http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-01 18:19:222019-12-01 20:59:29OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 5. DESEMBER
Þátttakendum á yfirstandandi námskeiði ÍRA til amatörprófs bauðst að heimsækja félagsaðstöðuna í Skeljanesi laugardaginn 30. nóvember. Jón Björnsson, TF3PW, umsjónarmaður námskeiða félagsins, skipulagði daginn sem heppnaðist mjög vel.
Dagurinn hófst kl. 10 árdegis með stuttu ávarpi formanns. TF3JB
lýsti aðstöðu félagsins og helstu starfsþáttum sem standa félagsmönnum til
boða. Að því loknu tók varaformaður við. TF3DC fór með hópinn út í portið við
austurhlið hússins og lýsti loftnetakosti TF3IRA, þ.e. 4 staka YAGI loftneti á
20M og stangarloftneti á 10, 15, 20, 40 og 80M. VHF stjóri félagsins fylgdi
hópnum líka og lýsti TF1A m.a. loftnetum sem notast við gervihnattastöð TF3IRA á
2,4 og 10 GHz.
Þegar inn var komið á ný, bættu menn á sig kaffi og á meðan fjallaði
QSL stjóri félagsins um kortamál. TF3MH lýsti mikilvægi kortastofunnar og kynnti
samvinnu hennar við aðrar í landsfélögum radíóamatöra um heiminn. Þegar menn
færðu sig upp á efri hæðina sýndi hann jafnframt aðstöðu kortastofunnar, þar
sem hver leyfishafi hefur sitt eigið hólf.
Loks færðu menn sig yfir í fjarskiptaherbergi TF3IRA þar sem þeir TF3DC og TF1A tóku við á ný og var búnaður TF3IRA kynntur. TF3DC kynnti þau tvö fjarskiptaborð sem eru til afnota fyrir HF tíðnir og TF1A kynnti þriðja borðið, sem er fyrir sambönd um Es’hail/Oscar 100 gervitunglið. Skemmtilegar umræður fylgdu, enda kynntu þeir félagar marga forvitnilega og spennandi þætti fjarskiptanna og tilheyrandi búnað.
Þeir nemendur á námskeiði félagsins sem áttu heimangengt í Skeljanes þennan ágæta laugardag voru þeir Björgvin Víglundsson, Eiður Kristinn Magnússon TF3-Ø71, Gunnar Bergþór Pálsson TF3-Ø17, Sigurður Kolbeinsson TF3-Ø66 og Sveinn Aðalsteinsson.
Bestu óskir til þeirra og annarra þátttakenda á námskeiði
félagsins um gott gengi í prófi Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis
sem haldið verður í desember n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-30 19:28:572019-12-04 20:40:07GÓÐIR GESTIR Í SKELJANESI 30. NÓVEMBER
TF3DC, TF3SG, TF3Y og TF4M sendu inn samanburðardagbók (e. check-log).
Vitað er um tvo íslenska radíóamatöra sem tóku þátt í keppninni erlendis frá, þá Sigurð R. Jakobsson, TF3CW og Ómar Magnússon, OZ1OM (TF3WK). Sigurður virkjaði ED8W á eyjunni La Palma, sem er ein af sjö eyjum Kanaríeyja og Ómar var QRV frá Óðinsvéum í Danmörku.
ED8W – einm. flokkur, 40 metrar, háafl.
OZ1OM – einm. flokkur, öll bönd, aðstoð, lágafl, “classic”.
Kristinn Andersen, TF3KX, mætti í Skeljanes á vetrardagskrá ÍRA þann 28. nóvember með erindið „QRP afl, heimasmíði og notkun QRP senda“.
