Í.R.A. hefur borist erindi frá Póst- og fjarskiptastofnun dags. 16. janúar 2013 þess efnis, að íslenskum leyfishöfum er veitt heimild til að nota nýtt tíðnisviðið 472-479 kHz á 630 metra bandi. Heimildin miðast við 5 wött e.i.r.p. og má bandbreidd merkis vera allt að 1 kHz. Heimildin gildir fyrir G-leyfishafa og er á víkjandi grunni (forgangsflokkur 2 í reglugerð)
Á alþjóða tíðniráðstefnunni í Genf (WRC 2012) var samþykkt að veita radíóamatörum heimild fyrir notkun á tíðnisviðsinu 472-479 kHz fyrir starfsemi sína, á víkjandi grunni, og með ákveðnum skilyrðum varðandi sendiafl. Almenna reglan varðandi sendiafl er, að nota megi allt að 1 watt e.i.r.p. Lönd sem eru staðsett, a.m.k. 800 km frá ákveðnum löndum sem talin eru upp í alþjóða radíóreglugerðinni, mega heimila allt að 5 wött e.i.r.p. sendiafl og hefur Póst- og fjarskiptastofnun ákveðið að veita íslenskum radíóamatörum þá heimild með hliðsjón af staðsetningu landsins.
Á næstunni verður sama tíðnisvið (472-479 kHz) til úthlutunar til radíóamatöra um allan heim, þ.e. í IARU Svæðum 1, 2 og 3 og verður engin skörun í tíðni á milli svæða (sem er afar jákvætt). Þess má geta til viðbótar, að eldri tímabundin sérheimild til íslenskra leyfishafa í tíðnisviðinu 493-510 kHz féll niður þann 31. desember 2012.
Stjórn Í.R.A. fagnar framkominni heimild frá Póst- og fjarskiptastofnun.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-01-16 08:57:422017-07-20 08:58:38Erindi hefur borist frá Póst- og fjarskiptastofnun
Fyrsta Worked All Zones (WAZ) viðurkenningarskjal TF3IRA er nr. 8935 í “Mixed Mode” útgáfu.
Fyrsta Worked All Zones (WAZ) viðurkenningarskjal félagsins (af þremur) barst til félagsins þann
13. desember s.l. Ekki reyndist unnt að koma því í innrömmun þá vegna annríkis á innrömmunarverkstæði félagsins fyrir jólin. Nú hefur verkefnastaðan lagast og er þess að vænta að sækja megi skjalið fljótlega, finna því stað í fjarskiptaherbergi félagsins og negla á vegg, í samráði við Benedikt Guðnason, TF3TNT, stöðvarstjóra.
Það var Mathías Hagvaag, TF3-Ø35, sem hafði veg og vanda af undirbúningi umsóknarinnar en Jónas Bjarnason, TF3JB (trúnaðarmaður CQ tímaritsins vegna viðurkenningaskjala þeirra hér á landi), yfirfór kort og kom gögnum í hefðbundið umsóknarferli. Ástæða er til að taka fram, að WAZ viðurkenningarskjalið er félagssjóði að kostnaðarlausu, þ.e. CQ tímaritið felldi niður umsóknargjöld, auk þess sem annar kostnaður en án útgjalda fyrir félagssjóð. Viðkomandi eru færðar bestu þakkir.
CQ Worked All Zones Award (WAZ) viðurkenningarskjalið og mismunandi útgáfur þess eru gefnar út til radíóamatöra, sem geta framvísað gögnum sem staðfesta að þeir hafi haft sambönd við stöðvar í sérhverju 40 skilgreindra landssvæða í heiminum (e. zones). WAZ hefur verið til frá því fyrir seinni heimstyrjöld og skipast því í flokk með elstu viðurkenningarskjölum radíóamatöra. Þótt DXCC einingar (e. entities) séu vissulega þáttur sem menn þurfa að hafa í huga þegar unnið er að skjalinu, þá er áherslan fyrst og fremst landfræðileg og í því felst áskorunin. WAZ er því í flokki með erfiðustu viðurkenningarskjölum radíóamatöra sem eru í boði í dag.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-01-15 08:56:332017-07-20 08:57:35WAZ fyrir TF3IRA á leið í innrömmun
Eins og kynnt hefur verið á póstlista félagsins, setti TF3CY í gang nýtt spjallsvæði hér á heimasíðunni
þann 19. desember s.l. Slóðin er: http//spjall.ira.is Tenging hefur verið gerð virk frá heimasíðunni (dálkur
lengst til hægri). Svæðið skiptist annarsvegar í almennt spjall og hinsvegar í sérhæft spjall, samkvæmt
eftirfarandi töflu:
Almennt spjall
Umræður
Spjallið
Hér má ræða um allt á milli himins og jarðar
Smáauglýsingar
Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir hverju sem er sem tengist amatörradíói
Aðstoð
Hjálp! Spurningar og svör
DX hornið
Póstar um góða DX’a – er eitthvað í loftinu?
