http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-28 10:36:252022-05-28 10:37:37VEGGJAKROT Í SKELJANESI
Töluvert af radíódóti hefur borist til ÍRA undanfarið. Um er að ræða hluti frá þeim Sigurði Harðarsyni TF3WS, Hans Konrad Kristjánssyni TF3FG og Ara Þórólfi Jóhannessyni TF1A, samanber meðfylgjandi ljósmyndir.
Félagsmenn geta nálgast dótið frá og með næsta opnunarkvöldi félagsaðstöðunnar í Skeljanesi, fimmtudaginn 2. júní n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-27 13:56:262022-05-27 14:00:16RADÍÓDÓT HEFUR BORIST TIL FÉLAGSINS
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis var haldið 21. maí s.l. á þremur stöðum á landinu. Eftirtaldir nýir leyfishafar hafa sótt um og fengið úthlutað kallmerkjum:
KiwiSDR viðtækið yfir netið sem er staðsett á Raufarhöfn varð QRV á ný í dag (25. maí). Viðtækið hafði verið úti í nokkra daga því skipta þurfti um netbúnað vegna bilunar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-25 20:53:562022-05-25 20:56:24RAUFARHÖFN QRV Á NÝ
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis fór fram í Háskólanum í Reykjavík, á Sauðárkróki og á Raufarhöfn laugardaginn 21. maí.
Alls þreyttu tólf prófið. Í raffræði og radíótækni náðu 11 fullnægjandi árangri, 9 til G-leyfis og 2 til N-leyfis. Í Reglum og viðskiptum náðu allir 12 þátttakendur fullnægjandi árangri, þar af 10 til G-leyfis og 2 til N-leyfis.
Antonia Sabrina Stevens, 200 Kópavogur (G-leyfi). Ágúst Sigurjónsson, 221 Hafnarfjörður (G-leyfi). Björn Ingi Jónsson, 860 Hvolsvöllur (G-leyfi). Fannar Freyr Jónsson, 105 Reykjavík (G-leyfi). Grímur Snæland Sigurðsson, 270 Mosfellsbær (N-leyfi). Guðmundur V. Einarsson, 111 Reykjavík (G-leyfi). Júlía Guðmundsdóttir, 102 Reykjavík (G-leyfi). Jón Páll Fortune, 105 Reykjavík (G-leyfi). Kristján Gunnarsson, 550 Sauðárkrókur (G-leyfi). Ómar Örn Sæmundsson, 111 Reykjavík (G-leyfi). Sævar Örn Eiríksson, 815 Þorlákshöfn (N-leyfi).
Viðkomandi eru þessa dagana að senda umsóknir til Fjarskiptastofu um kallmerki. Upplýsingar um úthlutuð kallmerki verða birtar fljótlega.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-24 13:35:572022-05-24 13:39:09NIÐURSTAÐA ÚR PRÓFI TIL AMATÖRLEYFIS
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-24 07:46:222022-05-24 07:47:23NÆST OPIÐ Í SKELJANESI 2. JÚNÍ
CQ World Wide WPX keppnin – morshluti, fer fram um helgina. Þetta er 2 sólarhringa keppni helgina 28.-29. mars sem fer fram á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Markmiðið er að hafa sambönd á keppnistímanum við kallmerki með eins mörgum mismunandi forskeytum og frekast er unnt (VK1, VK2 o.s.frv.). Munur er gerður á stigagjöf eftir böndum, þ.e. QSO á milli meginlanda (e. continents) á 28, 21 og 14 MHz gefa 3 stig en 6 stig á 7, 3.5 og 1.8 MHz. Hvert forskeyti telst til margfaldara einu sinni – burtséð frá böndum.
Sjö TF kallmerki sendu inn keppnisgögn í fyrra (2021).
Próf Fjarskiptastofu (FST) til amatörleyfis fór fram í Reykjavík, Sauðárkróki og Raufarhöfn laugardaginn 21. maí.
Prófnefnd ÍRA annaðist framkvæmd í Reykjavík að viðstöddum fulltrúa Fjarskiptastofu, en Sigurður Sigurðsson, TF9SSB og Olga Friðriksdóttir önnuðust framkvæmd á Sauðárkróki og á Raufarhöfn. Prófað var í Raffræði og radíótækni og Reglum og viðskiptum. Prófið hófst kl. 10 árdegis og lauk með prófsýningu kl. 15. Bæði prófin voru skrifleg.