Hann fór fyrst yfir QRP skilgreiningarnar, en QRP afl miðast oftast við mest 5W á morsi (10W á SSB) og QRPp við mest 1W. Hann útskýrði vel hversu vel QRP afl skilar sér í raun. Því til sönnunar lék hann upptöku af sendingu á morsi frá radíóvita 4U1UN/B í New York á 14.100 MHz. Fyrst var sent stutt merki á 100W, síðan á 10W, þá á 1W og loks á 0,1W. Sérlega áhugavert var að heyra hversu læsilegt merkið var í öllum afldæmunum – meira að segja á 0,1W í restina.
Kristinn
lýsti eigin reynslu af að vinna á QRP afli og var áhugavert að skoða fjarskiptadagbók
hans (sem gekk á milli manna á meðan hann flutti erindið). Hann fjallaði um
mikilvægi góðra loftneta, en að sama skapi væri einnig spennandi að nota algeng
loftnet eins og t.d. hálfbylgju endafæddan vír (t.d. á 20 metrum) og benti á að
þannig væri auðvelt að hafa sambönd yfir þúsundir kílómetra um allan heim.
Hann fór yfir QRP stöðvar og búnað sem eru í boði í dag, bæði samsettar og ósamsettar. Nefndi í því sambandi eigin QRP stöð (2W á morsi) frá Small Wonder Labs og Elecraft stöð, K2 (0-15W á morsi og SSB) sem voru til sýnis á staðnum, en báðar voru keyptar ósamsettar. Hann útskýrði einnig, að 2W stöðin væri hluti af búnaði sem hann hefði í tösku sem væri þægilegt að grípa með sér, t.d. í sumarbústað eða jafnvel erlendis (sem hann hefur gert).
Erindi Kristins var afar vel heppnað. Það var vel flutt, skemmtilegt og fróðlegt og veitti góða innsýn í þennan áhugaverða þátt áhugamálsins sem nýtur vaxandi vinsælda með hverju ári sem líður. Held að allir viðstaddir geti tekið undir með TF3OM, sem þakkaði Kristni á Facebook í morgun fyrir „stórgóðan fund í gærkvöldi“. Alls mættu 33 félagsmenn í Skeljanes þetta kyrrláta vetrarkvöld í Vesturbænum.
Ánægjulegt er jafnframt að geta um góða gjöf Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG, sem færði félaginu tvo „signal gererator‘a“, HF sendi og 1000W HF magnara (hvorutveggja af Harris gerð, sbr. ljósmynd). Bestu þakkir til Hans Konrads.
Áramótasending korta frá TF ÍRA QSL Bureau (kortastofu) fer að þessu sinni fram í janúar 2020. Þá verða öll kort sem borist hafa til stofunnar (þ.á.m. til smærri staða) póstlögð til kortastofa systurfélaganna um allan heim.
Síðasti skiladagur vegna áramótaútsendingar 2019/20 verður fimmtudagskvöldið 9. janúar 2020. Þau kort sem berast í QSL kassann í Skeljanesi það kvöld verða örugg með að komast í flokkun og til útsendingar. Gjaldskrá er óbreytt, 10 krónur á kort, sama hvert sem er í heiminum.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-28 15:29:012019-11-28 16:18:31TF QSL BUREAU HREINSAR ÚT UM ÁRAMÓT
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20:30. Þá mætir Kristinn Andersen TF3KX í Skeljanes með erindið „QRP afl, heimasmíði og notkun QRP senda“.
Hin síðari ár hefur framboð á QRP stöðvum fyrir radíóamatöra aukist með hverju árinu. Í boði eru í dag, hvorutveggja gott úrval af samsettum og ósamsettum tækjum við hagstæðu verði. Tilkoma stafrænna tegunda útgeislunar hefur mikið aukið vinsældir QRP, sem og framboð á ódýrum stöðvum og búnaði frá Kína.
Kristinn mun ræða um QRP afl, samspil QRP afls og tíðna og um mikilvægi góðra loftneta og m.a. skýra frá eigin reynslu af notkun færanlegra QRP stöðva innanlands og erlendis.