Húmor og annað
Og svo allt annað!
Sérhæft spjall
Umræður
Föndurhornið
Tækjasmíði, loftnet, breytingar á búnaði o.s.fr.
APRS
Umræður um APRS og neyðarfjarskipti
Keppnir
Ætlar þú að taka þátt?
Mors
Læra morse? góð ráð?
Vefurinn
Umræða um vefinn og spjallið – hvað má bæta og fl.
Prufuþráður
Hér má prófa umræðusvæðið
Benedikt segir: “Þar sem gamla spjallið okkar komst aldrei almennilega í gang, ákvað ég að reyna ekki að flytja það yfir, en gagnagrunnurinn var orðinn hálfónýtur og þetta var óþarflega flókið spjallkerfi. Ég setti upp spjallborð sem heitir “FluxBB” sem er frekar einfalt, en er með möguleika að setja inn myndir. Skráning er opin, þ.e. allir geta skráð sig – borðið kemur sjálfgefið upp á Íslensku, en það er hægt að velja ensku ef menn vilja. Endilega prófið að skrá ykkur og setja inn efni – Ef þið lendið í vandamálum, sendið póst á mig: benni (hjá) ccpgames.com
Jón Ágúst Erlingsson, TF3ZA, hefur lagt upp í sex mánaða bifreiðaferðalag um Afríkulönd.
Um er að ræða 16 manna ferðahóp sem ferðast saman og notar uppgerðan 4X4 hertrukk af
gerðinni Bedford MK. Hópurinn lét úr höfn með ferjunni Norröna frá Seyðisfirði í gær, miðviku-
daginn 9. janúar og er takmarkið að enda ferðina í Cape Town í S-Afríku í lok júnímánaðar.
Jón Ágúst hefur í hyggju að vera QRV á amatörböndum á ferðalaginu og er ágætlega birgur af
tækjum og búnaði (en hann er eini leyfishafinn í hópnum). Jón er þegar kominn með leyfisbréf
í eftirtöldum DXCC löndum: CN, 5T, 6W, 3X, TU, 9G, 5V, TY, 5N, TJ, TR, TN, 9Q, 9J, Z2, A2
og ZS. Hann áætlar að verða QRV á 160-6 metrum, bæði á morsi og tali.
Stjórn Í.R.A. óskar Jóni Ágúst góðrar ferðar og hvetur félagsmenn til að fylgjast með merkjum
frá honum á tilgreindum tímum og böndum, sbr. upplýsingar á vefsíðu hans sem sérstaklega
var sett upp vegna ferðarinnar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-01-10 08:54:582017-07-20 08:55:35TF3ZA fer í ferðalag um Afríkulönd
QSL kort félagsmanna innpökkuð og tilbúin til sendingar þann 7. janúar. Ljósmynd: TF3-Ø35.
Áramótaútsending korta frá TF Í.R.A. QSL Bureau (kortastofu) hefur farið fram. Mathías Hagvaag, TF3-Ø35, QSL stjóri útsendra korta segir, að alls hafi farið sendingar á 130 kortastofur hjá landsfélögum radíóamatöra um allan heim í gær, mánudaginn 7. janúar. Að sögn Mathíasar, bíða þó tveir 2 kg. kassar til Þýskalands og Ítalíu sendingar (eftir nokkru viðbótarmagni korta). Þá hafi árið endanlega verið hreinsað upp.
Aðspurður sagði Mathías, að frá því hann tók við embættinu í júlí s.l., hafi alls verð póstlögð 28 kg af kortum til um 150 kortastofa um allan heim. Þegar þeir tveir kassar sem enn bíða sendingar fara í póst, verði þetta alls um 32 kg. korta.
Stjórn Í.R.A. þakkar Mathíasi Hagvaag, TF3-Ø35, fyrir vel unnin störf að QSL málum félagsmanna.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-01-08 08:53:592017-07-20 08:54:52TF Í.R.A. QSL Bureau hreinsar út
TF3FIN og TF3AO í fjarskiptaherbergi Í.R.A. í ARRL Roundup keppninni 2013. Ljósmynd: TF3LMN.
Ársæll Óskarsson, TF3AO; Svanur Hjálmarsson, TF3FIN og Haraldur Þórðarson, TF3HP, virkjuðu félags-
stöðina TF3W í ARRL Roundup RTTY keppninni helgina 5.- 6. janúar í Skeljanesi. Þeir félagar tóku þátt í fleirmenningsflokki/einn sendir/öll bönd/hámarksafl. Alls náðust 748 QSO og 106 margfaldarar í keppninni,
sem gaf 79.288 heildarstig.
ARRL RTTY Roundup er alþjóðleg 30 klukkustunda keppni, þar sem þátttaka er heimil í mest 24 klukku-
stundir. Skilyrðin voru almennt séð nokkuð góð, en takmarkandi þáttur var að loftnet voru ekki til afnota á
40 og 80 metrum. Sundurgreining á samböndum fylgir í meðfylgjandi töflu.
