Ýmsir góðir gestir hafa í dag heimsótt ÍRA í Fífunni í dag og hér er Stefán, TF3SA, sestur við lykilinn. Neðri myndin sýnir nokkra amatöra sem mættir voru með risavertikal á VHF/UHF á staðinn stilla sér upp að lokninni uppsetningu. Vertikallinn var sumarloftnetið á Bláfjallaendurvarpanum og sést í neðsta hluta loftnetsins milli þeirra Ara, TF3ARI og Guðjóns, TF3WO, lengst til vinstri er Svanur, TF3FIN og síðan Árni, TF3CE. Árni er í fjarskiptanefnd Ferðafélagsins 4×4.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2013-09-15 11:54:112017-07-24 11:55:44Heimsókn í Fífuna fyrr í dag
ÍRA er í einu horninu á Fífunni í Kópavogi með HF stöð í loftinu um helgina og þar við hliðina sýningu á gömlum fjarskiftabúnaði í samvinnu við fjarskiptahóp 4×4 og radíóskáta. TF3BR, Bragi Reynisson er þar í tjaldi félagsins með stöðina sína og ekki var að heyra annað en að skilyrðin væru góð í gær og mikill áhugi sýningargesta á að forvitnast um þessi einkennilegu hljóð sem bárust úr tjaldinu. Einhverjir radíóamatörar höfðu heimsótt hann um daginn og haft á orði að lykillinn væri fyrir örfhenta…því var snarlega reddað sem formaður ÍRA, TF3SG staðfesti og tók aðeins í lykilinn. Á fyrstu myndinni er Bragi sitjandi við stöðina og er allur að koma til eftir mikil veikindi. Hann hafði það á orði að gott væri að vera búinn að snúa lyklinum því hann væri að byrja að æfa aftur lykilhreyfingarnar og engu máli skipti hverju hann hafði vanist fyrir veikindin.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2013-09-15 11:35:162017-07-24 11:42:19ÍRA á ferðasýningu 4×4 í Fífunni um helgina
…og fréttir eru óljósar en svo virðist sem hann hafi hætt við að halda áfram og á þessari síðu er frásögn með ótrúlegum myndum af undirbúningi að og af sjálfu flugtakinu..
Radíóamatörinn JonathanTrappe, KJ4GQV, frá Raleigh í Norður-Karólína er að reynaað fljúga yfirAtlantshafið hangandi neðan í blöðruklasa. Hann fór í loftið í gær 12. september klukkan 1200UTCfráCaribou í ríkinu Maine. Trappe sendir frá sér með reglulegu millibili APRS-staðsetningarskeyti á14,0956MHz og144,390MHz. Síðustu fréttir herma að hann hafi óvænt lent á Nýfundnalandi og ætli að hafast þar við í nótt.
Merkjasendingin á 14,0956MHzerrétt fyrir ofanWSPRtíðnina, nálægt 1.880Hz á skjáfossinum. Sendingin er 110baudASCIIRTTY(8N1) á kallmerkinu NGØX. Merkjasendingarnar eru á10mínútna frestiá hverjum heilum tíma og síðan 10, 20, 30, 40og,50 mínútur yfir hvern heilan tíma. APRS sendinginá144,390MHzverður í gangi meðan blöðruklasinn er ennnálægtBandaríkjunumog Kanada og er meðkallmerkiTrappe, KJ4GQV.
Trappe fyllti blöðruklasann með helíum 11. september og beið eftir að stormur sem herjaði á norðurhluta Maine gengi yfir.
“Tveggja ára undirbúningsvinna liggur að baki þessu flugi” segir Trappe á vefsíðu sinn.
Meiri upplýsingar eru á heima- og Facebook-síðum Trappe.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2013-09-13 11:31:002017-07-24 11:33:13Radíóamatör gerir tilraun til að fljúga yfir Atlanshafið hangandi neðan í blöðruklasa
SAC keppni ársins 2013 sem hefst eftir hálfan mánuð er tilvalið tækifæri fyrir þá sem eru byrjendur eða endurkomendur í radíóamatöráhugmálið til að ná betra valdi á morsinu og samskiptaaðferðum radíóamatöra um allan heim. Þremur vikum seinna verður SSB hluti keppninnar.