Þetta er áhugavert efni og eru félagsmenn hvattir til að
mæta tímanlega. Góðar kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-25 16:19:132019-11-25 16:27:26TF3KX VERÐUR Í SKELJANESI 28. NÓVEMBER
Önnur sunnudagsopnun á vetrardagskrá ÍRA var sunnudaginn 24. nóvember. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, mætti í Skeljanes og fjallaði um „Hvernig er að vera QRV á FT4?“
Fram kom m.a. að FT4 sem er samskiptaháttur sem hefur verið kynntur sem tilraun sem beint er sérstaklega að keppni. Hann lagði áherslu á að FT4 er ekki mótunaraðferð heldur samskiptareglur undir MFSK mótun. Sendir eru 4 tónar í tíðnihliðrunarlyklun og er heildarbandbreidd sendingarinnar 90Hz. Til samanburðar er FT8 8 tónar og heildarbandbreiddin 50Hz. Samskiptahátturinn er nauðalíkur FT8 að mörgu leyti, bæði í innri
uppbyggingu og í notendaskilum:
Sendingarnar standa alltaf yfir í fastsettan ákveðinn tíma
Fyrirfram er ákveðið að miklu leyti hvað fram fer í sendingunni
Afar öflug villuleiðrétting á sér stað í móttökunni
Hver sendilota er aðeins 6 sekúndur, FT4 er því 2,5x hraðvirkara en FT8
FT4 er því að jafnaði á sama hraða og RTTY … en
FT4 getur unnið með merki sem er 10dB veikara en RTTY ræður við
FT4 notar bara brot af bandbreidd RTTY fyrir hverja sendingu
Þetta er hægt m.a. með síunartækni þar sem kassabylgjuformið er rúnnað af til að eyða smellum, rétt eins og í morsi (sjá meðf. mynd neðar).
Allt FT4 utanumhaldið fer fram í forritinu sem mótar/afmótar en nokkur forrit eru í boði, t.d. WSJT-X, JTDX og MSHV eru þekktust. FT4 hefur sérstakt tíðniplan, oft aðeins ofar í tíðni en FT8 en þó ekki alltaf. Í JTDX forritinum má hlaða öllu tíðniplaninu inn með einum smelli í uppsetningarhætti forritsins. Undantekning frá því getur verið þegar stórir/eftirsóttir DX leiðangrar eru virkir, þá er móttakan iðulega höfð annarsstaðar. Dæmi 1A0C sendi á venjulegu 14,080 en hlustaði á 14,090, en næstum allir á 14,090 voru þá að kalla á þá. Að lokum sýndi Vilhjálmur hvernig QSO í
FT4 fara fram og notaði hann til þess Logger32 forritið með JTDX uppsettu sem
undirforriti í því, en þannig loggast öll sambönd jafnóðum beint í loggforitið
sem hann notar að jafnaði auk þess sem það sést jafnóðum hvaða sambönd hafa
verið átt við stöðvarnar sem kalla, hver sem mótunin hefur verið fyrr.
Að lokum var farið í loftið á FT4 úr fjarskiptaherbergi TF3IRA og „runnu“ samböndin afar lipurt í gegn. Flestir viðstaddir voru á því að áhugavert væri að prófa FT4, en að sögn Vilhjálms er þó nokkur fjöldi TF-stöðva þegar virkur á FT4. Bestu þakkir til Vilhjálms fyrir skemmtilega og afar fróðlega kynningu og vel fram setta. Alls mættu 10 félagar og 1 gestur í Skeljanes þennan frostkalda sunnudagsmorgun í vetrarsól og lognblíðu í vesturbænum í Reykjavik.
Í gömlu Loftskeytastöðinni við Brynjólfsgötu er óvenjuleg ljósasería á þakkanti hússins.
Þarna hefur verið sett upp listaverkið „K“ (Með ósk um svar) eftir Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur. Það samanstendur af ljósaperum sem stafa á morsi, tegundaheiti hvalategunda. Það var einmitt í Loftskeytastöðinni sem þráðlaus samskipti komust á við útlönd fyrir um 100 árum og loftskeyti voru send og móttekin á morsi með útvarpsbylgjum. Listaverkið mun verða sýnt til 23. febrúar n.k.