Stjórn Í.R.A. óskar þeim félögum til hamingju með niðurstöðuna.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-01-07 08:50:512017-07-20 08:51:33ARRL RTTY Roundup frá TF3W gekk vel
Ársæll Óskarsson TF3AO. Myndin var tekin hjá TF3W í SAC SSB keppninni 2011. Ljósmynd: TF3SA.
Ársæll Óskarsson, TF3AO og Svanur Hjálmarsson, TF3FIN, munu virkja félagsstöðina TF3W í Skeljanesi í ARRLRoundup RTTY keppninni helgina 5.- 6. janúar n.k. “Roundup” er 30 klst. keppni þar sem þátttakendur mega mest vera QRV í 24 klukkustundir á keppnistímanum. Hún hefst kl. 18:00 á laugardag og lýkur kl. 24:00 á sunnudag. Að sögn Sæla, ráðgera þeir félagar að verða einkum virkir í keppninni á sunnudag.
Keppnin er í reynd fyrir allar tegundir stafrænnar útgeislunar, þ.e. RTTY, ASCII, AMTOR, PSK31 og Packet, en RTTY hefur verið ríkjandi undanfarin ár. Keppnin fer fram á 10-80 metra böndunum og hvíldartímabil mega mest vera tvö og þurfa að vera tekin í mest tveimur samfelldum hléum. Sjá nánar reglur keppninnar á þessari vefslóð: http://www.arrl.org/files/file/Contest%20Rules%20PDFs/2013/2013-RTTYRU-Rules.pdf
Stjórn Í.R.A. óskar þeim félögum góðs gengis í keppninni.
Svanur Hjálmarsson TF3FIN. Myndin var tekin hjá TF3W í SAC SSB keppninni 2011. Ljósmynd: TF3SA.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2013-01-03 08:49:212017-07-20 08:52:42TF3W verður QRV í ARRL Roundup keppninni
Í janúarhefti CQ tímaritsins 2013 eru birtar niðurstöður úr CQ World-Wide WPX SSBkeppninni
sem fór fram helgina 24.-25. mars 2012. Alls sendu sex TF-stöðvar inn gögn til keppnisnefndar,
í fimm keppnisflokkum. Engin met voru slegin að þessu sinni enda skilyrði til fjarskipta afar erfið
(einkum fyrri dag keppninnar) sem glögglega kemur fram í meðfylgjandi töflu.
Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, keppti í einmenningsflokki á 14 MHz og náði bestum árangri
íslensku stöðvanna. Hann var með tæplega 1,8 milljónir stiga (1,351 QSO og 692 margfaldara). Benedikt Sveinsson, TF1CY, keppti á öllum böndum og náði einnig góðum árangri. Hann var með
rúmlega 800 þúsund stig (984 QSO og 564 margfaldara). Andrés Þórarinsson, TF3AM,keppti í
sama flokki og var með tæplega 230 þúsund stig (524 QSO og 362 margfaldara).
Stjórn Í.R.A. óskar hlutaðeigandi til hamingju með niðurstöðurnar.
Niðurstöður í keppninni fyrir TF-stöðvar urðu að öðru leyti samkvæmt eftirfarandi:
Keppnisflokkur
Kallmerki
Heildarárangur
Fjöldi sambanda
Fjöldi forskeyta
Einmenningsflokkur, 14 MHz, háafl
Unknown macro: {center}TF3CW*
Unknown macro: {center}1,766,676
Unknown macro: {center}1,351
Unknown macro: {center}692
Einmenningsflokkur, 21 MHz, háafl, aðstoð
Unknown macro: {center}TF3AO*
Unknown macro: {center}81,039
Unknown macro: {center}302
Unknown macro: {center}227
Einmenningsflokkur, 28 MHz, háafl
Unknown macro: {center}TF8GX*
Unknown macro: {center}47,376
Unknown macro: {center}219
Unknown macro: {center}168
Einmenningsflokkur, öll bönd, háafl
Unknown macro: {center}TF1CY*
Unknown macro: {center}803,995
Unknown macro: {center}984
Unknown macro: {center}565
Einmenningsflokkur, öll bönd, háafl
Unknown macro: {center}TF3AM
Unknown macro: {center}228,422
Unknown macro: {center}524
Unknown macro: {center}362
Einmenningsflokkur, öll bönd, lágafl
Unknown macro: {center}TF3SG*
Unknown macro: {center}167,399
Unknown macro: {center}286
Unknown macro: {center}229
*Viðkomandi stöð fær viðurkenningarskjal frá CQ tímaritinu.
Vetrarsól skín á Steppir í Skeljanesi í Reykjavík kl. 14:22 þann 6. desember 2012.
