CQ WW RTTY WPX CONTEST. Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 00:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 23:59. Hún fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + raðnúmer. https://cqwpxrtty.com/rules.htm
FISTS SATURDAY SPRINT CW CONTEST. Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 00:00 til kl. 23:59. Hún fer fram á CW á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð FISTS félaga: RST + nafn + FISTS nr. + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining). Skilaboð annarra: RST + nafn + „0“ + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining). https://fistsna.org/operating.php#sprints
SKCC WEEKEND SPRINTATHON CW CONTEST. Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 24:00. Hún fer fram á CW á 160, 80, 40. 20, 15, 10 og 6 metrum. Skilaboð: RST + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining) + nafn + (SKCC nr./“NONE“) https://www.skccgroup.com/operating_activities/weekend_sprintathon
KCJ TOPBAND CONTEST, CW. Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 12:00. Hún fer fram á CW á 160 metrum. Skilaboð JA stöðva: RST + 2 bókstafir fyrir stjórnsýslusvæði. Skilaboð annarra: RST + CQ svæði. https://kcj-cw.com/j_index.htm
Eftir samráð innan stjórnar, hefur verið ákveðið að félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verði lokuð í kvöld, fimmtudag 30. janúar.
Ákvörðunin er tekin í ljósi mikillar ófærðar á svæðinu og áframhaldandi óvissu um veður og færð þegar líða tekur nær kvöldi.
Félagsaðstaðan í Skeljanesi verður næst opin fimmtudag 6. febrúar n.k.
Stjórn ÍRA.
Suðaustanhríðarveður (Gult ástand). 30 jan. kl. 10:00 – 18:00. Suðaustan 15-23 m/s með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni á fjallvegum, t.d. á Hellis- og Mosfellsheiði. Einnig búist við talsverðri hálku. Varasamt ferðaveður.

http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2025-01-30 12:21:312025-01-30 12:22:02LOKAÐ Í SKELJANESI 30. JANÚAR
Fremsta röð: Sæmundur Árnason TF3NEI, Gunnar B. Guðlaugsson TF5NN og Helgi Gunnarsson, TF3HG. Næsta röð:Daníel Smári Hlynsson TF3GOD, Birgir Freyr Birgisson TF3BF, Róbert Svansson TF3RS og Ríkharður Þórsson TF8RIX. Næst aftasta röð: Óskar Ólafur Hauksson TF3OH, Guðjón Már Gíslason TF3GMG og Sveinn Goði Sveinsson TF3ID. Aftasta röð: Mathías Hagvaag TF3MH, Yngvi Harðarson TF3Y og Andrés Þórarinsson TF1AM. Ljósmynd: TF3KB.
Laugardaginn 25. janúar var móttaka fyrir nýja leyfishafa sem sem tóku þátt í námskeiði ÍRA til amatörprófs haustið 2024 og náðu prófi Fjarskiptastofu til amatörleyfis 2. nóvember s.l. Allir 14 hafa fengið úthlutað kallmerki hjá stofnuninni. Dagskráin var vel sótt; allir þeir nýliðar sem áttu heimangengt komu, alls 9 manns.
Birgir Freyr Birgisson, TF3BF; Daníel Smári Hlynsson, TF3GOD; Guðjón Már Gíslason, TF3GMG; Gunnar B. Guðlaugsson, TF5NN; Helgi Gunnarsson, TF3HG; Óskar Ólafur Hauksson, TF3OH; Ríkharður Þórsson, TF8RIX, Róbert Svansson, TF3RS og Sæmundur Árnason, TF3NEI.
Erindi fluttu þessir:
Yngvi Harðarson, TF3Y um aðstöðu félagsins í Skeljanesi og um starf ÍRA, (m.a. um fræðsludagskrá, fundi og námskeið (þ.m.t. til amatörprófs), heimasíðu, FaceBook síður, félagsritið CQ TF, ársskýrslu, árlega fjarskiptaviðburði, alþjóðlegar keppnir, endurvarpa, stafvarpa, radíóvita, gervihnattafjarskipti og helstu innanlandstíðnir á HF, VHF og UHF.