Alls þreyttu 12 prófið. Í raffræði og radíótækni náðu 11 fullnægjandi árangri, 9 til G-leyfis og 2 til N-leyfis. Í Reglum og viðskiptum náðu allir 12 þátttakendur fullnægjandi árangri, þar af 10 til G-leyfis og 2 til N-leyfis. Nánarverður skýrt frá niðurstöðum á heimasíðu ÍRA strax og þær berast frá FST í byrjun næstu viku.
Fulltrúar prófnefndar í Háskólanum í Reykjavík: Kristinn Andersen, TF3KX formaður, Einar Kjartansson TF3EK og Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Fulltrúi Fjarskiptastofu: Bjarni Sigurðsson, verkfræðingur. Fulltrúar stjórnar: Jón Björnsson, TF3PW umsjónarmaður námskeiða ÍRA og Jónas Bjarnason, TF3JB formaður ÍRA.
Stjórn ÍRA færir Jóni Björnssyni, TF3PW umsjónarmanni námskeiðsins og leiðbeinendum þakkir fyrir vel unnin störf. Það sama á við um Kristinn Andersen, TF3KX formann prófnefndar og prófnefndarmenn, sem sinntu störfum faglega og af alúð. Þá er Bjarna Sigurðssyni, sérfræðingi hjá Fjarskiptastofu þökkuð fagleg aðkoma að verkefninu.
Síðast, en ekki síst, innilegar hamingjuóskir til nýrra leyfishafa.
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis verður haldið í Háskólanum í Reykjavík, Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki og Grunnskóla Raufarhafnar á Raufarhöfn, laugardaginn 21. maí samkvæmt eftirfarandi:
10:00 – 12:00 Raffræði og radíótækni. 13:00 – 14:00 Reglur og viðskipti. 14:30 – Prófsýning.
Alls hafa 14 þátttakendur (af nítján skráðum) staðfest þátttöku í prófi FST sem hvorutveggja er í boði á íslensku og ensku.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-20 15:09:052022-05-20 15:09:25PRÓF TIL AMATÖRLEYFIS 21. MAÍ
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 19. maí.
Skemmtilegt kvöld og góðar umræður á báðum hæðum. Sérstakur gestur félagsins var Helgi Jóhannesson, rafeindavirki á Akureyri. Hann á m.a. eitthvert stærsta safn útvarpsviðtækja hér á landi.
Mikið var rætt um heimasmíðar, tækin, skilyrðin, loftnet og búnað, m.a. RF magnara. Einnig rætt um CQ WW WPX keppnina á morsi sem nálgast, verður 28.-29. maí n.k.
Vel heppnað fimmtudagskvöld í hlýju vorveðri í vesturbænum í Reykjavík. Alls 20 félagar og 1 gestur í húsi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-20 12:52:112022-05-20 12:54:10FRÁ OPNUN Í SKELJANESI 19. MAÍ
Próf Fjarskiptastofu (FST) til amatörleyfis verður haldið í Háskólanum í Reykjavík, í Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki og í Grunnskóla Raufarhafnar á Raufarhöfn, laugardaginn 21. maí. Prófið hefst kl. 10 árdegis og er í boði á íslensku og ensku.
Prófið er opið öllum og því ekki nauðsynlegt að hafa setið námskeið til undirbúnings. Fyrirspurnir eru velkomnar á netfangið ira(hjá)ira.is Aðrir en þeir sem hafa setið yfirstandandi námskeið félagsins eru beðnir um að skrá sig hjá ÍRA í tölvupósti ekki síðar en í dag, 18. maí.
Eftirfarandi úrræði (annað eða hvoru tveggja) eru í boði ef um þau er beðið ekki síðar en í dag, 18. maí: (a) Litaður pappír, fölgrænn eða drapplitur og (b) stækkun í A3. Senda þarf tölvupóst á Kristinn Andersen TF3KX: kristinn1(hjá)gmail.com
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2022-05-18 10:51:192022-05-18 18:28:03AMATÖRPRÓF Á LAUGARDAG
Próf Fjarskiptastofu (FST) til amatörleyfis verður haldið í stofu HR V107 í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 21. maí 2022, samkvæmt eftirfarandi:
10:00 – 12:00 Raffræði og radíótækni. 13:00 – 14:00 Reglur og viðskipti. 14:30 – Prófsýning.