Vetrardagskrá Í.R.A. fyrir tímabilið janúar-maí 2013 liggur fyrir. Hún hefst að þessu sinni fimmtudaginn 24. janúar og lýkur fimmtudaginn 2. maí. Samkvæmt dagskránni verða alls í boði 20 viðburðir, þ.e. erindi, sunnudagsopnanir, hraðnámskeið, opið hús, sérstakur fimmtudagsfundur, DVD heimildarmynd og stöðutaka í morsi. Sunnudagsopnanir félagsaðstöðunnar hefjast á ný um miðjan febrúar og lýkur í byrjun apríl. Ánægjulegt er að geta um, að Bjarni Sigurðsson, sérfræðingur hjá Póst- og fjarskiptastofnun heimsækir okkur í Skeljanes á ný með erindi þann 21. mars. Dagskráin verður nánar til kynningar í 1. tbl. CQ TF sem kemur út síðar í þessum mánuði. Dagskráin er einnig birt í dálknum lengst til hægri (ofarlega) á heimasíðunni með meiri upplýsingum ásamt ljósmyndum. Verkefnið var annars í traustum höndum Andrésar Þórarinssonar, TF3AM, varaformanns félagsins, með aðkomu stjórnarmannanna Kjartans H. Bjarnasonar, TF3BJ og Jónasar Bjarnasonar, TF3JB.
J A N Ú A R
Viðburður
Upplýsingar
Fyrirlesari/umsjón
Tímasetn.
Aths.
24.1. fimmtudagur
Fundur
VHF og UHF málefni
Fundarstjóri TF3BJ
20:30-22:00
Veitingar
31.1. fimmtudagur
Opið hús
Kaffi á könnunni
Almennar umræður
20:00-22:00
Molakaffi
F E B R Ú A R
Viðburður
Upplýsingar
Fyrirlesari/umsjón
Tímasetn.
Aths.
2.2. laugardagur
Stöðutaka, mors
Skráning, takmarkaður fjöldi
TF3SA og TF3SG
15:00-18:00
Molakaffi
7.2. fimmtudagur
Erindi
PSK-31 fyrir byrjendur
TF3VS
20:30-21:30
Molakaffi
14.2. fimmtudagur
Erindi
Sögur úr bílnum
TF3DX
20:30-21:30
Molakaffi
17.2. sunnudagur
1. sófaumræður
Kynning á Sky Command
TF3WO
10:30-12:00
Molakaffi
21.2. fimmtudagur
Opið hús
Kaffi á könnunni
Almennar umræður
20:00-22:00
Molakaffi
24.2. sunnudagur
2. sófaumræður
Félagar koma með morslykla
TF3SA
10:30-12:00
Molakaffi
28.2. fimmtudagur
Erindi
Stafrænt sjónvarp á Íslandi
TF3HRY
20:30-21:30
Molakaffi
M A R S
Viðburður
Upplýsingar
Fyrirlesari/umsjón
Tímasetn.
Aths.
7.3. fimmtudagur
Erindi
„Nýju” böndin á 4/60/630m
TF3JB
20:30-21:30
Molakaffi
9.3. laugardagur
Námskeið
Win-Test, upprifjun-1
TF3Y
10:00-12:00
Molakaffi
14.3. fimmtudagur
Erindi
Loftnetsaðlögunarrásir
TF3AM
20:30-21:30
Molakaffi
16.3. laugardagur
Námskeið
Win-Test, upprifjun-2
TF3Y og TF3CW
10:00-12:00
Molakaffi
17.3. sunnudagur
3. sófaumræður
Að gera upp kapla rétt
TF3TNT
10:30-12:00
Molakaffi
21.3. fimmtudagur
Erindi
Heiti erindis tilkynnt síðar
Bjarni Sigurðsson PFS
20:30-21:30
Veitingar
A P R Í L
Viðburður
Upplýsingar
Fyrirlesari/umsjón
Tímasetn.
Aths.
4.4. fimmtudagur
DVD mynd
DX-leiðangurinn til 3CØX
TF3SG
20:30-21:30
Molakaffi
7.4. sunnudagur
4. sófaumræður
Notkun SteppIR 2E loftnets
TF3Y
10:30-12:00
Molakaffi
11.4. fimmtudagur
Erindi
Amatörsýningar um heiminn
TF3EE TF3JB TF8GX
20:30-21:30
Molakaffi
18.4. fimmtudagur
Erindi
Starfshópur, fjaraðgangur
TF3Y TF3DX TF3KB
20:30-21:30
Molakaffi
M A Í
Viðburður
Upplýsingar
Fyrirlesari/umsjón
Tímasetn.
Aths.
2.5. fimmtudagur
Erindi
Starfshópur, neyðarfjarskipti
TF3JA og fleiri
20:30-21:30
Molakaffi
ATh. að félagsaðstaðan í Skeljanesi verður lokuð eftirtalda fimmtudaga: 29. mars(skírdagur), 25. apríl (sumardagurinn fyrsti) og 9. maí (uppstigningadagur).
