Jákvætt svar hefur borist frá Fjarskiptastofu (FST) við ósk stjórnar ÍRA um að næsta próf til amatörleyfis verði haldið í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, laugardaginn 16. mars n.k. kl. 10:00–12:00 Raffræði og radíótækni; kl. 13:00–14:00 Reglur og viðskipti; og kl. 14:30–Prófsýning.
Eftir að námskeiði félagsins til amatörprófs lauk í haust var um að ræða nokkurn fjölda þátttakenda sem ekki höfðu möguleika á að mæta til prófs 11. nóvember s.l. Hugmyndin er, að gera þessum aðilum kleift að sitja nú próf til amatörleyfis.
Þar sem um er að ræða einskonar sjúkrapróf/upptökupróf verður ekki í boði námskeið eða annar undirbúningur á vegum félagsins. Prófið er án kostnaðar, er öllum opið og eru ekki gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning. Alls höfðu sjö aðilar staðfest skráningu þann 25. febrúar.
Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig til prófs með því að senda tölvupóst á ira@ira.is eigi síðar en 8. mars n.k.
Fyrirspurnir eru velkomnar á póstfang félagsins: ira@ira.is
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-02-25 09:19:542024-02-25 09:22:34PRÓF FST TIL AMATÖRLEYFIS 16. MARS
ARRL International DX CW keppnin fór fram um síðustu helgi (17.-18. febrúar) og a.m.k. 7 TF kallmerki tóku þátt.
Keppnisdagbók hafði verið skilað til keppnisstjórnar í dag (22. febrúar) fyrir fimm kallmerki: TF2R, TF3EO, TF3SG, TF3V og TF3W.
Þetta er afar jákvæð þróun, þar sem undanfarin þrjú ár (2021-2023) hefur gögnum aðeins verið skilað inn fyrir 2 TF kallmerki á hverju ári.
Sjá meðfylgjandi töflu með upplýsingum um QSO eftir böndum. Ekki liggur fyrir viðvera í keppninni – nema hjá TF3W, alls 33 klst. Árangur Guðmundar, TF3SG er framúrskarandi góður og ekki ólíklegt að hann hafi verið QRV allar 48 klukkustundirnar sem keppnin stóð yfir sem og Henning, hjá TF2LL. Bent er á að samanburður þarf að taka tillit til viðveru og sendiafls.
Jákvætt svar hefur borist frá Fjarskiptastofu (FST) við ósk stjórnar ÍRA um að næsta próf til amatörleyfis verði haldið í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, laugardaginn 16. mars n.k. kl. 10:00–12:00 Raffræði og radíótækni; kl. 13:00–14:00 Reglur og viðskipti; og kl. 14:30–Prófsýning.
Eftir að námskeiði félagsins til amatörprófs lauk í haust var um að ræða nokkurn fjölda þátttakenda sem ekki höfðu möguleika á að mæta til prófs 11. nóvember s.l. Hugmyndin er, að gera þessum aðilum kleift að sitja nú próf til amatörleyfis.
Þar sem um er að ræða einskonar sjúkrapróf/upptökupróf verður ekki í boði námskeið eða annar undirbúningur á vegum félagsins. Prófið er án kostnaðar, er öllum opið og eru ekki gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning. Alls höfðu sjö aðilar staðfest skráningu þann 21. febrúar.
Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig til prófs með því að senda tölvupóst á ira@ira.is eigi síðar en 8. mars n.k.