Kristján Benediktsson TF3KB tók síðan við og flutti glærukynningu og kynnti alþjóðastarf radíóamatöra, m.a. um IARU, NRAU og ITU. Undir dagskárliðnum fór fram afhending ítarefnis, þ.e. listi yfir valdar greinar sem birst hafa í CQ TF (einkum árin 2018-2024).
Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS fjallaði um loggforrit, mikilvægi þeirra og möguleika og tók sem dæmi Logger32 rafræna dagbókarforritið sem hann sýndi með skjávörpunni. Síðan fjallaði hann almennt um QSL kort, notkun þeirra og sýndi sem dæmi ýmis kort frá sér og öðrum.
Eftir kaffi og spjall var farið upp í fjarskiptaherbergi þar sem Vilhjálmur og fleiri kynntu nýliðum tækin og útskýrðar voru hefðir í fjarskiptum radíóamatöra; hvernig farið er að því að hafa samband á SSB, og síðan fóru þeir allir níu í loftið, hver af fætur öðrum, og tóku nokkur sambönd hver á 10 metra bandinu. Ennfremur ræddi TF3KB bandskipan. Þetta var mjög vel heppnað.
Á eftir var farið í fundarsalinn, bætt á með kaffi. Þar sýndi Vilhjálmur, TF3VS hvernig FT8 fjarskipti fara fram. Til þess notaði hann tölvu og framendann/stjórnborðið á FlexRadio 6600 stöð (Maestro Control Console) sem gerði honum kleift að vera í fjarsambandi yfir netið við stöðvarhlutann heima í Kópavogi. Þetta heppnaðist vel og spunnust fjörugar umræður.
Þegar klukkan var að verða 15:00 var húsið yfirgefið. Ánægjulegur og vel heppnaður dagur. Þökk sé öllum fyrirlesurum, Andrési Þórarinssyni, TF1AM varaformanni fyrir að fyrir að stjórna dagskrá dagsins af röggsemi og Matthíasi TF3MH fyrir húsgæsluna og Sveini Goða TF3ID fyrir veitingar.
Stjórn ÍRA.
Yngvi Harðarson TF3Y.Mynd hægri: Kristján Benediktsson TF3KB. Ljósmynd: TF3Y. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS. . Ljósmynd: TF3KB.Allt að gerast í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Ljósmynd: TF1AM.Helgi Gunnarsson TF3HG kallar “CQ DX á 10 metra bandinu”. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS fylgist með. Ljósmynd: TF1AMRíkharður Þórsson TF8RIX kallar “CQ DX á 10 metra bandinu”. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS fylgist með. Aðrir á mynd: Guðjón Már Gíslason TF3GMG, Yngvi Harðarson TF3Y og Gunnar B. Guðlaugsson TF5NN.Ljósmynd: TF3KB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2025-01-29 09:23:152025-01-29 22:20:08MÓTTAKA FYRIR NÝJA LEYFISHAFA Í SKELJANESI.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2025-01-26 13:06:092025-01-26 13:06:10NÝTT CQ TF ER KOMIÐ ÚT.
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 30. janúar fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00 til kl. 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Góður félagsskapur og nýjustu amatörtímaritin. Kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
ÚR FÉLAGSSTARFINU FYRIR 50 ÁRUM. Sigurbjörn Þór Bjarnason „Doddi“ TF3SB og Kristinn Daníelsson TF3KD í fjarskiptatjaldi TF7V á Stórhöfða í Vestmannaeyjum; „Operation Big Head“ árið 1975. Þetta er ein af myndunum frá TF3KM (SK) sem hanga á vegg í fundarsal félagsins í Skeljanesi.