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-12-29 22:15:542017-07-19 22:16:22Gleðilegt nýtt ár 2013
Að gefnu tilefni er vakin athygli leyfishafa á að sækja þarf sérstaklega um heimild(ir) til notkunar á neðangreindum tíðnisviðum, sem Póst- og fjarskiptastofnuni hefur nýlega úthlutað til tímabundinnar notkunar hér á landi:
1850-1900 kHz (á 160 metrum) í tilgreindum alþjóðlegum keppnum. Heimild dags. 9.11.12 gildir fyrir almanaksárið 2013.
5260-5410 kHz (á 60 metrum). Heimild dags. 13.11.12 gildir fyrir almanaksárin 2013 og 2014.
70.000-70.200 MHz (á 4 metrum). Heimild dags. 14.11.12 gildir fyrir almanaksárin 2013 og 2014.
Þeir leyfishafar sem hafa fengið heimildir stofnunarinnar til að vinna í einhverju eða öllum þessara tíðnisviða, og sem renna út þann 31. desemeber n.k., er góðfúslega bent á, að stofnunin fer þess á leit, að leyfishafar sendi inn nýjar umsóknir fyrir þessi tíðnisvið fyrir ofangreind ný tímabil.
Senda má umsóknir í tölvupósti á póstföngin hrh(hjá)pfs.is eða pfs(hjá)pfs.is Sækja má um heimild til notkunar á einu eða á öllum tíðnisviðunum í sama tölvupósti. Leyfishöfum er jafnframt bent á, að kynna sér skilyrði stofnunarinnar fyrir leyfisveitingum; sbr. vefslóðir neðar á síðunni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2012-12-27 22:15:002017-07-19 22:15:37Sérstakar heimildir á 4, 60 og 160 metrum
Sérstakur fimmtudagsfundur 24. janúar n.k.
Andrés Þórarinsson, TF3AM
Kjartan H. Bjarnason, TF3BJ
Í.R.A. boðar til sérstaks fimmtudagsfundar í félagsaðstöðunni við Skeljanes fimmtudaginn
24. janúar 2013 kl. 20:30. Dagskrá verður sem hér segir:
1. Setning fundar. Andrés Þórarinsson TF3AM, varaformaður Í.R.A.
2. Afhending verðlauna í TF VHF leikunum 2012. Guðmundur Löve TF3GL, umsjónarmaður leikanna.
3. VHF og UHF málefni. Inngangserindi (10-15 mín. hvert): Jón Þ. Jónsson TF3JA, Guðmundur Löve TF3GL, og Benedikt Guðnason TF3TNT.
4. Umræður. Fundarstjóri, Kjartan H. Bjarnason TF3BJ, gjaldkeri Í.R.A.
5. Samantekt umræðna og fundarlok.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar í boði félagssjóðs.
Jón Þóroddur, TF3JA
Guðmundur Löve, TF3GL
Benedikt Guðnason, TF3TNT
Erindi hefur borist frá Póst- og fjarskiptastofnun
Í.R.A. hefur borist erindi frá Póst- og fjarskiptastofnun dags. 16. janúar 2013 þess efnis, að íslenskum leyfishöfum er veitt heimild til að nota nýtt tíðnisviðið 472-479 kHz á 630 metra bandi. Heimildin miðast við 5 wött e.i.r.p. og má bandbreidd merkis vera allt að 1 kHz. Heimildin gildir fyrir G-leyfishafa og er á víkjandi grunni (forgangsflokkur 2 í reglugerð)
Á alþjóða tíðniráðstefnunni í Genf (WRC 2012) var samþykkt að veita radíóamatörum heimild fyrir notkun á tíðnisviðsinu 472-479 kHz fyrir starfsemi sína, á víkjandi grunni, og með ákveðnum skilyrðum varðandi sendiafl. Almenna reglan varðandi sendiafl er, að nota megi allt að 1 watt e.i.r.p. Lönd sem eru staðsett, a.m.k. 800 km frá ákveðnum löndum sem talin eru upp í alþjóða radíóreglugerðinni, mega heimila allt að 5 wött e.i.r.p. sendiafl og hefur Póst- og fjarskiptastofnun ákveðið að veita íslenskum radíóamatörum þá heimild með hliðsjón af staðsetningu landsins.
Á næstunni verður sama tíðnisvið (472-479 kHz) til úthlutunar til radíóamatöra um allan heim, þ.e. í IARU Svæðum 1, 2 og 3 og verður engin skörun í tíðni á milli svæða (sem er afar jákvætt). Þess má geta til viðbótar, að eldri tímabundin sérheimild til íslenskra leyfishafa í tíðnisviðinu 493-510 kHz féll niður þann 31. desember 2012.
Stjórn Í.R.A. fagnar framkominni heimild frá Póst- og fjarskiptastofnun.
WAZ fyrir TF3IRA á leið í innrömmun
Fyrsta Worked All Zones (WAZ) viðurkenningarskjal TF3IRA er nr. 8935 í “Mixed Mode” útgáfu.