Sunnudaginn 24. nóvember kl. 11 árdegis verða 2. „sófaumræður“ vetrarins á yfirstandandi vetrardagskrá. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, mætir í sófann og leiðir umræður um hvernig er að vera QRV á FT4.
WSJT-X hópurinn, þeir K1JT, K9AN og G4WJ kynntu nýju FT4 mótunina vorið 2019. FT4 er þróað í framhaldi af FT8 og einkum hugsað til nota í keppnum.
FT4 er nánast hliðstæð í notkun og FT8 nema að samskipti eru 2,5 sinnum hraðari, þ.e. sending á FT4 tekur 4.48 sek. samanborið við 12.64 sek. á FT8. FT4 notar jafnframt minni bandbreidd, eða 90 Hz.
Á meðan hægt er að hafa QSO á FT8 allt niður í -26dB þarf FT4 u.þ.b. 5dB sterkara merki. Tíðnir fyrir FT4 QSO eru yfirleitt 4 kHz ofar á böndunum, en undantekningar eru frá því, t.d. á 20m þar sem tíðnin er 14.080 MHz.
Félagar, mætum tímanlega. Húsið opnar kl. 10:30. Kaffiveitingar frá Björnsbakaríi.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-22 13:04:592019-11-22 13:28:47SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI Á SUNNUDAG
Haraldur Þórðarson, TF8HP, hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Þær upplýsingar bárust til félagsins í dag að Haraldur hafi látist á sjúkrahúsi í morgun, 21. nóvember. Hann var á 77. aldursári, heiðursfélagi í ÍRA og leyfishafi nr. 70.
Um leið og við minnumst Haraldar með þökkum og virðingu
færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Góðar fréttir bárust til félagsins í morgun, 21. nóvember, þess efnis að radíótíðniráðstefna Alþjóða fjarskiptasambandsins ITU, WRC-19, hafi samþykkt frumvarp IARU um að 50 MHz bandinu verði úthlutað til radíóamatörþjónustunnar. Endanlegur frágangur samþykktarinnar verður afgreiddur þegar ráðstefnunni lýkur í næstu viku.
Samþykktin er stigskipt (eins og við var búist), þ.e. 44 þjóðríki á Svæði 1 munu veita leyfishöfum ríkjandi aðgang á 500 kHz (á 50-54 MHz) og 26 ríki munu veita ríkjandi aðgang að öllu sviðinu. Öll þjóðríki í Svæði 1 hafa samþykkt að veita radíóamatörum víkjandi aðgang að tíðnisviðinu 50-52 MHz. Aðrar þjónustur sem fyrir voru með úthlutun í Svæði 1 og Svæði 3 munu halda heimildum. Núverandi ríkjandi aðgangur radíóamatöra að 50-54 MHz í Svæðum 2 og 3 helst óbreyttur.
Nánari útfærsla er gerð af stjórnvöldum í hverju þjóðríki eftir ráðstefnuna.
Stjórn ÍRA sendi erindi í morgun til Póst- og fjarskiptastofnunar og til framkvæmdastjórnar IRAU og IARU Svæðis 1 með þakklæti fyrir hönd íslenskra radíóamatöra.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-11-21 15:21:272019-11-21 15:52:5850 MHz BANDIÐ Í HÖFN Á WRC-19
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi,
fimmtudaginn 21. nóvember.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
Mathías Hagvaag, TF3MH, QSL stjóri félagsins, tæmir
pósthólfið hvern miðvikudag og verður búinn að flokka nýjar QSL sendingar fyrir
opnun á fimmtudagskvöld.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 5. DESEMBER
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 5. desember.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
QSL stjóri félagsins, tæmir pósthólfið á miðvikudag og verður búinn að flokka QSL sendingar fyrir opnun á fimmtudagskvöld.