LABRE-RS Digi Contest. Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 00:00 til sunnudags 2. febrúar kl. 20:59. Hún fer fram á FT4 og FT8 Digi á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: 4 stafa Maidenhead reitur (e. grid square). http://labre-rs.org.br/labre-rs-digi-contest/
10-10 Int. Winter Contest, SSB. Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 00:01 til sunnudags 2. febrúar kl. 23:59. Hún fer fram á SSB á 10 metrum. Skilaboð 10-10 félaga: Nafn + 10-10 fél.númer + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining). Skilaboð annarra: Nafn + 0 + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining). https://www.ten-ten.org/index.php/activity/2013-07-22-20-26-48/qso-party-rules
Mexico RTTY International Contest. Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 2. febrúar kl. 23:59. Hún fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð stöðva í Mexíkó: RST + fylki í Mexíkó. Skilaboð annarra: RST og raðnúmer. https://rtty.fmre.mx
European Union DX Contest. Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 2. febrúar kl. 12:00. Hún fer fram á RTTY á CW og SSB á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð stöðva í Evrópusambandinu: RS(T) + 2 bókstafir og 2 tölustafir (sjá lið 7 í reglum). Skilaboð annarra: RS(T) + ITU svæði (TF = 17). http://www.eudx-contest.com/rules/?doing_wp_cron=1737718456.4802460670471191406250
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2025-01-21 14:43:012025-01-21 14:43:48ALLS ERU KOMIN 14 NÝ KALLMERKI
Sigurður Harðarson, TF3WS hefur uppfært eldra efni um upphaf útvarps á Íslandi og gefið út í nýjum bæklingi. Bæklingurinn er 100 ára saga útvarps á Íslandi og hefur fengið nýtt nafn og breyst mikið með nýjum upplýsingum, En fyrsta formlega útsending útvarpsstöðvar hér á landi var 18. mars 1926.
Siggi segir m.a. „Í þessari nýju útgáfu er miklu nákvæmari lýsing á hvernig staðið var að uppsetningu fyrstu stöðvanna og t.d. saga Gook á Akureyri og fleira“. Vefslóð: http://www.ira.is/tf3ws-upphaf-utvarps-a-islandi/
Bæklingurinn er allur hinn glæsilegasti og er alls 43 bls. að stærð, vel myndskreyttur og má m.a. sjá efni sem birtist í 2. tbl. CQ TF 2018 og endurprentun greinar Sigurbjörns Þórs Bjarnasonar, TF3SB þáverandi ritstjóra CQ TF: „Loftskeytastöðin á Melunum“ en stöðin átti einmitt 100 ára afmæli 2018. Þakkir til Sigga Harðar að taka saman þetta áhugaverða efni.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2025-01-21 00:07:132025-01-21 00:17:08UPPHAF ÚTVARPS Á ÍSLANDI.
Í dag, sunnudaginn 19. janúar 2025, þá mættu þessir „snillar“ vestur í Skeljanes til að koma stóru greiðunni aftur í gang. Veður var kalt og vindur, en þeir luku þessu með miklum ágætum.
Þetta eru þeir Georg Kulp TF3GZ og Sigurður R Jakobsson TF3CW sem hér sjást kuldalega klæddir. Þeir eru nýbúnir að ná niður gamla bilaða rótórnum sem þeir halda hér á, og undirbúa sig undir að setja nýjan rótor í staðinn og nýja hreyfanlega fæðilínu.
Það var unnið í skotbómulyftara í 20 m. hæð og þar vaggar allt og hreyfist, og það er kalt, og það er hvasst, og það þarf að hluta til að vinna berhentur. Niðri á jafnsléttu fylgdust með þeir Georg Magnússon TF2LL, Benedikt Sveinsson TF3T og Sveinn Goði TF3ID, já og hundurinn Skíma reyndist jafn áhugasöm og þeir strákarnir. (Texti og ljósmyndir: Andrés Þórarinsson, TF1AM)
UMSÖGN TF3CW:„Þetta gekk ljúft með góðra manna aðstoð….Algert lykilatriði er að hafa vanan skotbómustjóra á tökkunum, og þar höfum við Georg Kulp…sem hefur meira að segja kennsluréttindi á svona græjur…! Georg Magnússon var við stjórnvölin í „sjakknum“, og fínstillti stefnuna á rótornum…. Svo voru það Andrés og Sveinn Goði sem helltu uppá kaffið og kom svo ekki Andrés með heimabakaðar lummur og túnfisksalat í ofanálag…! Lífið er gott…!!“.
Georg Kulp TF3GZ og Sigurður R. Jakobsson TF3CW með gamla rótorinn.Georg Magnússon TF2LL, Benedikt Sveinsson TF3T og Sveinn Goði Sveinsson TF3ID ásamt hundinum Skímu. Ljósmyndir: Andrés Þórarinsson TF1AM.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2025-01-19 21:41:102025-01-19 21:45:01NÝR RÓTOR Í MASTRIÐ Í SKELJANESI.