SAC keppnisnefndin býður radíóamatörum um allan heim til “2013 Scandinavian Activity Contest”
Markmiðkeppninnarer aðefla amatörradíóstarfið íSkandinavíu eða réttara á Norðurlöndunum oghvetja tilsamskiptamilliradíóamatöra í Skandinavíu ogradíóamatöra utan Skandinavíu. Scandinavíustöðvarreynaað ná sambandi viðeins margar stöðvar utan Skandinavíuog unnt er ogöfugt.
Á heimasíðu ÍRA er hafin vinna við að íslenska keppnisreglurnar. Allir félagar ÍRA sem réttindi hafa til að skrifa á vefinn geta tekið þátt í að þýða reglurnar á íslensku og er reyndar tilvalið tækifæri fyrir alla sem vilja ná valdi á þessum framtíðar samskiptahætti sem ÍRA-vefurinn er til að læra hvernig farið er að og kynnast því hversu miklu virkari samskiptaháttur gagnvirki vefurinn er heldur en venjulegur tölvupóstur sem allsstaðar er á undanhaldi í heiminum.
Koma svo og láta í sér heyra á vefnum á jákvæðan hátt, hættum að nöldra úti í horni eða í felum á bak við tölvupóst. Þeir sem hafa áður tekið þátt í þessari keppni eru sérstaklega hvattir til að bæta hér við eða skrifa í umsagnarhólfið við þessa frétt hvaðeina sem þeim liggur á hjarta um keppnina. Við treystum á reynsluboltana til að upplýsa okkur hina.
ps… allir félagar ÍRA geta fengið réttindi, aðgangsheimild, hjá Benna, TF3CY, til að skrifa á vefinn og engin stór hætta þó mistök verði, Benni getur alltaf endurheimt fyrri stöð
Benni, TF3TNT og Ari, TF3ARI, fóru í Bláfjöll í fyrradag og skiptu um loftnet á endurvarpanum. Í staðinn fyrir sumarstöngina sem hafði reynst mjög vel og lifað af þó nokkurn vind var settur upp einn Kathrein dípóll efst á eitt horn mastursins og vísar hann í austur átt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Þegar er komið í ljós að í vissar stefnur er merkisstyrkur töluvert minni en á sumarstönginni eins og við var að búast. En til að fá betri vitneskju um hvernig þetta loftnet reynist miðað við stóru Diamond stöngina má benda á að félagsmenn geta sett inn umsögn “comment” við fréttina með upplýsingum um hvar og hversu vel endurvarpinn næst núna. Einhverra hluta vegna óskýrast myndirnar við að láta vefinn minnka þær en ef smellt er á mynd stækkar hún og verður skýrari. Veit einhver hvers vegna þetta gerist?
Aðspurður fyrr í vikunni hafði TF2LL þetta að segja um Vitahelgina og skilyrðin:
Svona lítur loftnetið nú út, til þess að gera afskaplega ómerkilegt! en virkar og sannar rétt eina ferðina en að það þarf ekki merkilegan búnað til þess að ná á milli landa.
Ég er með 12 metra langan endafæddan láréttan vír sem ég strengdi á milli handriða rétt ofan við lunningu um 8 metra fyrir ofan sjólínu og ætla i næstu inniveru, fimmtu- eða föstudag að reyna að koma loftnetinu upp á milli mastra.
Já það er merkilegt hvernig skilyrðin eru. Ég er búinn ad spjalla vid Jesper QX3KQ i Syðri Straumfirði á 20 metrunum en heyri ekki bofs i QX5YL skvísunum sem eru eitthvað sunnar. Ílla heyrist i LA en fínt í SM stöðvum og búinn að hafa nokkur QSO við bara ” venjulega ” kalla med lítil loftnet og afl. OH stöðvarnar eru feikna sterkar en heyra ekkert í mér. Þetta virðist einhvernvegin liggja svona undanfarið.