Fyrirspurnir eru velkomnar á póstfang félagsins: ira@ira.is
CQ 160-METER CONTEST, SSB. Hefst kl. 22:00 á föstudag 23. febrúar / lýkur kl. 22:00 á sunnudag 25. febrúar. Keppnin fer fram á SSB á 160 metrum. Skilaboð: W/VE stöðva: RS + ríki í Bandaríkjunum / fylki í Kanada. Skilaboð annarra: RS + CQ svæði. http://www.cq160.com/rules.htm
LABRE-RS DIGI CONTEST. Hefst kl. 00:00 á laugardag 24. febrúar / lýkur kl. 20:59 á sunnudag 25. febrúar. Keppnin fer fram á FT4/8 á 80, 40, 20, 15, 10 og 6 metrum. Skilaboð: Fjögurra stafa Maidenhead reitur (e. grid square). http://labre-rs.org.br/labre-rs-digi-contest/
REF CONTEST, SSB. Hefst kl. 06:00 á laugardag 24. febrúar / lýkur kl. 18:00 á sunnudag 25. febrúar. Keppnin fer fram á SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð franskra stöðva: RS + sýsla / forskeyti stöðva í frönskum nýlendum. Skilaboð annarra: RS + raðnúmer. https://concours.r-e-f.org/reglements/actuels/reg_cdfhfdx.pdf
UBA DX CONTEST, CW. Hefst kl. 13:00 á laugardag 24. febrúar / lýkur kl. 13:00 á sunnudag 25. febrúar. Keppnin fer fram á CW á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð belgískra stöðva: RST + raðnúmer + staðsetning (e. section). Skilaboð annarra: RST + raðnúmer. https://concours.r-e-f.org/reglements/actuels/reg_cdfhfdx.pdf
WORLD WIDE PATAGONIA DX CONTEST. Fer fram kl. 00:00 til kl. 23:59 á sunnudag 25. febrúar. Keppnin fer fram á CW og SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RS(T) + Fjögurra stafa Maidenhead reitur (e. grid square). http://wwpatagonia-arg-dx.com.ar/
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-02-20 09:37:362024-02-20 09:39:07OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 22. FEBRÚAR
Félagsstöðin TF3W var virkjuð í ARRL International DX CW keppninni sem fór fram 17.-18. febrúar.
Alls voru höfð 1.539 sambönd á 5 böndum. Bráðabirgðaniðurstöður (e. score before checking): 1,021,644 punktar. Keppt var í flokknum: „Multi operator, single transmitter, low power“. Viðvera í keppninni var alls 33 klst.
Eins og fram kemur í töflunni að neðan náðist ekkert samband á 160 metrum vegna þess að truflun í viðtöku var stöðug í 599+20dB (allan keppnistímann). Ljóst er, að það þarf að fara með viðtæki um húsið í Skeljanesi og út í port og í næsta nágrenni til að staðsetja truflunina sem líklega stafar frá biluðum „svitch-mode“ aflgjafa.
Í keppninni náðist samband við öll ríki í Bandaríkjunum nema HI, KL7, ND og NM. Ekki liggja fyrir upplýsingar um sambönd við fjölda fylkja í Kanada. Sérstakar þakkir fá þeir Alex TF/UT4EK og Sæmundur TF3UA fyrir að starfrækja stöðina í keppninni.
Fræðsluerindi ÍRA á vormánuðum 2024 verða í boði frá 1. febrúar til 30. maí n.k. Tvö fyrstu erindin eru að vísu búin. Annars vegar 1. febrúar s.l., þegar Andrés Þórarinsson, TF1AM fjallaði um heppilegar tíðnir á stuttbylgju til innanlandsfjarskipta og hins vegar s.l. fimmtudag (15. febrúar) þegar Ágúst Úlfar Sigurðsson, TF3AU fjallaði um Collins R-390A/URR og R-391/URR viðtækin sem hann færði ÍRA að gjöf síðastliðið haust.
Febrúar. Þann 29. febrúar mætir Snorri Ingimarsson, TF3IK í Skeljanes og segir okkur frá radíóstarfsemi 4X4 ferðaklúbbsins á VHF endurvörpum og á 3815 kHz á 80 metra bandi.
Mars. Þann 14. mars mætir Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY í Skeljanes og kynnir Páskaleika ÍRA 2024 sem fara fram helgina 3.-5. maí n.k.
Apríl. Þann 4. apríl mætir Reynir Smári Atlason, TF3CQ í Skeljanes og segir okkur frá þeirri reynslu að hafa amatörstöð um boð í seglbáti þegar siglt er á milli landa. Og þann 11. apríl mætir Georg Kulp, TF3GZ formaður nýrrar stöðvarnefndar og fjallar um væntanlegar nýjungar í rekstri TF3IRA.
Maí. Þann 2. maí mætir Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA með erindið „Hönnun loftneta með 4nec2 hugbúnaðinum ((NEC based antenna modeler and optimizer)“. Og þann 25. maí mæta þeir Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY umsjónarmaður VHF/UHF leika ÍRA og Einar Kjartansson, TF3EK umsjónarmaður TF útileikanna og kynna þessa vinsælu fjarskiptaviðburðum félagsins.
