Yfirvöld í Mexíkó eru í viðbragðsstöðu þar sem fimmta stigs fellibylurinn Otis gekk á land á sunnanverðri Kyrrahafsströnd Mexíkó í gærmorgun, í Guerrero nærri Acapulco. Fjölmiðlar skýra frá því að vindur hafi náð yfir 70 metrum á sekúndu og von sé á gríðarlegri úrkomu, frá 120 allt upp í 380 millimetra.

ÍRA hefur borist erindi frá neyðarfjarskiptastjóra IARU svæðis 2 um þrjár tíðnir á HF sem hafa verið teknar til notkunar fyrir neyðarfjarskipti radíóamatöra á svæðinu. Þær eru:

80 metrar: 3690 kHz.
40 metrar: 7060 kHz.
40 metrar: 7095 kHz.

Þess er farið á leit að íslenskir radíóamatörar taki tillit til forgangsfjarskipta á þessum tíðnum (og nærri þeim).

Stjórn ÍRA.

Fræðsludagskrá ÍRA heldur áfram. Á laugardag 28. október kl. 14:00 verður viðburðurinn: „Félagar koma með morslykla sína í Skeljanes“.

Þeir Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB, Reynir Björnsson TF3JL og Stefán Arndal, TF3SA mæta á staðinn. Húsið opnar kl. 13:00 og viðburðurinn hefst stundvíslega kl. 14:00.

Hugmyndin er að menn komi með sem flestar gerðir lykla á staðinn og segi frá tegund og gerð yfir kaffibolla – og gjarnan ef einhver saga fylgir. Hægt verður að tengja lyklana við hljóðgjafa (súmmer) á staðnum.

Þegar talað er um lykla er átt við allar gerðir morslykla, þ.e. handlykla, pöllur (spaðalykla), bögga (Vibroplex) og allar gerðir sem hægt er að nota til að senda með mors. Kaffiveitingar í sérflokki.

Verið velkomin á laugardagsopnun í Skeljanesi.

Stjórn ÍRA.

Mynd frá morslykla deginum í Skeljanesi í fyrra (2022). Nánast allar tegundir af lyklum voru þá á staðnum, nema „sagarblöð“ eins og Stefán Arndal, TF3SA orðaði það.
Unnið að uppstillingu lykla og búnaðar áður en dagskráin hófst í fyrra (2022). Ljósmyndir: TF3JB.

Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 26. október fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00 til kl. 22:00.

Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Góður félagsskapur og nýjustu amatörtímaritin.

Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið, flokka kortasendingar og raða í hólfin. Kaffiveitingar.

Verið velkomin í Skeljanes!

Stjórn ÍRA.

CQ World Wide DX SSB keppnin fer fram helgina 28.-29. október.

Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og hægt er við aðra radíóamatöra um allan heim – í eins mörgum löndum (DXCC einingum) og á eins mörgum CQ svæðum og frekast er unnt. Keppt er á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.

Þetta er stærsta alþjóðlega SSB keppni ársins; 48 klst. og engin tímatakmörk og í boði eru 66 mismunandi keppnisflokkar.

Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til þátttöku og að skila inn radíódagbókum að henni lokinni. Alls var skilað dagbókum fyrir 11 TF kallmerki til keppnisstjórnar í fyrra (2021).

Félagsstöðin TF3W verður QRV í keppninni. Félagsmenn sem hafa áhuga á að hjálpa til við að virkja stöðina hafi samband við TF3JB. Skipulag verður rætt í félagsaðstöðunni á opnunarkvöldi á fimmtudagskvöld 26. október.

Með ósk um gott gengi!

Stjórn ÍRA.

Heimasíða keppninnar: https://www.cqww.com/
Keppnisreglur: https://www.cqww.com/rules.htm

Samþykkt var á fundur stjórnar ÍRA 19. október að félagið vinni að uppsetningu og rekstri Echolink aðgangs yfir netið. Markmiðið er að gefa félagsmönnum sem eru með búsetu þar sem ekki næst samband við VHF endurvarpa – eða eru á ferðalagi og ná ekki sambandi við endurvarpa á 2 metrum – aðgang í gegnum TF3RPB endurvarpann í Bláfjöllum.

Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A hefur virkjað Echolink til prufu frá 22. apríl s.l. Forritið vinnur í gegnum TF3RPB endurvarpann og er á FM mótun. Með því að sækja forrit á heimasíðu Echolink: https://www.echolink.org/  er hægt að fá afnot af Echolink „appi“ og tengjast Bláfjöllum yfir netið – t.d. í gegnum heimilistölvu eða GSM síma. Félagsmenn um allt land geta þannig fengið afnot af 2 metra bandinu.