Stjórn ÍRA.
GÓÐIR GESTIR Í SKELJANESI 30. NÓVEMBER
Þátttakendum á yfirstandandi námskeiði ÍRA til amatörprófs bauðst að heimsækja félagsaðstöðuna í Skeljanesi laugardaginn 30. nóvember. Jón Björnsson, TF3PW, umsjónarmaður námskeiða félagsins, skipulagði daginn sem heppnaðist mjög vel.
Dagurinn hófst kl. 10 árdegis með stuttu ávarpi formanns. TF3JB lýsti aðstöðu félagsins og helstu starfsþáttum sem standa félagsmönnum til boða. Að því loknu tók varaformaður við. TF3DC fór með hópinn út í portið við austurhlið hússins og lýsti loftnetakosti TF3IRA, þ.e. 4 staka YAGI loftneti á 20M og stangarloftneti á 10, 15, 20, 40 og 80M. VHF stjóri félagsins fylgdi hópnum líka og lýsti TF1A m.a. loftnetum sem notast við gervihnattastöð TF3IRA á 2,4 og 10 GHz.
Þegar inn var komið á ný, bættu menn á sig kaffi og á meðan fjallaði QSL stjóri félagsins um kortamál. TF3MH lýsti mikilvægi kortastofunnar og kynnti samvinnu hennar við aðrar í landsfélögum radíóamatöra um heiminn. Þegar menn færðu sig upp á efri hæðina sýndi hann jafnframt aðstöðu kortastofunnar, þar sem hver leyfishafi hefur sitt eigið hólf.
Loks færðu menn sig yfir í fjarskiptaherbergi TF3IRA þar sem þeir TF3DC og TF1A tóku við á ný og var búnaður TF3IRA kynntur. TF3DC kynnti þau tvö fjarskiptaborð sem eru til afnota fyrir HF tíðnir og TF1A kynnti þriðja borðið, sem er fyrir sambönd um Es’hail/Oscar 100 gervitunglið. Skemmtilegar umræður fylgdu, enda kynntu þeir félagar marga forvitnilega og spennandi þætti fjarskiptanna og tilheyrandi búnað.
Þeir nemendur á námskeiði félagsins sem áttu heimangengt í Skeljanes þennan ágæta laugardag voru þeir Björgvin Víglundsson, Eiður Kristinn Magnússon TF3-Ø71, Gunnar Bergþór Pálsson TF3-Ø17, Sigurður Kolbeinsson TF3-Ø66 og Sveinn Aðalsteinsson.
Bestu óskir til þeirra og annarra þátttakenda á námskeiði félagsins um gott gengi í prófi Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis sem haldið verður í desember n.k.
Stjórn ÍRA.
CQ WW DX CW KEPPNIN 2019
CQ World Wide DX CW keppnin 2019 var haldin helgina 23.-24. nóvember.
Gögnum var skilað inn fyrir átta TF kallmerki, þar af keppnisdagbókum fyrir fjögur og skiptust stöðvarnar á fjóra keppnisflokka:
Vitað er um tvo íslenska radíóamatöra sem tóku þátt í keppninni erlendis frá, þá Sigurð R. Jakobsson, TF3CW og Ómar Magnússon, OZ1OM (TF3WK). Sigurður virkjaði ED8W á eyjunni La Palma, sem er ein af sjö eyjum Kanaríeyja og Ómar var QRV frá Óðinsvéum í Danmörku.
Bráðabirgðaniðurstöður (e. raw scores) eru væntanlegar fljótlega.https://www.cqww.com/logs_received_cw.htm
VEL HEPPNAÐ ERINDI TF3KX OG GJÖF MÓTTEKIN
Kristinn Andersen, TF3KX, mætti í Skeljanes á vetrardagskrá ÍRA þann 28. nóvember með erindið „QRP afl, heimasmíði og notkun QRP senda“.