Sérstakar þakkir til Andrésar Þórarinssonar, TF1AM varaformans ÍRA sem hafði veg og vanda af uppsetningu verkefnisins. Ennfremur þakkir til þeirra félagsmanna sem koma í Skeljanes og flytja okkur áhugavert efni.
Ágúst Úlfar Sigurðsson, TF3AU mætti í Skeljanes fimmtudaginn 15. febrúar með með erindið: “Collins Radio R-390A/URR; besta viðtæki allra tíma?“ Umfjöllun tók mið af Collins R-390A/URR og R-391/URR og viðtækjunum sem hann færði ÍRA að gjöf síðastliðið haust.
Fram kom, að R-390 viðtækið var hannað og upphaflega framleitt fyrir Bandaríkjaher (US Army Signal Corps) af Collins Radio Company. R-390A kom nokkrum árum síðar. Alls voru framleidd um 55 þúsund tæki frá 1951 til 1970 af Collins og fleiri verksmiðjum vestanhafs. Ágúst sagði, að verð á fyrstu eintökunum, framreiknað til verðlags í dag hafi verið um 4,5 milljónir króna. Hann telur, að trúlega séu enn í notkun eintök af viðtækinu vegna þess hve vel tækið þolir rafsegulpúlsa (kjarnorkusprengjur).
R-390A nær yfir tíðnisviðið frá 500 kHz til 32 MHz. Samfelld tíðnistilling er innan hvers heils megariðs (e. mechanical tracking) og er viðtökutíðnin sýnd með tölustöfum. Viðtaka er á AM, CW og SSB með veljanlega bandbreidd. Tækið er ætlað til innsetningar í 19“ rekka, er auðvelt í viðhaldi þar sem einingar eru útskiptanlegar. Fjöldi lampa er 23, tækið er 39 kg að þyngd og aflþörf er um 200W.
Ágúst sagði, að R-391/URR tækið hafi komist í hans eigu eftir að Marteinn Sverrisson, TF3MA dó árið 2008 en hann hafi átt R-390A/URR ca. frá árinu 1970. Faðir Matta hafi upphaflega tækin í Sölunefnd Varnarliðseigna og Matta hafi tekist vel upp við að hreinsa og stilla. Í framhaldi notaði hann 390A viðtækið um árabil til fjarskipta á amatörböndunum.
Samhliða því að Ágúst flutt erindið svaraði hann fjölmörgum fyrirspurnum enda margir viðstaddir áhugasamir um tækin. Fram kom m.a. að þessi tæki seljast á eBay í dag á allt að 1300 dollara. Sérstakar þakkir til Ágústs fyrir afar fróðlegt, áhugavert og vel flutt erindi sem veitti góða innsýn inn í sérhæfðan heim Collins viðtækja.
Erlendir gestir félagsins voru þeir Alex Senchurov, UT4EK; Sergii Matlash, US5LB og Henning Andresen, OZ2I. Alls mættu 28 félagsmenn og 3 gestir í Skeljanes þetta vel heppnaða fimmtudagskvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Jákvætt svar hefur borist frá Fjarskiptastofu (FST) við ósk stjórnar ÍRA um að næsta próf til amatörleyfis verði haldið í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, laugardaginn 16. mars n.k. kl. 10:00–12:00 Raffræði og radíótækni; kl. 13:00–14:00 Reglur og viðskipti; og kl. 14:30–Prófsýning.
Eftir að námskeiði félagsins til amatörprófs lauk í haust var um að ræða nokkurn fjölda þátttakenda sem ekki höfðu möguleika á að mæta til prófs 11. nóvember s.l. Hugmyndin er, að gera þessum aðilum kleift að sitja nú próf til amatörleyfis.
Þar sem um er að ræða einskonar sjúkrapróf/upptökupróf verður ekki í boði námskeið eða annar undirbúningur á vegum félagsins. Prófið er án kostnaðar, er öllum opið og eru ekki gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning. Alls höfðu sex aðilar staðfest skráningu þann 13. febrúar.
Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig til prófs með því að senda tölvupóst á ira@ira.iseigi síðar en 8. mars n.k.
Fyrirspurnir eru velkomnar á póstfang félagsins: ira@ira.is
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-02-14 12:50:422024-02-14 12:51:54PRÓF FST TIL AMATÖRLEYFIS 16. MARS