Ég heyrði ekki bofs i vitamönnum um helgina, hvorki Garðskaga né Knarrarósi, sama hver mótunin var. Ég átti hins vegar nokkur vita-QSO austur um, Bretland, Danmörk og Þýskaland. Í gærkvöldi talaði ég við breta sem var rétt nýkominn inn úr vitaleiðangri og hann kvartaði sáran yfir lélegum skilyrðum. Hann hafði 80 QSO, mest á 40 m, örfá á 20 m og ekkert á 80 m og þetta hefði sennilega verið einhver lélegasta vitahelgin sem hann hefði tekið þátt i miðað vid QSO fjölda auk þess sem veðrið var mjög leiðinlegt.
Ég sendi bréfið til þín úr tölvunni sem er í stjórnklefanum i vélarúminu og staðsetningin er i gráðum, 64-04 N og 36-11 W, QTH locator er HP14WA og fjarlægðin í Garðskaga og Knarrarós 700 – 800 km.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Jón Þóroddur Jónssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngJón Þóroddur Jónsson2013-08-22 10:02:232017-07-23 10:04:24TF2LL/MM á sjó vestur við Grænland á Vitahelginni
Klukkan er sex að morgni sunnudags og hér í Grímsnesinu heyrist vel í TF8IRA við Garðskagavitann morsa á 14.031 MHz í miklu Evrópukraðaki. Í morgun milli fimm og sex var ekki laust við að merkið frá honum væri fyrst með töluverðu heimskautadirri en núna er það stöðugt og hreint S5 á mælinum á IC-706 tengdri við G5RV loftnet í eins metra hæð yfir jörðu algerlega truflana- og næstum suðfrítt. Í gær var TF1IRA við Knarrarós í loftinu og TF3AO sagði aðspurður á fésbókarspjalli þetta um þeirra þáttöku:
…, kominn heim kl. 21:30. Í heildina um 70 sambönd, frá kl. 12 til 19. Þátttakendur, TF3GB á CW, TF3HP, TF3AO, TF3FIN og TF3PPN á SSB.
Mikið fjör var í gær og er enn við Garðskagavita en þar eru TF3IG, TF3ML með Marsbúann ásamt fjölda manns á skemmtisamkomu og einhverjum fleiri radíóamatörum. Myndin er ættuð af fésbók TF3ARI en myndasmiðurinn er líklega TF3ML.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3SG - Guðmundur Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3SG - Guðmundur Sveinsson2013-08-14 09:58:542017-07-23 09:59:14Afmælisdagur ÍRA 14. ágúst
Mirek, VK6DXI hefur boðað að hann komi á morgun fimmtudag 8. ágúst í félagsheimilið með aðra mynd til sýningar. Að þessu sinni verður fjallað um ZL8R Kermadec Island DXpedition. Kermadec er ca. 600 mílur austur af Nýja Sjálandi og ca 6.000 mílur frá vesturströnd Bandaríkjanna. MIrek heldur af landi brott 15. ágúst.
16th ANNUAL INTERNATIONAL LIGHTHOUSE LIGHTSHIP WEEKEND.
Minni á vitahelgina sem verður 17 og 18 ágúst n.k. Þegar þetta er skrifað eru þegar 457 sem skráð hafa þáttöku víðsvegar um heim. Búið er að segja frá þáttöku TF8IRA í Garðskagavita og TF1IRA í Knarrarósvita ásamt fleiri kallmerkjum, frá Ísland.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3SG - Guðmundur Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3SG - Guðmundur Sveinsson2013-08-07 09:56:522017-07-23 09:57:21Vitahelgin framundan, 17 og 18 ágúst
Heimsókn í Fífuna fyrr í dag
Ýmsir góðir gestir hafa í dag heimsótt ÍRA í Fífunni í dag og hér er Stefán, TF3SA, sestur við lykilinn. Neðri myndin sýnir nokkra amatöra sem mættir voru með risavertikal á VHF/UHF á staðinn stilla sér upp að lokninni uppsetningu. Vertikallinn var sumarloftnetið á Bláfjallaendurvarpanum og sést í neðsta hluta loftnetsins milli þeirra Ara, TF3ARI og Guðjóns, TF3WO, lengst til vinstri er Svanur, TF3FIN og síðan Árni, TF3CE. Árni er í fjarskiptanefnd Ferðafélagsins 4×4.