Prófið er opið öllum og því ekki er nauðsynlegt að hafa setið námskeið til undirbúnings. Fyrirspurnir eru velkomnar á netfangið ira(hjá)ira.is Aðrir en þeir sem hafa setið yfirstandandi námskeið félagsins eru beðnir um að skrá sig hjá ÍRA í tölvupósti ekki síðar en 18. maí.
Prófað verður bæði á íslensku og ensku. Komið verður til móts við þátttakendur úti á landi með prófstað í (eða nærri) heimabyggð.
Eftirfarandi úrræði (annað eða hvoru tveggja) eru í boði ef um þau er beðið ekki síðar en 18. maí: (a) Litaður pappír, fölgrænn eða drapplitur og (b) stækkun í A3. Senda þarf tölvupóst á Kristinn Andersen TF3KX: kristinn1(hjá)gmail.com
1) Notið einfaldar reiknivélar, sem augljóslega geta ekki geymt gögn. 2) Hafið með ykkur blýanta, strokleður og reglustiku (!) sem hentar reiknigrafi. 3) Endanleg einkunn kemur frá PFS á uppgefið netfang, annars heimilisfang. 4) Gætið þess að hvoru tveggja sé greinilega skrifað. 5) Rissblöðum er ekki útbýtt, notið auðu hliðar prófblaðanna.
VEGGJAKROT Í SKELJANESI
Nýtt veggjakrot er komið á langa bárujárnsvegginn við húsið í Skeljanesi.
Um tveir mánuðir eru liðnir frá því málað var yfir “listaverk” af þessu tagi síðast.
Málað verður yfir ófögnuðinn við fyrsta tækifæri.
Stjórn ÍRA.
RADÍÓDÓT HEFUR BORIST TIL FÉLAGSINS
Töluvert af radíódóti hefur borist til ÍRA undanfarið. Um er að ræða hluti frá þeim Sigurði Harðarsyni TF3WS, Hans Konrad Kristjánssyni TF3FG og Ara Þórólfi Jóhannessyni TF1A, samanber meðfylgjandi ljósmyndir.
Félagsmenn geta nálgast dótið frá og með næsta opnunarkvöldi félagsaðstöðunnar í Skeljanesi, fimmtudaginn 2. júní n.k.
Bestu þakkir til viðkomandi.
Stjórn ÍRA.
NÝ KALLMERKI
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis var haldið 21. maí s.l. á þremur stöðum á landinu. Eftirtaldir nýir leyfishafar hafa sótt um og fengið úthlutað kallmerkjum:
Fannar Freyr Jónsson, TF3FA (Reykjavík).
Grímur Snæland Sigurðsson, TF3GSS (Mosfellsbær).
Guðmundur Veturliði Einarsson, TF3VL (Reykjavík).
Júlía Guðmundsdóttir, TF3JG (Reykjavík).
Kristján Gunnarsson, TF9ZG (Sauðárkróki).
Ómar Örn Sæmundsson, TF1OS (Reykjavík).
Sævar Örn Eiríksson, TF1SAB (Þorlákshöfn).
Innilegar hamingjuóskir og velkomin í loftið!
Stjórn ÍRA.
RAUFARHÖFN QRV Á NÝ
KiwiSDR viðtækið yfir netið sem er staðsett á Raufarhöfn varð QRV á ný í dag (25. maí). Viðtækið hafði verið úti í nokkra daga því skipta þurfti um netbúnað vegna bilunar.
Raufarhöfn (10 kHz-30 MHz). Vefslóð: http://raufarhofn.utvarp.com/
Þakkir til Ara Þórólfs Jóhannessonar TF1A, Georgs Kulp TF3GZ og Rögnvaldar Helgasonar TF3-Ø55 fyrir að leiða verkefnið í höfn.
Stjórn ÍRA.
–
NIÐURSTAÐA ÚR PRÓFI TIL AMATÖRLEYFIS
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis fór fram í Háskólanum í Reykjavík, á Sauðárkróki og á Raufarhöfn laugardaginn 21. maí.
Alls þreyttu tólf prófið. Í raffræði og radíótækni náðu 11 fullnægjandi árangri, 9 til G-leyfis og 2 til N-leyfis. Í Reglum og viðskiptum náðu allir 12 þátttakendur fullnægjandi árangri, þar af 10 til G-leyfis og 2 til N-leyfis.
Antonia Sabrina Stevens, 200 Kópavogur (G-leyfi).
Ágúst Sigurjónsson, 221 Hafnarfjörður (G-leyfi).