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudag 23. janúar fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00 til kl. 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Góður félagsskapur og nýjustu amatörtímaritin.
Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið og flokka kortasendingar. Sveinn Goði Sveinsson, TF3ID lagar kaffið og tekur fram meðlæti.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
ÚR FÉLAGSSTARFINU. Sigurður Harðarson TF3WS tók að sér að útvega Arngrími B. Jóhannessyni, TF5AD „græju“ sem mætti nota á milli morslykils og risatölvuskjás samhliða flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á tónleikum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Sigurður leitaði til nokkurra félagsmanna sem og til félagsins. Til að gera langa sögu stutta, komst hann í samband við Hrafnkel Sigurðsson, TF8KY (fyrir milligöngu Guðmundar Inga Hjálmtýssonar, TF3IG) og smíðaði Hrafnkell morsþýðara og gerði kláran. Þess má geta að hann hafði áður smíðað svipað/samskonar tæki fyrir Guðmund Inga. Á myndinni er Siggi að stilla „morsþýðarann“ í fjarskiptaherbergi TF3IRA í Skeljanesi 11. Október 2021. Lítill skjár er „monteraður“ á kassann með stillitökkum.Síðan var morsað með handlyklinum og „Voila!“ stafirnir birtust á skjá tölvunnar sem og á litlum skjá á tækinu sjálfu. Tækið virkar vel og var prófað að senda bæði orð og kallmerki, punkta og kommur. Skemmtilegt dæmi um gott samstarf á milli félagsmanna.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2025-01-19 09:21:472025-01-19 09:23:01OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 23. JANÚAR
CQ 160-METER CONTEST, CW. Keppnin stendur yfir frá föstudegi 24. janúar kl. 22:00 til sunnudags 26. janúar kl. 22:00. Hún fer fram á morsi á 160 metrum. Skilaboð W/VE stöðva: RST + (ríki í USA/fylk í Kanada). Skilaboð annarra: RST + CQ svæði. https://www.cq160.com/rules.htm
REF CONTEST, CW. Keppnin stendur yfir frá laugardegi 25. janúar kl. 06:00 til sunnudags 26. janúar kl. 18:00. Hún fer fram á morsi á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð franskra stöðva: RST + (2 bókstafir „Department“/Forskeyti). Skilaboð annarra: RST + raðnúmer. https://concours.r-e-f.org/reglements/actuels/reg_cdfhfdx.pdf
UBA DX CONTEST, SSB. Keppnin stendur yfir frá laugardegi 25. janúar kl. 13:00 til sunnudags 26. janúar kl. 13:00. Hún fer fram á SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð belgískra stöðva: RST + raðnúmer + 2 bókstafir fyrir landsvæði. Skilaboð annarra: RST + raðnúmer. https://www.uba.be/en/hf/contest-rules/uba-dx-contest
AUSTRALIA DAY CONTEST. Keppnin stendur yfir frá laugardegi 25. janúar kl. 22:00 til sunnudags 26. janúar kl. 10:00. Hún fer fram á morsi, tali og stafrænum teg. útgeislunar á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + 4 stafa Maidenhead reitur (e. grid square). https://www.wia.org.au/members/contests/australiaday/index.php
ALÞJÓÐLEGAR KEPPNIR 8.-9. FEBRÚAR.
CQ WW RTTY WPX CONTEST.
Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 00:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 23:59.
Hún fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.
https://cqwpxrtty.com/rules.htm
FISTS SATURDAY SPRINT CW CONTEST.
Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 00:00 til kl. 23:59.
Hún fer fram á CW á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð FISTS félaga: RST + nafn + FISTS nr. + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining).
Skilaboð annarra: RST + nafn + „0“ + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining).
https://fistsna.org/operating.php#sprints
SKCC WEEKEND SPRINTATHON CW CONTEST.
Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 24:00.
Hún fer fram á CW á 160, 80, 40. 20, 15, 10 og 6 metrum.
Skilaboð: RST + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining) + nafn + (SKCC nr./“NONE“)
https://www.skccgroup.com/operating_activities/weekend_sprintathon
KCJ TOPBAND CONTEST, CW.
Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 12:00.