ÍRA á ferðasýningu 4×4 í Fífunni um helgina
ÍRA er í einu horninu á Fífunni í Kópavogi með HF stöð í loftinu um helgina og þar við hliðina sýningu á gömlum fjarskiftabúnaði í samvinnu við fjarskiptahóp 4×4 og radíóskáta. TF3BR, Bragi Reynisson er þar í tjaldi félagsins með stöðina sína og ekki var að heyra annað en að skilyrðin væru góð í gær og mikill áhugi sýningargesta á að forvitnast um þessi einkennilegu hljóð sem bárust úr tjaldinu. Einhverjir radíóamatörar höfðu heimsótt hann um daginn og haft á orði að lykillinn væri fyrir örfhenta…því var snarlega reddað sem formaður ÍRA, TF3SG staðfesti og tók aðeins í lykilinn. Á fyrstu myndinni er Bragi sitjandi við stöðina og er allur að koma til eftir mikil veikindi. Hann hafði það á orði að gott væri að vera búinn að snúa lyklinum því hann væri að byrja að æfa aftur lykilhreyfingarnar og engu máli skipti hverju hann hafði vanist fyrir veikindin.
Trappe virðist fastur á Nýfundnalandi
…og fréttir eru óljósar en svo virðist sem hann hafi hætt við að halda áfram og á þessari síðu er frásögn með ótrúlegum myndum af undirbúningi að og af sjálfu flugtakinu..
http://www.dailymail.co.uk/news/article-2418598/Jonathan-Trappe-IT-manager-attempts-cross-Atlantic-simply-clinging-helium-BALLOONS.html
Radíóamatör gerir tilraun til að fljúga yfir Atlanshafið hangandi neðan í blöðruklasa
Radíóamatörinn Jonathan Trappe, KJ4GQV, frá Raleigh í Norður-Karólína er að reyna að fljúga yfir Atlantshafið hangandi neðan í blöðruklasa. Hann fór í loftið í gær 12. september klukkan 1200 UTC frá Caribou í ríkinu Maine. Trappe sendir frá sér með reglulegu millibili APRS-staðsetningarskeyti á 14,0956 MHz og 144,390 MHz. Síðustu fréttir herma að hann hafi óvænt lent á Nýfundnalandi og ætli að hafast þar við í nótt.
Merkjasendingin á 14,0956 MHz er rétt fyrir ofan WSPR tíðnina, nálægt 1.880 Hz á skjáfossinum. Sendingin er 110 baud ASCII RTTY (8N1) á kallmerkinu NGØX. Merkjasendingarnar eru á 10 mínútna fresti á hverjum heilum tíma og síðan 10, 20, 30, 40 og, 50 mínútur yfir hvern heilan tíma. APRS sendingin á 144,390MHz verður í gangi meðan blöðruklasinn er enn nálægt Bandaríkjunum og Kanada og er með kallmerki Trappe, KJ4GQV.
Trappe fyllti blöðruklasann með helíum 11. september og beið eftir að stormur sem herjaði á norðurhluta Maine gengi yfir.
“Tveggja ára undirbúningsvinna liggur að baki þessu flugi” segir Trappe á vefsíðu sinn.