Fyrsta Worked All Zones (WAZ) viðurkenningarskjal félagsins (af þremur) barst til félagsins þann
13. desember s.l. Ekki reyndist unnt að koma því í innrömmun þá vegna annríkis á innrömmunarverkstæði félagsins fyrir jólin. Nú hefur verkefnastaðan lagast og er þess að vænta að sækja megi skjalið fljótlega, finna því stað í fjarskiptaherbergi félagsins og negla á vegg, í samráði við Benedikt Guðnason, TF3TNT, stöðvarstjóra.
Það var Mathías Hagvaag, TF3-Ø35, sem hafði veg og vanda af undirbúningi umsóknarinnar en
Jónas Bjarnason, TF3JB (trúnaðarmaður CQ tímaritsins vegna viðurkenningaskjala þeirra hér á landi), yfirfór kort og kom gögnum í hefðbundið umsóknarferli. Ástæða er til að taka fram, að WAZ viðurkenningarskjalið er félagssjóði að kostnaðarlausu, þ.e. CQ tímaritið felldi niður umsóknargjöld, auk þess sem annar kostnaður en án útgjalda fyrir félagssjóð. Viðkomandi eru færðar bestu þakkir.
CQ Worked All Zones Award (WAZ) viðurkenningarskjalið og mismunandi útgáfur þess eru gefnar út til radíóamatöra, sem geta framvísað gögnum sem staðfesta að þeir hafi haft sambönd við stöðvar í sérhverju 40 skilgreindra landssvæða í heiminum (e. zones). WAZ hefur verið til frá því fyrir seinni heimstyrjöld og skipast því í flokk með elstu viðurkenningarskjölum radíóamatöra. Þótt DXCC einingar (e. entities) séu vissulega þáttur sem menn þurfa að hafa í huga þegar unnið er að skjalinu, þá er áherslan fyrst og fremst landfræðileg og í því felst áskorunin. WAZ er því í flokki með erfiðustu viðurkenningarskjölum radíóamatöra sem eru í boði í dag.
Reglur fyrir WAZ hafa verið þýddar á íslensku og má lesa þær með að smella á eftirfarandi hlekk:
http://www.cq-amateur-radio.com/cq_awards/cq_waz_awards/cq_waz_rules_icelandic.pdf
Spjall.ira.is
Eins og kynnt hefur verið á póstlista félagsins, setti TF3CY í gang nýtt spjallsvæði hér á heimasíðunni
þann 19. desember s.l. Slóðin er: http//spjall.ira.is Tenging hefur verið gerð virk frá heimasíðunni (dálkur
lengst til hægri). Svæðið skiptist annarsvegar í almennt spjall og hinsvegar í sérhæft spjall, samkvæmt
eftirfarandi töflu:
Almennt spjall
Umræður
Benedikt segir: “Þar sem gamla spjallið okkar komst aldrei almennilega í gang, ákvað ég að reyna ekki að flytja það yfir, en gagnagrunnurinn var orðinn hálfónýtur og þetta var óþarflega flókið spjallkerfi. Ég setti upp spjallborð sem heitir “FluxBB” sem er frekar einfalt, en er með möguleika að setja inn myndir. Skráning er opin, þ.e. allir geta skráð sig – borðið kemur sjálfgefið upp á Íslensku, en það er hægt að velja ensku ef menn vilja. Endilega prófið að skrá ykkur og setja inn efni – Ef þið lendið í vandamálum, sendið póst á mig: benni (hjá) ccpgames.com
TF3ZA fer í ferðalag um Afríkulönd
Jón Ágúst Erlingsson, TF3ZA.
Jón Ágúst Erlingsson, TF3ZA, hefur lagt upp í sex mánaða bifreiðaferðalag um Afríkulönd.
Um er að ræða 16 manna ferðahóp sem ferðast saman og notar uppgerðan 4X4 hertrukk af
gerðinni Bedford MK. Hópurinn lét úr höfn með ferjunni Norröna frá Seyðisfirði í gær, miðviku-
daginn 9. janúar og er takmarkið að enda ferðina í Cape Town í S-Afríku í lok júnímánaðar.
Jón Ágúst hefur í hyggju að vera QRV á amatörböndum á ferðalaginu og er ágætlega birgur af
tækjum og búnaði (en hann er eini leyfishafinn í hópnum). Jón er þegar kominn með leyfisbréf
í eftirtöldum DXCC löndum: CN, 5T, 6W, 3X, TU, 9G, 5V, TY, 5N, TJ, TR, TN, 9Q, 9J, Z2, A2
og ZS. Hann áætlar að verða QRV á 160-6 metrum, bæði á morsi og tali.
Stjórn Í.R.A. óskar Jóni Ágúst góðrar ferðar og hvetur félagsmenn til að fylgjast með merkjum
frá honum á tilgreindum tímum og böndum, sbr. upplýsingar á vefsíðu hans sem sérstaklega
var sett upp vegna ferðarinnar.