Hún fer fram á CW á 160 metrum.
Skilaboð JA stöðva: RST + 2 bókstafir fyrir stjórnsýslusvæði.
Skilaboð annarra: RST + CQ svæði.
https://kcj-cw.com/j_index.htm
DUTCH PACC CONTEST.
Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 12:00.
Hún fer fram á CW og SSB á 160, 80, 40. 20, 15 og 10.
Skilaboð PA stöðva: RS(T) + 2 bókstafir fyrir landssvæði í Hollandi.
Skilaboð annarra: RS(T) + raðnúmer.
https://www.veron.nl/vereniging/commissies-en-werkgroepen/traffic-bureau/hf-contesten/pacc-contest
F9AA CUP CONTEST.
Keppnin stendur yfir laugardag 8. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 9. febrúar kl. 12:00.
Hún fer fram á CW á 80, 40. 20, 15, 10 og 2 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.
https://www.site.urc.asso.fr/index.php/om-yl/concours/trophee-f9aa
AÐALFUNDUR ÍRA 2025 – FUNDARBOÐ
Ágæti félagsmaður!
Með tilvísan til 17. gr. félagslaga, er hér með boðað til aðalfundar ÍRA sunnudaginn 16. febrúar 2025.
Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 14:00.
Dagskrá er samkvæmt 19. gr. félagslaga.
Nánar er vísað í fundarboð sem birt var í 1. tbl. CQ TF 2025 og sent var í tölvupósti til allra félagsmanna 26. janúar s.l.
Reykjavík 1. febrúar 2025,
f.h. stjórnar ÍRA,
Jónas Bjarnason, TF3JB
formaður
LOKAÐ Í SKELJANESI 30. JANÚAR
Eftir samráð innan stjórnar, hefur verið ákveðið að félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verði lokuð í kvöld, fimmtudag 30. janúar.
Ákvörðunin er tekin í ljósi mikillar ófærðar á svæðinu og áframhaldandi óvissu um veður og færð þegar líða tekur nær kvöldi.
Félagsaðstaðan í Skeljanesi verður næst opin fimmtudag 6. febrúar n.k.
Stjórn ÍRA.
Suðaustanhríðarveður (Gult ástand). 30 jan. kl. 10:00 – 18:00. Suðaustan 15-23 m/s með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni á fjallvegum, t.d. á Hellis- og Mosfellsheiði. Einnig búist við talsverðri hálku. Varasamt ferðaveður.
MÓTTAKA FYRIR NÝJA LEYFISHAFA Í SKELJANESI.
Næsta röð: Daníel Smári Hlynsson TF3GOD, Birgir Freyr Birgisson TF3BF, Róbert Svansson TF3RS og Ríkharður Þórsson TF8RIX.
Næst aftasta röð: Óskar Ólafur Hauksson TF3OH, Guðjón Már Gíslason TF3GMG og Sveinn Goði Sveinsson TF3ID.
Aftasta röð: Mathías Hagvaag TF3MH, Yngvi Harðarson TF3Y og Andrés Þórarinsson TF1AM. Ljósmynd: TF3KB.
Laugardaginn 25. janúar var móttaka fyrir nýja leyfishafa sem sem tóku þátt í námskeiði ÍRA til amatörprófs haustið 2024 og náðu prófi Fjarskiptastofu til amatörleyfis 2. nóvember s.l. Allir 14 hafa fengið úthlutað kallmerki hjá stofnuninni. Dagskráin var vel sótt; allir þeir nýliðar sem áttu heimangengt komu, alls 9 manns.
Birgir Freyr Birgisson, TF3BF;
Daníel Smári Hlynsson, TF3GOD;
Guðjón Már Gíslason, TF3GMG;
Gunnar B. Guðlaugsson, TF5NN;
Helgi Gunnarsson, TF3HG;
Óskar Ólafur Hauksson, TF3OH;
Ríkharður Þórsson, TF8RIX,
Róbert Svansson, TF3RS og
Sæmundur Árnason, TF3NEI.