Meiri upplýsingar eru á heima- og Facebook-síðum Trappe.
http://amsat-uk.org/2013/09/12/14-mhz-beacon-on-radio-hams-trans-atlantic-balloon-flight/
https://www.facebook.com/jonathan.r.trappe.1
SAC CW eftir hálfan mánuð
SAC keppni ársins 2013 sem hefst eftir hálfan mánuð er tilvalið tækifæri fyrir þá sem eru byrjendur eða endurkomendur í radíóamatöráhugmálið til að ná betra valdi á morsinu og samskiptaaðferðum radíóamatöra um allan heim. Þremur vikum seinna verður SSB hluti keppninnar.
SAC keppnisnefndin býður radíóamatörum um allan heim til “2013 Scandinavian Activity Contest”
sjá: http://www.sactest.net/blog/ …
Markmið keppninnar er að efla amatörradíóstarfið í Skandinavíu eða réttara á Norðurlöndunum og hvetja til samskipta milli radíóamatöra í Skandinavíu og radíóamatöra utan Skandinavíu. Scandinavíustöðvar reyna að ná sambandi við eins margar stöðvar utan Skandinavíu og unnt er og öfugt.
Á heimasíðu ÍRA er hafin vinna við að íslenska keppnisreglurnar. Allir félagar ÍRA sem réttindi hafa til að skrifa á vefinn geta tekið þátt í að þýða reglurnar á íslensku og er reyndar tilvalið tækifæri fyrir alla sem vilja ná valdi á þessum framtíðar samskiptahætti sem ÍRA-vefurinn er til að læra hvernig farið er að og kynnast því hversu miklu virkari samskiptaháttur gagnvirki vefurinn er heldur en venjulegur tölvupóstur sem allsstaðar er á undanhaldi í heiminum.
Koma svo og láta í sér heyra á vefnum á jákvæðan hátt, hættum að nöldra úti í horni eða í felum á bak við tölvupóst. Þeir sem hafa áður tekið þátt í þessari keppni eru sérstaklega hvattir til að bæta hér við eða skrifa í umsagnarhólfið við þessa frétt hvaðeina sem þeim liggur á hjarta um keppnina. Við treystum á reynsluboltana til að upplýsa okkur hina.
ps… allir félagar ÍRA geta fengið réttindi, aðgangsheimild, hjá Benna, TF3CY, til að skrifa á vefinn og engin stór hætta þó mistök verði, Benni getur alltaf endurheimt fyrri stöð
Vetrarloftnet í Bláfjöll
Benni, TF3TNT og Ari, TF3ARI, fóru í Bláfjöll í fyrradag og skiptu um loftnet á endurvarpanum. Í staðinn fyrir sumarstöngina sem hafði reynst mjög vel og lifað af þó nokkurn vind var settur upp einn Kathrein dípóll efst á eitt horn mastursins og vísar hann í austur átt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Þegar er komið í ljós að í vissar stefnur er merkisstyrkur töluvert minni en á sumarstönginni eins og við var að búast. En til að fá betri vitneskju um hvernig þetta loftnet reynist miðað við stóru Diamond stöngina má benda á að félagsmenn geta sett inn umsögn “comment” við fréttina með upplýsingum um hvar og hversu vel endurvarpinn næst núna. Einhverra hluta vegna óskýrast myndirnar við að láta vefinn minnka þær en ef smellt er á mynd stækkar hún og verður skýrari. Veit einhver hvers vegna þetta gerist?
TF3ARI tók allar þessar myndir.
TF2LL/MM á sjó vestur við Grænland á Vitahelginni
Aðspurður fyrr í vikunni hafði TF2LL þetta að segja um Vitahelgina og skilyrðin:
Svona lítur loftnetið nú út, til þess að gera afskaplega ómerkilegt! en virkar og sannar rétt eina ferðina en að það þarf ekki merkilegan búnað til þess að ná á milli landa.
Ég er með 12 metra langan endafæddan láréttan vír sem ég strengdi á milli handriða rétt ofan við lunningu um 8 metra fyrir ofan sjólínu og ætla i næstu inniveru, fimmtu- eða föstudag að reyna að koma loftnetinu upp á milli mastra.