Echolink fjarskiptin fara nú fram í gegnum búnað á heimili Ara Þórólfs Jóhannessonar, TF1A í Reykjavík og verður samskonar búnaður settur upp á næstunni í fjarskiptaherbergi TF3IRA í Skeljanesi. Ari Þórólfur verður félaginu til ráðgjafar og aðstoðar við uppsetningu.

Þess má geta til fróðleiks, að Þór Þórisson, TF1GW setti fyrstur upp Echolink gátt hér á landi árið 2006 sem var meira og minna virk til ársins 2012.

Stjórn ÍRA.

Félagssjóður ÍRA mun festa kaup á VGC VR-N7500 VHF/UHF stöð sem verður sett upp í Skeljanesi. Stöðin kostar 40 þúsund krónur. Annar nauðsynlegur búnaður er til hjá félaginu og þarf því ekki að kaupa fleira í þágu verkefnisins.

Námskeið ÍRA til amatörprófs sem hófst 25. september s.l. var hálfnað mánudaginn 16. október. Þá var 10. kennslukvöldið (af 20) sem var dæmatími um prófsendi í höndum Hauks Konráðssonar, TF3HK.

Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stað- og fjarnámi. Þátttakendur eru víða af á landinu og erlendis frá. Þriðjudaginn 7. nóvember verður síðasta kennslukvöldið sem er upprifjun, auk þess sem farið verður yfir eldri próf.

Alls var skráður 31 þátttakandi í upphafi, en 28 hafa mætt í tíma og er þess því að vænta að fjölmennt verði í prófi Fjarskiptastofu til amatörleyfis laugardaginn 11. nóvember. Kennarar eru alls níu frá félaginu.

Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX í Prófnefnd ÍRA vann skipulag námskeiðsins. Umsjónarmaður er Jónas Bjarnason TF3JB. Þess má geta, að ÍRA hefur haft aðstöðu fyrir námskeið til amatörprófs hjá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 2013.

Bestu óskir um gott gengi til þátttakenda og þakkir til allra sem koma að verkefninu.

Stjórn ÍRA.

Mynd úr kennslustofu í HR mánudaginn 16. október. Haukur Konráðsson TF3HK var með dæmatíma um prófsendi. Mynd: TF3JB.

Björgvin Víglundsson, TF3BOI heimsótti okkur í Skeljanes 19. október með erindið: „Amatör radíó og stærðfræði“.

Hann sýndi okkur áhugaverðar hliðar á amatör radíói sem í raun byggir á því skemmtilaga fagi, stærðfærði. Hann byrjaði fyrirlesturinn á að skrifa upp óendanlega röð, summu, af liðum, sem hver um sig var margfaldaður með e í hlaupandi veldi. Hann breytti síðan þessari röð í heildi eða „integral“. Björgvin spurði síðan út í sal: „Hvað er nú þetta?“ Einn stakk upp á að þetta væri Fourier vörpun, en „NEI,“ sagði Björgvin, þetta er Laplace vörpun.

Og hvað er svo Laplace vörpun, og hvaða gagn getur hún gert? Hún umbreytir eða “varpar” tiltekinni stærðfræðilýsingu, eða -falli yfir á annað form, svokallaða Laplace vörpun, þar sem útreikningar eru léttari og skilningur er auðveldari. Björgvin tók dæmi af einfaldri rafrás, sem hann beitti Laplace vörpun á til að sýna fram á þetta. En meðal áheyrenda hér, sagði hann, væru e.t.v. einhverjir, sem þætti þetta of einfalt, en öðrum þætti þetta kannski allt of flókið, svo líklega yrðu allir óánægðir. Of langt mál er að rekja skemmtilegt erindi Björgvins í þessari stuttu frásögn, en hnyttin tilsvör og útskýringar hans léttu lund áheyranda. Var gerður góður rómur að fyrirlestri hans, og hlaut hann verðskuldað lófaklapp í lokin. Þakkir til Björgvins Víglundssonar, TF3BOI fyrir áhugavert erindi.

Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A lauk við uppfærslu gervihnattastöðvar félagsins í Skeljanesi þetta fimmtudagskvöld. Til upprifjunar, var fyrsti hluti verkefnisins framkvæmdur 22. ágúst þegar þeir Georg Kulp, TF3GZ tengdu sérhæft Ankaro LNB frá PE1CMO og „IceConeFeed v2“ „Helix Feed“ frá Nolle Engineering. Annar hluti var framkvæmdur 7. september þegar Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS tengdi uppfærðan PE1CMO transverter félagsins og þriðji hlutinn var síðan framkvæmdur þetta kvöld (19. október) þegar Ari uppfærði nauðsynlegar stillingar á búnaðinum. Þegar því var lokið hafði hann nokkur QSO um QO-100 gervitunglið því til staðfestingar, að stöðin vinnur eins og best verður á kosið, m.a. við Íslandsvininn Ninu Riehtmüller DL2GRC (sjá mynd neðar). Bestu þakkir til þeirra félaga TF1A, TF3GZ og TF3VS fyrir góða aðstoð við að uppfæra fjarskiptatæki og loftnetsbúnað félagsins.