Björn Ingi Jónsson, 860 Hvolsvöllur (G-leyfi).
Fannar Freyr Jónsson, 105 Reykjavík (G-leyfi).
Grímur Snæland Sigurðsson, 270 Mosfellsbær (N-leyfi).
Guðmundur V. Einarsson, 111 Reykjavík (G-leyfi).
Júlía Guðmundsdóttir, 102 Reykjavík (G-leyfi).
Jón Páll Fortune, 105 Reykjavík (G-leyfi).
Kristján Gunnarsson, 550 Sauðárkrókur (G-leyfi).
Ómar Örn Sæmundsson, 111 Reykjavík (G-leyfi).
Sævar Örn Eiríksson, 815 Þorlákshöfn (N-leyfi).
Viðkomandi eru þessa dagana að senda umsóknir til Fjarskiptastofu um kallmerki. Upplýsingar um úthlutuð kallmerki verða birtar fljótlega.
Innilegar hamingjuóskir og velkomin í loftið!
Stjórn ÍRA.
NÆST OPIÐ Í SKELJANESI 2. JÚNÍ
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður lokuð fimmtudaginn 26. maí sem er uppstigningadagur.
Næsti opnunardagur félagsaðstöðunnar verður fimmtudaginn 2. júní n.k. kl. 20-22.
Stjórn ÍRA.
CQ WW WPX KEPPNIN Á MORSI
CQ World Wide WPX keppnin – morshluti, fer fram um helgina. Þetta er 2 sólarhringa keppni helgina 28.-29. mars sem fer fram á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz.
Markmiðið er að hafa sambönd á keppnistímanum við kallmerki með eins mörgum mismunandi forskeytum og frekast er unnt (VK1, VK2 o.s.frv.). Munur er gerður á stigagjöf eftir böndum, þ.e. QSO á milli meginlanda (e. continents) á 28, 21 og 14 MHz gefa 3 stig en 6 stig á 7, 3.5 og 1.8 MHz. Hvert forskeyti telst til margfaldara einu sinni – burtséð frá böndum.
Sjö TF kallmerki sendu inn keppnisgögn í fyrra (2021).
Vefslóð á keppnisreglur: https://www.cqwpx.com/rules.htm
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
PRÓF FJARSKIPTASTOFU 21. MAÍ
Próf Fjarskiptastofu (FST) til amatörleyfis fór fram í Reykjavík, Sauðárkróki og Raufarhöfn laugardaginn 21. maí.
Prófnefnd ÍRA annaðist framkvæmd í Reykjavík að viðstöddum fulltrúa Fjarskiptastofu, en Sigurður Sigurðsson, TF9SSB og Olga Friðriksdóttir önnuðust framkvæmd á Sauðárkróki og á Raufarhöfn. Prófað var í Raffræði og radíótækni og Reglum og viðskiptum. Prófið hófst kl. 10 árdegis og lauk með prófsýningu kl. 15. Bæði prófin voru skrifleg.
Alls þreyttu 12 prófið. Í raffræði og radíótækni náðu 11 fullnægjandi árangri, 9 til G-leyfis og 2 til N-leyfis. Í Reglum og viðskiptum náðu allir 12 þátttakendur fullnægjandi árangri, þar af 10 til G-leyfis og 2 til N-leyfis. Nánar verður skýrt frá niðurstöðum á heimasíðu ÍRA strax og þær berast frá FST í byrjun næstu viku.
Fulltrúar prófnefndar í Háskólanum í Reykjavík: Kristinn Andersen, TF3KX formaður, Einar Kjartansson TF3EK og Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Fulltrúi Fjarskiptastofu: Bjarni Sigurðsson, verkfræðingur. Fulltrúar stjórnar: Jón Björnsson, TF3PW umsjónarmaður námskeiða ÍRA og Jónas Bjarnason, TF3JB formaður ÍRA.
Stjórn ÍRA færir Jóni Björnssyni, TF3PW umsjónarmanni námskeiðsins og leiðbeinendum þakkir fyrir vel unnin störf. Það sama á við um Kristinn Andersen, TF3KX formann prófnefndar og prófnefndarmenn, sem sinntu störfum faglega og af alúð. Þá er Bjarna Sigurðssyni, sérfræðingi hjá Fjarskiptastofu þökkuð fagleg aðkoma að verkefninu.
Síðast, en ekki síst, innilegar hamingjuóskir til nýrra leyfishafa.