Já það er merkilegt hvernig skilyrðin eru. Ég er búinn ad spjalla vid Jesper QX3KQ i Syðri Straumfirði á 20 metrunum en heyri ekki bofs i QX5YL skvísunum sem eru eitthvað sunnar. Ílla heyrist i LA en fínt í SM stöðvum og búinn að hafa nokkur QSO við bara ” venjulega ” kalla med lítil loftnet og afl. OH stöðvarnar eru feikna sterkar en heyra ekkert í mér. Þetta virðist einhvernvegin liggja svona undanfarið.
Ég heyrði ekki bofs i vitamönnum um helgina, hvorki Garðskaga né Knarrarósi, sama hver mótunin var. Ég átti hins vegar nokkur vita-QSO austur um, Bretland, Danmörk og Þýskaland. Í gærkvöldi talaði ég við breta sem var rétt nýkominn inn úr vitaleiðangri og hann kvartaði sáran yfir lélegum skilyrðum. Hann hafði 80 QSO, mest á 40 m, örfá á 20 m og ekkert á 80 m og þetta hefði sennilega verið einhver lélegasta vitahelgin sem hann hefði tekið þátt i miðað vid QSO fjölda auk þess sem veðrið var mjög leiðinlegt.
Ég sendi bréfið til þín úr tölvunni sem er í stjórnklefanum i vélarúminu og staðsetningin er i gráðum, 64-04 N og 36-11 W, QTH locator er HP14WA og fjarlægðin í Garðskaga og Knarrarós 700 – 800 km.
Fjör á Vitahelginni
Klukkan er sex að morgni sunnudags og hér í Grímsnesinu heyrist vel í TF8IRA við Garðskagavitann morsa á 14.031 MHz í miklu Evrópukraðaki. Í morgun milli fimm og sex var ekki laust við að merkið frá honum væri fyrst með töluverðu heimskautadirri en núna er það stöðugt og hreint S5 á mælinum á IC-706 tengdri við G5RV loftnet í eins metra hæð yfir jörðu algerlega truflana- og næstum suðfrítt. Í gær var TF1IRA við Knarrarós í loftinu og TF3AO sagði aðspurður á fésbókarspjalli þetta um þeirra þáttöku:
…, kominn heim kl. 21:30. Í heildina um 70 sambönd, frá kl. 12 til 19. Þátttakendur, TF3GB á CW, TF3HP, TF3AO, TF3FIN og TF3PPN á SSB.
Mikið fjör var í gær og er enn við Garðskagavita en þar eru TF3IG, TF3ML með Marsbúann ásamt fjölda manns á skemmtisamkomu og einhverjum fleiri radíóamatörum. Myndin er ættuð af fésbók TF3ARI en myndasmiðurinn er líklega TF3ML.
Garðskagaviti 2013
Afmælisdagur ÍRA 14. ágúst
Félagið Íslenskir Radíóamatörar ÍRA var stofnað 14. ágúst 1946. Af því tilefni óskar formaður öllum félögum til hamingju með daginn.
73
Guðmundur de TF3SG
Loftur E Jónasson, TF3LJ í heimsókn
Loftur E. Jónasson, TF3LJ
Góður gestur í heimsókn, Loftur E. Jónasson, TF3LJ kom fyrir nokkru í heimsókn í félagsaðstöðu ÍRA. Við það tilefni tók Sigurbjörn, TF3SB myndina.
Mirek, VK6DXI myndakvöld kl. 20.00 fimmtudag 8. ágúst
Mirek, VK6DXI hefur boðað að hann komi á morgun fimmtudag 8. ágúst í félagsheimilið með aðra mynd til sýningar. Að þessu sinni verður fjallað um ZL8R Kermadec Island DXpedition. Kermadec er ca. 600 mílur austur af Nýja Sjálandi og ca 6.000 mílur frá vesturströnd Bandaríkjanna. MIrek heldur af landi brott 15. ágúst.
73
Guðmundur de TF3SG
Vitahelgin framundan, 17 og 18 ágúst
Sælir félagar,