Alls mættu 31 félagi og 2 gestir í Skeljanes þetta vinda- og úrkomusama (en ágæta) fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.

Stjórn ÍRA.

Björgvin byrjaði erindið stundvíslega kl. 20:30.
Fremst frá vinstri: Anna Kristjánsdóttir XYL TF3RD, Arnlaugur Guðmundsson TF3RD, Ágúst H. Bjarnason TF3OM, Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Einar Kjartansson TF3EK, Ólafur Örn Ólafsson TF1OL, Sveinn Goði Sveinsson TF3ID, Kristján Benediktsson TF3KB, Þórarinn Benedikz TF3TZ, Yngvi Harðarson TF3Y (standandi), Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, Jón Björnsson TF3PW, Jón Svan Grétarsson (standandi) og Njáll H. Hilmarsson TF3NH og Haukur Konráðsson TF3HK (standandi).
Njáll H. Hilmarsson TF3NH, Sveinn Goði Sveinsson TF3ID, Arnlaugur Guðmundsson TF3RD, Anna Kristjánsdóttir XYL TF3RD, Jón Björnsson TF3PW, Ágúst H. Bjarnason TF3OM og Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A (bak í myndavél).
Í fjarskiptaherbergi TF3IRA eftir að búið var að framkvæma allar stillingar á búnaði gervihnattastöðvarinnar var kallað CQ. Fyrsta sambandið um QO-100 tunglið var við Íslandsvininn Ninu Riehtmüller DL2GRC í Herrenberg í Þýskalandi en hún heimsótti landið m.a. í sumar (2023). Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A við hljóðnemann. Wilhelm Sigurðsson TF3AWS og Þorvaldur Bjarnason TF3TB fylgjast með. Ljósmyndir: TF3GZ.

Áður kynntur viðburður „Flóamarkaður ÍRA að hausti“ sem halda átti sunnudag 22. október frestast af óviðráðanlegum ástæðum.

NÝ DAGSETNING: Sunnudagur 19. nóvember.

Beðist er velvirðingar á þessari breytingu.

Stjórn ÍRA.

Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS hefur verið uppboðshaldari á flóamörkuðum ÍRA frá árinu 2010 mun einnig sjá um uppboðið sunnudaginn 19. nóvember n.k. Ljósmynd: TF3JON.

Nýja fræðsludagskráin heldur áfram.

Á fimmtudag, 19. október mætir Björgvin Víglundsson, TF3BOI í Skeljanes með erindið: „Amatör radíó og stærðfræði“.

Björgvin ætlar að sýna okkur áhugaverðar hliðar á áhugamálinu sem í raun byggir meira og minna á því skemmtilaga fagi, stærðfærði. Vakin er athygli þátttakenda á yfirstandandi námskeiði félagsins í til amatörprófs.

Félagsmenn eru hvattir til að láta þetta tækifæri ekki framhjá sér fara. Veglegar kaffiveitingar.

Stjórn ÍRA.

.

Mynd af félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi.

Efnt var til ferðar á meðal félagsmanna ÍRA laugardaginn 14. október og var farið á einkabílum til að skoða fjarskiptasafn Sigga Harðar að Skógum undur Eyjafjöllum. Fararstjóri var Andrés Þórarinsson, TF1AM og leiðsögumaður á staðnum Sigurður Harðarson, TF3WS. Að þessu sinni heimsóttu 12 félagar safnið að Skógum.

Lagt var upp frá Reykjavík kl. 10 árdegis í blíðskaparveðri og voru flestir voru komnir aftur til síns heima fyrir kvöldmat.

Mikil ánægja var með móttökurnar á Skógum enda Sigurður með fróðari mönnum um fjarskipti og fjarskiptatæki hér á land undanfarna áratugi.

Þakkir til Sigga fyrir frábærar móttökur.

Stjórn ÍRA.

Sagan á bak við safnið.

Siggi hefur safnað tækjunum í um 50 ár og þau spanna rúmlega 70 ára sögu fjarskipta á Íslandi. Í safninu er m.a. að sjá allar gerðir bílatalstöðva sem notaðar hafa verið á Íslandi sem hann afhenti samgöngusafninu að Skógum til eignar árið 2009. Tækin skipta hundruðum, frá fyrstu morstækjum til „gemsa” og koma frá fjallamönnum, lögreglu, björgunarsveitum, rútufyrirtækjum, leigubílum, almannavörnum og áhugamönnum um fjarskiptatækni.