Stjórn ÍRA.
PRÓF TIL AMATÖRLEYFIS 21. MAÍ
Próf Fjarskiptastofu til amatörleyfis verður haldið í Háskólanum í Reykjavík, Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki og Grunnskóla Raufarhafnar á Raufarhöfn, laugardaginn 21. maí samkvæmt eftirfarandi:
10:00 – 12:00 Raffræði og radíótækni.
13:00 – 14:00 Reglur og viðskipti.
14:30 – Prófsýning.
Alls hafa 14 þátttakendur (af nítján skráðum) staðfest þátttöku í prófi FST sem hvorutveggja er í boði á íslensku og ensku.
Bestu óskir um gott gengi.
Stjórn ÍRA.
FRÁ OPNUN Í SKELJANESI 19. MAÍ
Opið hús var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 19. maí.
Skemmtilegt kvöld og góðar umræður á báðum hæðum. Sérstakur gestur félagsins var Helgi Jóhannesson, rafeindavirki á Akureyri. Hann á m.a. eitthvert stærsta safn útvarpsviðtækja hér á landi.
Mikið var rætt um heimasmíðar, tækin, skilyrðin, loftnet og búnað, m.a. RF magnara. Einnig rætt um CQ WW WPX keppnina á morsi sem nálgast, verður 28.-29. maí n.k.
Vel heppnað fimmtudagskvöld í hlýju vorveðri í vesturbænum í Reykjavík. Alls 20 félagar og 1 gestur í húsi.
Stjórn ÍRA.
AMATÖRPRÓF Á LAUGARDAG
Próf Fjarskiptastofu (FST) til amatörleyfis verður haldið í Háskólanum í Reykjavík, í Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki og í Grunnskóla Raufarhafnar á Raufarhöfn, laugardaginn 21. maí. Prófið hefst kl. 10 árdegis og er í boði á íslensku og ensku.
Prófið er opið öllum og því ekki nauðsynlegt að hafa setið námskeið til undirbúnings. Fyrirspurnir eru velkomnar á netfangið ira(hjá)ira.is Aðrir en þeir sem hafa setið yfirstandandi námskeið félagsins eru beðnir um að skrá sig hjá ÍRA í tölvupósti ekki síðar en í dag, 18. maí.
Eftirfarandi úrræði (annað eða hvoru tveggja) eru í boði ef um þau er beðið ekki síðar en í dag, 18. maí: (a) Litaður pappír, fölgrænn eða drapplitur og (b) stækkun í A3. Senda þarf tölvupóst á Kristinn Andersen TF3KX: kristinn1(hjá)gmail.com
Með ósk um gott gengi,
Stjórn ÍRA.
AMATÖRPRÓF LAUGARDAGINN 21. MAÍ
Próf Fjarskiptastofu (FST) til amatörleyfis verður haldið í stofu HR V107 í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 21. maí 2022, samkvæmt eftirfarandi:
10:00 – 12:00 Raffræði og radíótækni.
13:00 – 14:00 Reglur og viðskipti.
14:30 – Prófsýning.
Prófið er opið öllum og því ekki er nauðsynlegt að hafa setið námskeið til undirbúnings. Fyrirspurnir eru velkomnar á netfangið ira(hjá)ira.is Aðrir en þeir sem hafa setið yfirstandandi námskeið félagsins eru beðnir um að skrá sig hjá ÍRA í tölvupósti ekki síðar en 18. maí.
Prófað verður bæði á íslensku og ensku. Komið verður til móts við þátttakendur úti á landi með prófstað í (eða nærri) heimabyggð.
Eftirfarandi úrræði (annað eða hvoru tveggja) eru í boði ef um þau er beðið ekki síðar en 18. maí: (a) Litaður pappír, fölgrænn eða drapplitur og (b) stækkun í A3. Senda þarf tölvupóst á Kristinn Andersen TF3KX: kristinn1(hjá)gmail.com
1) Notið einfaldar reiknivélar, sem augljóslega geta ekki geymt gögn.
2) Hafið með ykkur blýanta, strokleður og reglustiku (!) sem hentar reiknigrafi.
3) Endanleg einkunn kemur frá PFS á uppgefið netfang, annars heimilisfang.
4) Gætið þess að hvoru tveggja sé greinilega skrifað.
5) Rissblöðum er ekki útbýtt, notið auðu hliðar prófblaðanna.
Með ósk um gott gengi,
Prófnefnd ÍRA.