Erindi fluttu þessir:
Yngvi Harðarson, TF3Y um aðstöðu félagsins í Skeljanesi og um starf ÍRA, (m.a. um fræðsludagskrá, fundi og námskeið (þ.m.t. til amatörprófs), heimasíðu, FaceBook síður, félagsritið CQ TF, ársskýrslu, árlega fjarskiptaviðburði, alþjóðlegar keppnir, endurvarpa, stafvarpa, radíóvita, gervihnattafjarskipti og helstu innanlandstíðnir á HF, VHF og UHF.
Kristján Benediktsson TF3KB tók síðan við og flutti glærukynningu og kynnti alþjóðastarf radíóamatöra, m.a. um IARU, NRAU og ITU. Undir dagskárliðnum fór fram afhending ítarefnis, þ.e. listi yfir valdar greinar sem birst hafa í CQ TF (einkum árin 2018-2024).
Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS fjallaði um loggforrit, mikilvægi þeirra og möguleika og tók sem dæmi Logger32 rafræna dagbókarforritið sem hann sýndi með skjávörpunni. Síðan fjallaði hann almennt um QSL kort, notkun þeirra og sýndi sem dæmi ýmis kort frá sér og öðrum.
Eftir kaffi og spjall var farið upp í fjarskiptaherbergi þar sem Vilhjálmur og fleiri kynntu nýliðum tækin og útskýrðar voru hefðir í fjarskiptum radíóamatöra; hvernig farið er að því að hafa samband á SSB, og síðan fóru þeir allir níu í loftið, hver af fætur öðrum, og tóku nokkur sambönd hver á 10 metra bandinu. Ennfremur ræddi TF3KB bandskipan. Þetta var mjög vel heppnað.
Á eftir var farið í fundarsalinn, bætt á með kaffi. Þar sýndi Vilhjálmur, TF3VS hvernig FT8 fjarskipti fara fram. Til þess notaði hann tölvu og framendann/stjórnborðið á FlexRadio 6600 stöð (Maestro Control Console) sem gerði honum kleift að vera í fjarsambandi yfir netið við stöðvarhlutann heima í Kópavogi. Þetta heppnaðist vel og spunnust fjörugar umræður.
Þegar klukkan var að verða 15:00 var húsið yfirgefið. Ánægjulegur og vel heppnaður dagur. Þökk sé öllum fyrirlesurum, Andrési Þórarinssyni, TF1AM varaformanni fyrir að fyrir að stjórna dagskrá dagsins af röggsemi og Matthíasi TF3MH fyrir húsgæsluna og Sveini Goða TF3ID fyrir veitingar.
Stjórn ÍRA.
NÝTT CQ TF ER KOMIÐ ÚT.
Ágætu félagsmenn!
Mér er ánægja að tilkynna um útkomu félagsblaðsins okkar CQ TF, 1. tbl. 2025 í dag, 26. janúar.
Blaðið er vistað á stafrænu formi á heimasíðu félagsins og má sækja það af vefslóðinni hér að neðan.
Vefslóð: https://tinyurl.com/CQTF-2025-1
73 – Sæmi, TF3UA
ritstjóri CQ TF
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 30. JANÚAR.
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 30. janúar fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00 til kl. 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Góður félagsskapur og nýjustu amatörtímaritin. Kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
ALÞJÓÐLEGAR KEPNIR 1.-2. FEBRÚAR.
LABRE-RS Digi Contest.
Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 00:00 til sunnudags 2. febrúar kl. 20:59.
Hún fer fram á FT4 og FT8 Digi á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: 4 stafa Maidenhead reitur (e. grid square).
http://labre-rs.org.br/labre-rs-digi-contest/
10-10 Int. Winter Contest, SSB.
Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 00:01 til sunnudags 2. febrúar kl. 23:59.
Hún fer fram á SSB á 10 metrum.
Skilaboð 10-10 félaga: Nafn + 10-10 fél.númer + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining).
Skilaboð annarra: Nafn + 0 + (ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining).
https://www.ten-ten.org/index.php/activity/2013-07-22-20-26-48/qso-party-rules
Mexico RTTY International Contest.
Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 2. febrúar kl. 23:59.
Hún fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð stöðva í Mexíkó: RST + fylki í Mexíkó.
Skilaboð annarra: RST og raðnúmer.
https://rtty.fmre.mx
European Union DX Contest.
Keppnin stendur yfir laugardag 1. febrúar kl. 12:00 til sunnudags 2. febrúar kl. 12:00.