Hann fór fyrst yfir QRP skilgreiningarnar, en QRP afl miðast oftast við mest 5W á morsi (10W á SSB) og QRPp við mest 1W. Hann útskýrði vel hversu vel QRP afl skilar sér í raun. Því til sönnunar lék hann upptöku af sendingu á morsi frá radíóvita 4U1UN/B í New York á 14.100 MHz. Fyrst var sent stutt merki á 100W, síðan á 10W, þá á 1W og loks á 0,1W. Sérlega áhugavert var að heyra hversu læsilegt merkið var í öllum afldæmunum – meira að segja á 0,1W í restina.
Kristinn lýsti eigin reynslu af að vinna á QRP afli og var áhugavert að skoða fjarskiptadagbók hans (sem gekk á milli manna á meðan hann flutti erindið). Hann fjallaði um mikilvægi góðra loftneta, en að sama skapi væri einnig spennandi að nota algeng loftnet eins og t.d. hálfbylgju endafæddan vír (t.d. á 20 metrum) og benti á að þannig væri auðvelt að hafa sambönd yfir þúsundir kílómetra um allan heim.
Hann fór yfir QRP stöðvar og búnað sem eru í boði í dag, bæði samsettar og ósamsettar. Nefndi í því sambandi eigin QRP stöð (2W á morsi) frá Small Wonder Labs og Elecraft stöð, K2 (0-15W á morsi og SSB) sem voru til sýnis á staðnum, en báðar voru keyptar ósamsettar. Hann útskýrði einnig, að 2W stöðin væri hluti af búnaði sem hann hefði í tösku sem væri þægilegt að grípa með sér, t.d. í sumarbústað eða jafnvel erlendis (sem hann hefur gert).
Erindi Kristins var afar vel heppnað. Það var vel flutt, skemmtilegt og fróðlegt og veitti góða innsýn í þennan áhugaverða þátt áhugamálsins sem nýtur vaxandi vinsælda með hverju ári sem líður. Held að allir viðstaddir geti tekið undir með TF3OM, sem þakkaði Kristni á Facebook í morgun fyrir „stórgóðan fund í gærkvöldi“. Alls mættu 33 félagsmenn í Skeljanes þetta kyrrláta vetrarkvöld í Vesturbænum.
Ánægjulegt er jafnframt að geta um góða gjöf Hans Konrads Kristjánssonar, TF3FG, sem færði félaginu tvo „signal gererator‘a“, HF sendi og 1000W HF magnara (hvorutveggja af Harris gerð, sbr. ljósmynd). Bestu þakkir til Hans Konrads.
TF QSL BUREAU HREINSAR ÚT UM ÁRAMÓT
Áramótasending korta frá TF ÍRA QSL Bureau (kortastofu) fer að þessu sinni fram í janúar 2020. Þá verða öll kort sem borist hafa til stofunnar (þ.á.m. til smærri staða) póstlögð til kortastofa systurfélaganna um allan heim.
Síðasti skiladagur vegna áramótaútsendingar 2019/20 verður fimmtudagskvöldið 9. janúar 2020. Þau kort sem berast í QSL kassann í Skeljanesi það kvöld verða örugg með að komast í flokkun og til útsendingar. Gjaldskrá er óbreytt, 10 krónur á kort, sama hvert sem er í heiminum.
28. nóvember 2019,
73,
Mathías Hagvaag, TF3MH,
QSL stjóri ÍRA.
TF3KX VERÐUR Í SKELJANESI 28. NÓVEMBER
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20:30. Þá mætir Kristinn Andersen TF3KX í Skeljanes með erindið „QRP afl, heimasmíði og notkun QRP senda“.
Hin síðari ár hefur framboð á QRP stöðvum fyrir radíóamatöra aukist með hverju árinu. Í boði eru í dag, hvorutveggja gott úrval af samsettum og ósamsettum tækjum við hagstæðu verði. Tilkoma stafrænna tegunda útgeislunar hefur mikið aukið vinsældir QRP, sem og framboð á ódýrum stöðvum og búnaði frá Kína.
