Námskeið til amatörprófs 25. september til 7. nóvember 2023.
Haldið í stað- og fjarnámi í Háskólanum í Reykjavík
Kennsla fer fram í stofu M117 kl. 18:30-21:30.
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis fer fram í HR laugardag 11. nóvember.
VIKA 1 – (Endurskoðuð útgáfa 3.11.2023/jb). | |||
1. | Mánudagur 25. september | DC-rásir, spenna, straumur og viðnám. Logmál Ohms. Afl, aflþol viðnáma. Rað-tenging og hliðtenging viðnáma. Raðtenging og hliðtenging spennugjafa (rafhlaða). | Kristinn (TF3KX) |
2. | Þriðjudagur 26. september | Rafsvið. Þéttir; hvað ræður rýmd. Raðtenging og hliðtenging þétta. Helstu gerðir þétta, hverfiþéttar. Segulsvið, span. Sjálfspan. Raðtenging og hliðtenging spólna. Riðspenna, tíðni og fasi. Toppgildi og virka gildi sínus. Spennar, vindingahlutfall og spenna, straumur. | Kristinn (TF3KX) |
3. | Miðvikudagur 27. september | Dæmareikningur úr DC-rásum. Dæmareikningur um þétta (ekki þverviðnám). Dæmareikningur um spólur (ekki þverviðnám). | Njáll (TF3NH) |
VIKA 2 | |||
4. | Mánudagur 2. október | Spenna og straumur í þétti (við sínussveiflu). Spenna og straumur í spólu (við sínus-sveiflu). 90° fasvik spennu og straums, á hvorn veg? Straumresónans við raðtengingu, lágt viðnám. Spennuresónans við hliðtengingu, hátt viðnám. Q og bandbreidd. | Kristinn (TF3KX) |
5. | Þriðjudagur 3. október | Hálfleiðarar. Díóður, leiðnistefna P/N skeyta. NPN og PNP nórar, þekkja stýr-skaut og hvernig snúa við veituspennu. Afriðun og mögnun. Flokkur A, B og C. | Ágúst (TF3AU) |
6. | Miðvikudagur 4. október | Notkun reiknigrafs. Kvartskristall, helsta notkun. Dæmareikningur um þver-viðnám og resónans. | Kristinn (TF3KX) |
VIKA 3 | |||
7. | Mánudagur 9. október | Sínus ein tíðni, bjögun og yfirsveiflur. Summu- og mismunartíðni við blöndun/ mótun LSB, USB, DSB-SC. SSB með síuaðferð. AM, umlykja, PEP. | Vilhjálmur (TF3DX) |
8. | Þriðjudagur 10. október | Bandbreidd mótaðs merkis. Umlykjubjögun, skvettur. Umlykjuskynjari og margfeldisskynjari. FM og PM. DSP. | Vilhjálmur (TF3DX) |
9. | Miðvikudagur 11. október | Sveifluvakar, VFO, VXO, hlífistig (buffer), tíðnimargföldun. Knýstig, aflmagnari. Útgangssía, LP eða BP. Lykling (mors). Prófsendirinn. | Haukur (TF3HK) |
VIKA 4 | |||
10. | Mánudagur 16. október | Dæmatími um prófsendi. | Haukur (TF3HK) |
11. | Þriðjudagur 17. október | Skynjun á móttökutíðni, TRF og „direct conversion“. Viðtæki með millitíðni. RF, LO, IF, BFO, AF, AGC. Prófviðtækið. | Haukur (TF3HK) |
12. | Miðvikudagur 18. október | Dæmatími um prófviðtækið. | Haukur (TF3HK) |
VIKA 5 | |||
13. | Mánudagur 23. október | Loftnet. Straum- og spennumynstur rakið frá opnum enda. Lengdir sem gefa resónans, háviðnáms og lágviðnáms. Lengdir sem gefa spankennt og rýmdarkennt tvinnviðnám. Val á fæðistað sem hentar sammiðjukapli, annars aðlögun.. Hálfbylgjutvípóll, kvartbylgjustöng, 3 staka Yagi. Skautun og stefnuvirkni. | Hrafnkell (TF3HR) |
14. | Þriðjudagur 24. október | Dæmatími um loftnet. Tíðni og bylgjulengd. LF, MF, HF, VHF og UHF. Helstu tíðnisvið amatöra. Jarðbylgja, kostur vaxandi bylgjulengdar. Stökkbylgja (sky wave), heppileg tíðni innanlands og fyrir DX. Dautt svæði (skip zone). Nöfn og röð jónhvolfslaga, D, E og F, hæð u.þ.b. Krítísk tíðni og MUF. | Hrafnkell (TF3HR) |
15. | Miðvikudagur 25. október | Fæðilínur. Bylgjuviðnám sem hlutfall spennu og straums í sömu bylgju. 50 Ω og 75 Ω kaplar og opin lína. Skermur jarðtengdur, jafnvæg lína og balun. Lauslegur samanburður á tapi, tap vex með SWR. Bylgja í báðar áttir veldur standbylgju. Standbylgja, spennu- og straummynstur (ekki bylgja), skilgreining SWR. SWR reiknað sem RL/ZO eða ZO/RL. Kvartbylgjuspennir. Aðlögun úti við loftnet eða inni við stöð, ATU. | Sæmundur (TF3UA) |
VIKA 6 | |||
16. | Mánudagur 30. október | Truflanir. Yfirsveiflur, sníkjusveiflur, RF-afturverkun frá loftneti. Yfirstýring tækis sem truflast LP-sía, HP-sía, rétt notkun við truflað tæki eða sendi. Samháttarstraumur og kæfing hans. Hindra RF straum út á húslagnir, einkum með LW (vír inn í hús). Rétt stilling mótunar og afls, mótunarskvettur og lykilsmellir. | Sæmundur (TF3UA) |
17. | Þriðjudagur 31. október | Reglur og viðskipti. | Óskar (TF3DC) |
18. | Miðvikudagur 1. nóvember | Öryggisatriði varðandi rafmagn. Snertihætta. Einangrun með spenni, varnarsmá-spenna. Hlífðarjörð, tenging hennar í kló. Tvöföld einangrun í stað hlífðarjarðar, merki. Vör. Uppsetning loftneta. Sviðsstyrkur nærri loftnetum. | Andrés (TF3AM) |
VIKA 7 | |||
19. | Mánudagur 6. nóvember | Dæmatími um fæðilínur og aðlögun. Dæmatími um truflanir. | Sæmundur (TF3UA) |
20. | Þriðjudagur 7. nóvember | Farið í eldri próf og upprifjun. | Sæmundur (TF3UA) |
21. | Laugardagur 11. nóvember | Próf Fjarskiptastofu í HR. Prófsýning síðar sama dag. | Kristinn (TF3KX) |
ANNAÐ | |||
A1. | Laugardagur (í nóvember) | Farið í félagsaðstöðu ÍRA og fjarskiptaherbergi og loftnet skoðuð. Nemendur gera prufuútsendingar undir kallmerki TF3IRA með stöðvarstjóra Útfært síðar með tíma. | Jónas (TF3JB) |
(Endurskoðuð útgáfa 3. nóvember 2023/JB).