Heimasíða ferðarinnar:
http://www.dxacrossafrica.com/about/
Sjá einnig þessa vefslóð:
http://my1stimpressions.com/2013/01/08/vikings-across-africa-across-the-southern-coast-o-iceland/
TF Í.R.A. QSL Bureau hreinsar út
QSL kort félagsmanna innpökkuð og tilbúin til sendingar þann 7. janúar. Ljósmynd: TF3-Ø35.
Áramótaútsending korta frá TF Í.R.A. QSL Bureau (kortastofu) hefur farið fram. Mathías Hagvaag, TF3-Ø35, QSL stjóri útsendra korta segir, að alls hafi farið sendingar á 130 kortastofur hjá landsfélögum radíóamatöra um allan heim í gær, mánudaginn 7. janúar. Að sögn Mathíasar, bíða þó tveir 2 kg. kassar til Þýskalands og Ítalíu sendingar (eftir nokkru viðbótarmagni korta). Þá hafi árið endanlega verið hreinsað upp.
Aðspurður sagði Mathías, að frá því hann tók við embættinu í júlí s.l., hafi alls verð póstlögð 28 kg af kortum til um 150 kortastofa um allan heim. Þegar þeir tveir kassar sem enn bíða sendingar fara í póst, verði þetta alls um 32 kg. korta.
Stjórn Í.R.A. þakkar Mathíasi Hagvaag, TF3-Ø35, fyrir vel unnin störf að QSL málum félagsmanna.
ARRL RTTY Roundup frá TF3W gekk vel
TF3FIN og TF3AO í fjarskiptaherbergi Í.R.A. í ARRL Roundup keppninni 2013. Ljósmynd: TF3LMN.
Ársæll Óskarsson, TF3AO; Svanur Hjálmarsson, TF3FIN og Haraldur Þórðarson, TF3HP, virkjuðu félags-
stöðina TF3W í ARRL Roundup RTTY keppninni helgina 5.- 6. janúar í Skeljanesi. Þeir félagar tóku þátt í
fleirmenningsflokki/einn sendir/öll bönd/hámarksafl. Alls náðust 748 QSO og 106 margfaldarar í keppninni,
sem gaf 79.288 heildarstig.
ARRL RTTY Roundup er alþjóðleg 30 klukkustunda keppni, þar sem þátttaka er heimil í mest 24 klukku-
stundir. Skilyrðin voru almennt séð nokkuð góð, en takmarkandi þáttur var að loftnet voru ekki til afnota á
40 og 80 metrum. Sundurgreining á samböndum fylgir í meðfylgjandi töflu.
Stjórn Í.R.A. óskar þeim félögum til hamingju með niðurstöðuna.
Band (MHz)
QSO (fjöldi)
QSO (stig)
Margfaldarar (W/VE)
DXCC einingar
Vefslóð á heimasíðu ARRL RTTY Roundup keppninnar:
http://www.arrl.org/rtty-roundup
TF3W verður QRV í ARRL Roundup keppninni
Ársæll Óskarsson TF3AO. Myndin var tekin hjá TF3W í SAC SSB keppninni 2011. Ljósmynd: TF3SA.
Ársæll Óskarsson, TF3AO og Svanur Hjálmarsson, TF3FIN, munu virkja félagsstöðina TF3W í Skeljanesi í ARRL Roundup RTTY keppninni helgina 5.- 6. janúar n.k. “Roundup” er 30 klst. keppni þar sem þátttakendur mega mest vera QRV í 24 klukkustundir á keppnistímanum. Hún hefst kl. 18:00 á laugardag og lýkur kl. 24:00 á sunnudag. Að sögn Sæla, ráðgera þeir félagar að verða einkum virkir í keppninni á sunnudag.
Keppnin er í reynd fyrir allar tegundir stafrænnar útgeislunar, þ.e. RTTY, ASCII, AMTOR, PSK31 og Packet, en RTTY hefur verið ríkjandi undanfarin ár. Keppnin fer fram á 10-80 metra böndunum og hvíldartímabil mega mest vera tvö og þurfa að vera tekin í mest tveimur samfelldum hléum. Sjá nánar reglur keppninnar á þessari vefslóð: http://www.arrl.org/files/file/Contest%20Rules%20PDFs/2013/2013-RTTYRU-Rules.pdf
Stjórn Í.R.A. óskar þeim félögum góðs gengis í keppninni.
Svanur Hjálmarsson TF3FIN. Myndin var tekin hjá TF3W í SAC SSB keppninni 2011. Ljósmynd: TF3SA.
CQ WW WPX SSB keppnin 2012, niðurstöður
Í janúarhefti CQ tímaritsins 2013 eru birtar niðurstöður úr CQ World-Wide WPX SSBkeppninni
sem fór fram helgina 24.-25. mars 2012. Alls sendu sex TF-stöðvar inn gögn til keppnisnefndar,
í fimm keppnisflokkum. Engin met voru slegin að þessu sinni enda skilyrði til fjarskipta afar erfið
(einkum fyrri dag keppninnar) sem glögglega kemur fram í meðfylgjandi töflu.
Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, keppti í einmenningsflokki á 14 MHz og náði bestum árangri
íslensku stöðvanna. Hann var með tæplega 1,8 milljónir stiga (1,351 QSO og 692 margfaldara).
Benedikt Sveinsson, TF1CY, keppti á öllum böndum og náði einnig góðum árangri. Hann var með
rúmlega 800 þúsund stig (984 QSO og 564 margfaldara). Andrés Þórarinsson, TF3AM,keppti í
sama flokki og var með tæplega 230 þúsund stig (524 QSO og 362 margfaldara).
Stjórn Í.R.A. óskar hlutaðeigandi til hamingju með niðurstöðurnar.
Niðurstöður í keppninni fyrir TF-stöðvar urðu að öðru leyti samkvæmt eftirfarandi:
Keppnisflokkur
Kallmerki
Heildarárangur
Fjöldi sambanda
Fjöldi forskeyta
Unknown macro: {center}TF3CW*
Unknown macro: {center}1,766,676
Unknown macro: {center}1,351
Unknown macro: {center}692
Unknown macro: {center}TF3AO*
Unknown macro: {center}81,039
Unknown macro: {center}302
Unknown macro: {center}227
Unknown macro: {center}TF8GX*
Unknown macro: {center}47,376
Unknown macro: {center}219
Unknown macro: {center}168
Unknown macro: {center}TF1CY*
Unknown macro: {center}803,995
Unknown macro: {center}984
Unknown macro: {center}565
Unknown macro: {center}TF3AM
Unknown macro: {center}228,422
Unknown macro: {center}524
Unknown macro: {center}362
Unknown macro: {center}TF3SG*
Unknown macro: {center}167,399
Unknown macro: {center}286
Unknown macro: {center}229
*Viðkomandi stöð fær viðurkenningarskjal frá CQ tímaritinu.
Vetrardagskrá Í.R.A. tímabilið janúar-maí 2013
Vetrarsól skín á Steppir í Skeljanesi í Reykjavík kl. 14:22 þann 6. desember 2012.
Vetrardagskrá Í.R.A. fyrir tímabilið janúar-maí 2013 liggur fyrir. Hún hefst að þessu sinni fimmtudaginn 24. janúar og lýkur fimmtudaginn 2. maí. Samkvæmt dagskránni verða alls í boði 20 viðburðir, þ.e. erindi, sunnudagsopnanir, hraðnámskeið, opið hús, sérstakur fimmtudagsfundur, DVD heimildarmynd og stöðutaka í morsi. Sunnudagsopnanir félagsaðstöðunnar hefjast á ný um miðjan febrúar og lýkur í byrjun apríl. Ánægjulegt er að geta um, að Bjarni Sigurðsson, sérfræðingur hjá Póst- og fjarskiptastofnun heimsækir okkur í Skeljanes á ný með erindi þann 21. mars. Dagskráin verður nánar til kynningar í 1. tbl. CQ TF sem kemur út síðar í þessum mánuði. Dagskráin er einnig birt í dálknum lengst til hægri (ofarlega) á heimasíðunni með meiri upplýsingum ásamt ljósmyndum. Verkefnið var annars í traustum höndum Andrésar Þórarinssonar, TF3AM, varaformanns félagsins, með aðkomu stjórnarmannanna Kjartans H. Bjarnasonar, TF3BJ og Jónasar Bjarnasonar, TF3JB.
J A N Ú A R
Viðburður
Upplýsingar
Fyrirlesari/umsjón
Tímasetn.
Aths.
ATh. að félagsaðstaðan í Skeljanesi verður lokuð eftirtalda fimmtudaga: 29. mars(skírdagur), 25. apríl (sumardagurinn fyrsti) og 9. maí (uppstigningadagur).
Gleðilegt nýtt ár 2013
Stjórn Í.R.A. óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra farsældar á nýju ári.
Sérstakar heimildir á 4, 60 og 160 metrum
Að gefnu tilefni er vakin athygli leyfishafa á að sækja þarf sérstaklega um heimild(ir) til notkunar á neðangreindum tíðnisviðum, sem Póst- og fjarskiptastofnuni hefur nýlega úthlutað til tímabundinnar notkunar hér á landi:
Þeir leyfishafar sem hafa fengið heimildir stofnunarinnar til að vinna í einhverju eða öllum þessara tíðnisviða, og sem renna út þann 31. desemeber n.k., er góðfúslega bent á, að stofnunin fer þess á leit, að leyfishafar sendi inn nýjar umsóknir fyrir þessi tíðnisvið fyrir ofangreind ný tímabil.
Senda má umsóknir í tölvupósti á póstföngin hrh(hjá)pfs.is eða pfs(hjá)pfs.is Sækja má um heimild til notkunar á einu eða á öllum tíðnisviðunum í sama tölvupósti. Leyfishöfum er jafnframt bent á, að kynna sér skilyrði stofnunarinnar fyrir leyfisveitingum; sbr. vefslóðir neðar á síðunni.
F.h. stjórnar Í.R.A.,
Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.