Kristinn mun ræða um QRP afl, samspil QRP afls og tíðna og um mikilvægi góðra loftneta og m.a. skýra frá eigin reynslu af notkun færanlegra QRP stöðva innanlands og erlendis.
Þetta er áhugavert efni og eru félagsmenn hvattir til að mæta tímanlega. Góðar kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
SKEMMTILEGUR SUNNUDAGUR
Önnur sunnudagsopnun á vetrardagskrá ÍRA var sunnudaginn 24. nóvember. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, mætti í Skeljanes og fjallaði um „Hvernig er að vera QRV á FT4?“
Fram kom m.a. að FT4 sem er samskiptaháttur sem hefur verið kynntur sem tilraun sem beint er sérstaklega að keppni. Hann lagði áherslu á að FT4 er ekki mótunaraðferð heldur samskiptareglur undir MFSK mótun. Sendir eru 4 tónar í tíðnihliðrunarlyklun og er heildarbandbreidd sendingarinnar 90Hz. Til samanburðar er FT8 8 tónar og heildarbandbreiddin 50Hz. Samskiptahátturinn er nauðalíkur FT8 að mörgu leyti, bæði í innri uppbyggingu og í notendaskilum:
Þetta er hægt m.a. með síunartækni þar sem kassabylgjuformið er rúnnað af til að eyða smellum, rétt eins og í morsi (sjá meðf. mynd neðar).
Allt FT4 utanumhaldið fer fram í forritinu sem mótar/afmótar en nokkur forrit eru í boði, t.d. WSJT-X, JTDX og MSHV eru þekktust. FT4 hefur sérstakt tíðniplan, oft aðeins ofar í tíðni en FT8 en þó ekki alltaf. Í JTDX forritinum má hlaða öllu tíðniplaninu inn með einum smelli í uppsetningarhætti forritsins. Undantekning frá því getur verið þegar stórir/eftirsóttir DX leiðangrar eru virkir, þá er móttakan iðulega höfð annarsstaðar. Dæmi 1A0C sendi á venjulegu 14,080 en hlustaði á 14,090, en næstum allir á 14,090 voru þá að kalla á þá. Að lokum sýndi Vilhjálmur hvernig QSO í FT4 fara fram og notaði hann til þess Logger32 forritið með JTDX uppsettu sem undirforriti í því, en þannig loggast öll sambönd jafnóðum beint í loggforitið sem hann notar að jafnaði auk þess sem það sést jafnóðum hvaða sambönd hafa verið átt við stöðvarnar sem kalla, hver sem mótunin hefur verið fyrr.
Að lokum var farið í loftið á FT4 úr fjarskiptaherbergi TF3IRA og „runnu“ samböndin afar lipurt í gegn. Flestir viðstaddir voru á því að áhugavert væri að prófa FT4, en að sögn Vilhjálms er þó nokkur fjöldi TF-stöðva þegar virkur á FT4. Bestu þakkir til Vilhjálms fyrir skemmtilega og afar fróðlega kynningu og vel fram setta. Alls mættu 10 félagar og 1 gestur í Skeljanes þennan frostkalda sunnudagsmorgun í vetrarsól og lognblíðu í vesturbænum í Reykjavik.
MORS Í GÖMLU LOFTSKEYTASTÖÐINNI
Í gömlu Loftskeytastöðinni við Brynjólfsgötu er óvenjuleg ljósasería á þakkanti hússins.
Þarna hefur verið sett upp listaverkið „K“ (Með ósk um svar) eftir Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur. Það samanstendur af ljósaperum sem stafa á morsi, tegundaheiti hvalategunda. Það var einmitt í Loftskeytastöðinni sem þráðlaus samskipti komust á við útlönd fyrir um 100 árum og loftskeyti voru send og móttekin á morsi með útvarpsbylgjum. Listaverkið mun verða sýnt til 23. febrúar n.k.