Hún fer fram á RTTY á CW og SSB á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð stöðva í Evrópusambandinu: RS(T) + 2 bókstafir og 2 tölustafir (sjá lið 7 í reglum).
Skilaboð annarra: RS(T) + ITU svæði (TF = 17).
http://www.eudx-contest.com/rules/?doing_wp_cron=1737718456.4802460670471191406250
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
ALLS ERU KOMIN 14 NÝ KALLMERKI
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis var haldið Í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 2. nóvember 2024.
Allir þeir 14 sem stóðust prófið hafa nú sótt um og fengið úthlutað kallmerki hjá Fjarskiptastofu, þann 21. janúar 2025 samkvæmt neðangreindum lista:
Albert Snær Guðmundsson, 200 Kópavogi – TF3GHP.
Birgir Freyr Birgisson, 110 Reykjavík – TF3BF.
Daníel Smári Hlynsson, 200 Kópavogur – TF3GOD.
Emill Fjóluson Thoroddsen, 105 Reykjavík – TF5EFT.
Guðjón Már Gíslason, 200 Kópavogi – TF3GMG.
Gunnar Bjarki Guðlaugsson, 220 Hafnarfirði – TF5NN.
Gunnar Bjarni Ragnarsson, 104 Reykjavík – TF3GBR.
Helgi Gunnarsson, 220 Hafnarfirði – TF3HG.
Jón Atli Magnússon, 220 Hafnarfirði – TF2AC.
Óskar Ólafur Hauksson, 210 Garðabæ – TF3OH.
Ríkharður Þórsson, 112 Reykjavík – TF8RIX.
Róbert Svansson, 109 Reykjavík – TF3RS.
Sæmundur Árnason, 112 Reykjavík – TF3NEI.
Nýir leyfishafar eru boðnir velkomnir í loftið!
Þess má geta, að ÍRA verður með sérstaka móttöku og dagskrá fyrir hópinn laugardaginn 25. janúar kl. 10 árdegis í félagsaðstöðunni í Skeljanesi
Stjórn ÍRA.
UPPHAF ÚTVARPS Á ÍSLANDI.
Sigurður Harðarson, TF3WS hefur uppfært eldra efni um upphaf útvarps á Íslandi og gefið út í nýjum bæklingi. Bæklingurinn er 100 ára saga útvarps á Íslandi og hefur fengið nýtt nafn og breyst mikið með nýjum upplýsingum, En fyrsta formlega útsending útvarpsstöðvar hér á landi var 18. mars 1926.
Siggi segir m.a. „Í þessari nýju útgáfu er miklu nákvæmari lýsing á hvernig staðið var að uppsetningu fyrstu stöðvanna og t.d. saga Gook á Akureyri og fleira“. Vefslóð: http://www.ira.is/tf3ws-upphaf-utvarps-a-islandi/
Bæklingurinn er allur hinn glæsilegasti og er alls 43 bls. að stærð, vel myndskreyttur og má m.a. sjá efni sem birtist í 2. tbl. CQ TF 2018 og endurprentun greinar Sigurbjörns Þórs Bjarnasonar, TF3SB þáverandi ritstjóra CQ TF: „Loftskeytastöðin á Melunum“ en stöðin átti einmitt 100 ára afmæli 2018. Þakkir til Sigga Harðar að taka saman þetta áhugaverða efni.
Stjórn ÍRA.
NÝR RÓTOR Í MASTRIÐ Í SKELJANESI.
Í dag, sunnudaginn 19. janúar 2025, þá mættu þessir „snillar“ vestur í Skeljanes til að koma stóru greiðunni aftur í gang. Veður var kalt og vindur, en þeir luku þessu með miklum ágætum.
Þetta eru þeir Georg Kulp TF3GZ og Sigurður R Jakobsson TF3CW sem hér sjást kuldalega klæddir. Þeir eru nýbúnir að ná niður gamla bilaða rótórnum sem þeir halda hér á, og undirbúa sig undir að setja nýjan rótor í staðinn og nýja hreyfanlega fæðilínu.
