu til samanburðar.
Fyrst er skráð kallmerki, þá tegund(ir) útgeislunar og band/bönd sem kallmerki fær skráningu á.
Til skoðunar er að taka reglulega saman upplýsingar af þessu tagi.
Stjórn ÍRA.
TF1EIN FT8 á 10, 12 og 15 metrum.
TF1PA SSB á 10 metrum.
TF2MSN FT8 á 40 metrum.
TF3AK FT8 á 17 metrum.
TF3AO RTTY á 20 metrum.
TF3DC CW á 12 og 30 metrum.
TF3EK/P FT8 á 10 metrum.
TF3EO CW á 30 og 40 metrum.
TF3JB FT8 á 6 metrum.
TF8KW FT8 á 6, 10, 17 og 20 metrum.
TF3PPN FT8 á 10 metrum og RTTY á 15 metrum.
TF3VG FT8 á 80 metrum.
TF3WK CW ár 10, 12 og 17 metrum.
TF3SG CW á 12 og 30 metrum.
TF3XO SSB á 15 metrum.
TF5B FT8 á 12, 15, 20, 30 og 40 metrum.
–
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!