Sjá nánar frásögn á þessari vefslóð Háskóla Íslands: https://www.facebook.com/HaskoliIslands/posts/10156302750290728
SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI Á SUNNUDAG
Sunnudaginn 24. nóvember kl. 11 árdegis verða 2. „sófaumræður“ vetrarins á yfirstandandi vetrardagskrá. Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, mætir í sófann og leiðir umræður um hvernig er að vera QRV á FT4.
WSJT-X hópurinn, þeir K1JT, K9AN og G4WJ kynntu nýju FT4 mótunina vorið 2019. FT4 er þróað í framhaldi af FT8 og einkum hugsað til nota í keppnum.
FT4 er nánast hliðstæð í notkun og FT8 nema að samskipti eru 2,5 sinnum hraðari, þ.e. sending á FT4 tekur 4.48 sek. samanborið við 12.64 sek. á FT8. FT4 notar jafnframt minni bandbreidd, eða 90 Hz.
Á meðan hægt er að hafa QSO á FT8 allt niður í -26dB þarf FT4 u.þ.b. 5dB sterkara merki. Tíðnir fyrir FT4 QSO eru yfirleitt 4 kHz ofar á böndunum, en undantekningar eru frá því, t.d. á 20m þar sem tíðnin er 14.080 MHz.
Félagar, mætum tímanlega. Húsið opnar kl. 10:30. Kaffiveitingar frá Björnsbakaríi.
Stjórn ÍRA.
HARALDUR ÞÓRÐARSON TF8HP ER LÁTINN
Haraldur Þórðarson, TF8HP, hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Þær upplýsingar bárust til félagsins í dag að Haraldur hafi látist á sjúkrahúsi í morgun, 21. nóvember. Hann var á 77. aldursári, heiðursfélagi í ÍRA og leyfishafi nr. 70.
Um leið og við minnumst Haraldar með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar,
Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.
50 MHz BANDIÐ Í HÖFN Á WRC-19
Góðar fréttir bárust til félagsins í morgun, 21. nóvember, þess efnis að radíótíðniráðstefna Alþjóða fjarskiptasambandsins ITU, WRC-19, hafi samþykkt frumvarp IARU um að 50 MHz bandinu verði úthlutað til radíóamatörþjónustunnar. Endanlegur frágangur samþykktarinnar verður afgreiddur þegar ráðstefnunni lýkur í næstu viku.
Samþykktin er stigskipt (eins og við var búist), þ.e. 44 þjóðríki á Svæði 1 munu veita leyfishöfum ríkjandi aðgang á 500 kHz (á 50-54 MHz) og 26 ríki munu veita ríkjandi aðgang að öllu sviðinu. Öll þjóðríki í Svæði 1 hafa samþykkt að veita radíóamatörum víkjandi aðgang að tíðnisviðinu 50-52 MHz. Aðrar þjónustur sem fyrir voru með úthlutun í Svæði 1 og Svæði 3 munu halda heimildum. Núverandi ríkjandi aðgangur radíóamatöra að 50-54 MHz í Svæðum 2 og 3 helst óbreyttur.
Nánari útfærsla er gerð af stjórnvöldum í hverju þjóðríki eftir ráðstefnuna.
Stjórn ÍRA sendi erindi í morgun til Póst- og fjarskiptastofnunar og til framkvæmdastjórnar IRAU og IARU Svæðis 1 með þakklæti fyrir hönd íslenskra radíóamatöra.
OPIÐ HÚS FIMMTUDAG 21. NÓVEMBER
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 21. nóvember.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
Mathías Hagvaag, TF3MH, QSL stjóri félagsins, tæmir pósthólfið hvern miðvikudag og verður búinn að flokka nýjar QSL sendingar fyrir opnun á fimmtudagskvöld.
Stjórn ÍRA.