Það var unnið í skotbómulyftara í 20 m. hæð og þar vaggar allt og hreyfist, og það er kalt, og það er hvasst, og það þarf að hluta til að vinna berhentur. Niðri á jafnsléttu fylgdust með þeir Georg Magnússon TF2LL, Benedikt Sveinsson TF3T og Sveinn Goði TF3ID, já og hundurinn Skíma reyndist jafn áhugasöm og þeir strákarnir. (Texti og ljósmyndir: Andrés Þórarinsson, TF1AM)
UMSÖGN TF3CW: „Þetta gekk ljúft með góðra manna aðstoð….Algert lykilatriði er að hafa vanan skotbómustjóra á tökkunum, og þar höfum við Georg Kulp…sem hefur meira að segja kennsluréttindi á svona græjur…! Georg Magnússon var við stjórnvölin í „sjakknum“, og fínstillti stefnuna á rótornum…. Svo voru það Andrés og Sveinn Goði sem helltu uppá kaffið og kom svo ekki Andrés með heimabakaðar lummur og túnfisksalat í ofanálag…! Lífið er gott…!!“.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 23. JANÚAR
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudag 23. janúar fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00 til kl. 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Góður félagsskapur og nýjustu amatörtímaritin.
Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið og flokka kortasendingar. Sveinn Goði Sveinsson, TF3ID lagar kaffið og tekur fram meðlæti.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
Sigurður leitaði til nokkurra félagsmanna sem og til félagsins. Til að gera langa sögu stutta, komst hann í samband við Hrafnkel Sigurðsson, TF8KY (fyrir milligöngu Guðmundar Inga Hjálmtýssonar, TF3IG) og smíðaði Hrafnkell morsþýðara og gerði kláran. Þess má geta að hann hafði áður smíðað svipað/samskonar tæki fyrir Guðmund Inga.
Á myndinni er Siggi að stilla „morsþýðarann“ í fjarskiptaherbergi TF3IRA í Skeljanesi 11. Október 2021. Lítill skjár er „monteraður“ á kassann með stillitökkum. Síðan var morsað með handlyklinum og „Voila!“ stafirnir birtust á skjá tölvunnar sem og á litlum skjá á tækinu sjálfu. Tækið virkar vel og var prófað að senda bæði orð og kallmerki, punkta og kommur. Skemmtilegt dæmi um gott samstarf á milli félagsmanna.
ALÞJÓÐLEGAR KEPPNIR 24.-26. JANÚAR
CQ 160-METER CONTEST, CW.
Keppnin stendur yfir frá föstudegi 24. janúar kl. 22:00 til sunnudags 26. janúar kl. 22:00. Hún fer fram á morsi á 160 metrum.
Skilaboð W/VE stöðva: RST + (ríki í USA/fylk í Kanada).
Skilaboð annarra: RST + CQ svæði.
https://www.cq160.com/rules.htm
REF CONTEST, CW.
Keppnin stendur yfir frá laugardegi 25. janúar kl. 06:00 til sunnudags 26. janúar kl. 18:00.
Hún fer fram á morsi á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð franskra stöðva: RST + (2 bókstafir „Department“/Forskeyti).
Skilaboð annarra: RST + raðnúmer.
https://concours.r-e-f.org/reglements/actuels/reg_cdfhfdx.pdf
BARTG RTTY SPRINT CONTEST.
Keppnin stendur yfir frá laugardegi 25. janúar kl. 12:00 til sunnudags 26. janúar kl. 12:00.
Hún fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.
http://bartg.org.uk/wp/bartg-sprint-contest/
UBA DX CONTEST, SSB.
Keppnin stendur yfir frá laugardegi 25. janúar kl. 13:00 til sunnudags 26. janúar kl. 13:00.
Hún fer fram á SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð belgískra stöðva: RST + raðnúmer + 2 bókstafir fyrir landsvæði.
Skilaboð annarra: RST + raðnúmer.
https://www.uba.be/en/hf/contest-rules/uba-dx-contest
AUSTRALIA DAY CONTEST.
Keppnin stendur yfir frá laugardegi 25. janúar kl. 22:00 til sunnudags 26. janúar kl. 10:00.
Hún fer fram á morsi, tali og stafrænum teg. útgeislunar á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + 4 stafa Maidenhead reitur (e. grid square).
https://www.wia.org.au/members/contests/australiaday/index.php
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.