Árið 1957, þá 13 ára gamall, smíðaði Siggi Harðar fyrsta útvarpstækið sitt og hefur síðan smíðað mörg tæki og sendistöðvar, þar á meðal stærstan hluta endurvarpskerfa Landsbjargar og Ferðafélagsins 4X4, þ.e. þann hluta sem notar eingöngu sólarorku. Það eru yfir 50 sendistöðvar.

Þegar breytingar hafa orðið á fjarskiptatækninni hér á landi, svo sem þegar AM-mótuðum talstöðvum var skipt út fyrir SSB-mótaðar árið1982 – hefur Siggi ávallt haldið eftir eintaki af hverri gerð sem hann hefur komist yfir, stundum með því að komast í geymslur þjónustufyrirtækja þar sem staðið hefur yfir tiltekt. Á þann hátt hafa varðveist margar gamlar talstöðvar sem nú eru í þessu safni. Þessi söfnun hefur einnig spurst út í gegnum tíðina og menn hafa gefið gömul eintök.

Elstu tækin eru frá árinu 1945, frá því er fjarskipti voru gefin frjáls á Íslandi eftir stríðið. Það hefur komið sér vel að kunna skil á sögu þessara tækja að Siggi hefur unnið við þjónustu fjarskiptatækja í yfir 50 ár.

Siggi Harðar er einnig radíóamatör (TF3WS) og hefur starfað í Flugbjörgunarsveitinni frá 16 ára aldri. Vegna þessa hefur hann m.a. öðlast góða yfirsýn yfir fjölbreytta flóru fjarskiptatækja á Íslandi ásamt því að hafa umgengist menn sem hafa reynslu af notkun þeirra.

Á myndina vantar Georg Kulp TF3GZ, Heimi Konráðsson TF1EIN og Sigurð Andrésson. Ljósmynd: TF3WS.
Ljósmyndir 2-7: Georg Kulp TF3GZ.

Félagsstöðin TF3W tók þátt í SSB hluta Scandinavian Activity keppninnar laugardaginn 14. október.

Þátttaka var aðeins hluta úr degi á laugardag og var bundin við 10 metra bandið. Höfð voru tæplega 150 sambönd. Notuð var Icom IC-7300 100W stöð og OptiBeam Yagi loftnet OBDYA9-A sem hvorutveggja komu vel út í ágætum skilyrðum.

Pier Abert Kaspersma, TF3PKN var á hljóðnemanum. Honum til aðstoðar var Jón E. Berg, TF5J.

Bestu þakkir til þeirra Pier og Jóns fyrir að virkja stöðina.

Stjórn ÍRA.

TF3PKN virkjaði félagsstöðina TF3W í SAC SSB keppninni 12. október.
Jón E. Berg TF5J virkjaði einnig félagsstöðina TF3W í SAC SSB keppninni 12. október.

Í gær, 14. október, bættist við innanlandsviðtæki til hlustunar á HF tíðnum yfir netið.

Það er sömu tegundar og þau fyrri, þ.e. af KiwiSDR gerð, staðsett í Örlygshöfn við Patreksfjörð. Vefslóð: http://pat.utvarp.com  Loftnet er stangarloftnet frá AC Marine, gerð KUM-480-2 fyrir tíðnisviðið 0.15-30 MHz.

Árni Helgason, TF4AH stóð að uppsetningu viðtækisins sem áður var staðsett á Bjargtöngum og var tekið þar niður 3. þ.m.

KiwiSDR viðtækin vinna frá 10 kHz upp í 30 MHz. Hægt er að hlusta á AM, FM, SSB og CW sendingar og má velja bandbreidd sem hentar hverri mótun. Allt að átta notendur geta verið skráðir inn á viðtækið samtímis.

Stjórn ÍRA þakkar Árna fyrir verðmætt framlag. Hér um að ræða mikilvæga viðbót fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir í þessum tíðnisviðum, auk hlustara og allra sem hafa áhuga á útbreiðslu radíóbylgna.

Stjórn ÍRA.

Bent er á fróðlega grein Ara Þórólfs Jóhannessonar, TF1A um KiwiSDR viðtækin sem birtist í 4. tbl. CQ TF 2020; bls. 41: „Aðgengileg viðtæki á Íslandi yfir netið“. Vefslóð: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2020/09/cqtf_34arg_2020_04tbl.pdf

Myndin er af KiwiSDR viðtæki eins og notað er í Örlygshöfn.