Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 9. janúar.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
QSL stjóri félagsins tæmir pósthólfið á miðvikudag, flokkar innkomnar QSL sendingar og gerir klár fyrir opnun á fimmtudagskvöld.
Þá ætlar Wilhelm
Sigurðsson, TF3AWS, að koma með Zastone Z218 25W 2M/70CM bílstöðina sína og
hafa til sýnis yfir kaffinu.
Stjórn ÍRA.
Wilhelm Sigurðsson TF3AWS heldur á Zastone Z-218 25W bílstöðinni fyrir 2M/70CM böndin. Myndin var tekin þegar hann kom með stöðina í Skeljanes. Eftir það hafa menn verið að spyrjast fyrir um tækið og þar sem hann áformar að setja stöðina í vinnubílinn gefst tækifæri á fimmtudagskvöld að skoða gripinn. Með Wilhelm á myndinni eruþeir Jón Guðmundsson TF3LM og Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A. LJósmynd: TF3JB.
Stjórn ÍRA óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári 2020. Félagsaðstaðan í Skeljanesi verður næst opin fimmtudaginn 9. janúar n.k.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-21 06:57:452019-12-21 06:59:16GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Jólakaffi ÍRA 2019 var haldið í félagsaðstöðunni fimmtudaginn 19. desember og var það síðasta opnunarkvöld okkar í Skeljanesi á þessu ári. Félagsaðstaðan opnar næst fimmtudaginn 9. janúar 2020.
Í boði var rjómaterta frá Reyni bakara í
Kópavogi, stundum kennd við Hressingarskálann í Reykjavík. Brauðterta með rækjusalati
frá veisluþjónustu Jóa Fel, hátíðakleinur frá Kökugerð HP á Selfossi, hvít
jólaterta og brún jólaterta frá tertugalleríi Myllunnar, jólasmákökur með
súkkulaðibitum frá Kökum og tertum; 17 sortum, Göteborgs jólapiparkökur,
danskar rommkúlur frá Danish Bakery, piperkökuhringur og smáhringir (kleinuhringir)
frá Bakarí Sandholt og súkkulaðirúlluterta frá Meyers Bageri í Kaupmannahöfn.
Kvöldið heppnaðist vel. Alls mættu 32 félagsmenn og 2 gestir í Skeljanes þetta veðurstillta og fagra vetrarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
Skeljanesi 19. desember. Mynd frá árlegu jólakaffi ÍRAsem hófst stundvíslega kl. 20:00.Alltaf hressir. Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN, Georg Kulp TF3GZ og Mathías Hagvaag TF3MH.Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB, Höskuldur Elíasson TF3RF og Ágúst H. Bjarnason TF3OM.Sigurður Kolbeinsson TF3-066 (fremst til vinstri), Hrafnkell Sigurðsson TF8KY, Ársæll Óskarsson TF3AO, Georg Magnússon TF2LL, Bjarni Sverrisson TF3GB, Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Benedikt Sveinsson TF3T og Jón Björnsson TF3PW (lengst til hægri).Elín Sigurðardóttir TF2EQ og Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A.Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Bendikt Sveinsson TF3T og Baldur Þorgilsson TF3BP.Heimir Konráðsson TF1EIN (fjær), Baldvin Þórarinsson TF3-033, Óskar Sverrisson TF3DC og Ari Þórólur Jóhannesson TF1A.Wilhelm Sigurðsson TF3AWS, Björn Þór Hrafnkelsson TF8TY, Mathías Hagvaag TF3MH, Hrafnkell Sigurðsson TF8KY, Óðinn Þór Hallgrímsson TF2MSN og Vilhjálmur Í. Sigurjónson TF3VS.Björgvin Víglundsson TF3BOI, Eiður Kristinn Magnússon TF3-071, Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A og Jón Björnsson TF3PW.Bjarni Sverrisson TF3GB, Kristján Benediktsson TF3KB, Baldvin Þórarinsson TF3-033 og Þorvaldur Bjarnason TF3TB. Myndir: TF3JB.
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, setti TF3YOTA í loftið frá fjarskiptaherbegi TF3IRA í Skeljanesi 19. desember. Fyrst á 14 MHz og þegar skilyrði hurfu á því bandi skipti hún yfir á gervihnattastöð félagsins til fjarskipta um Es’hail/Oscar 100 gervitunglið. Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins, aðstoðaði Elínu og birti m.a. skemmtilegt myndskeið af fjarskiptunum á Facebook.
YOTA verkefnið hófst í fyrra (2018) og verður starfrækt í desember ár hvert. Það er hugsað til að auka áhuga ungs fólks á amatör radíói. Verkefnið er á vegum IARU Svæðis 1 og eru öll landsfélög radíóamatöra innan Svæðisins þátttakendur (auk landsfélaga á Svæðum 2 og 3).
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, er ungmennafulltrúi félagsins og YOTA verkefnisstjóri ásamt Árna Frey Rúnarssyni, TF8RN. Þau áforma að virkja kallmerkið á sem flestum HF böndum (eftir skilyrðum) út mánuðinn, auk sambanda um OSCAR-100 gervitunglið.
Elín Sigurðardóttir TF2EQ við hljóðnemann á TF3YOTA í sambandi um Es’hail/Oscar 100 gervitunglið. Ljósmynd: TF3JB.
Áramótasending korta frá TF ÍRA QSL Bureau (kortastofu) fer
að þessu sinni fram í janúar 2020. Þá verða öll kort sem borist hafa til
stofunnar (þ.á.m. til smærri staða) póstlögð til kortastofa systurfélaganna um
allan heim.
Síðasti skiladagur vegna áramótaútsendingar 2019/20 verður fimmtudagskvöldið 9. janúar 2020. Þau kort sem berast í QSL kassann í Skeljanesi það kvöld verða örugg með að komast í flokkun og til útsendingar. Gjaldskrá er óbreytt, 10 krónur á kort, sama hvert sem er í heiminum.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-17 10:43:282019-12-17 18:27:05KORTASTOFA HREINSAR ÚT UM ÁRAMÓT
Alls náðu átta einstaklingar prófi til amatörleyfis sem haldið var á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar, laugardaginn 14. desember í Háskólanum í Reykjavík. Þeir eru:
Árni Helgason, Patreksfirði. Björgvin Víglundsson, Reykjavík. Eiður K. Magnússon, Reykjavík. Gunnar B. Pálsson, Reykjavík. Pétur Ólafur Einarsson, Reykjavík. Sigurður Kolbeinsson, Reykjavík. Sveinn Aðalsteinsson, Reykjavík. Þorsteinn Björnsson, Kópavogi.
Stjórn ÍRA
óskar þeim til hamingju og býður þá velkomna í loftið.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-16 18:37:232019-12-16 18:38:53NÖFN ÞEIRRA SEM NÁÐU PRÓFI
Fjórða og síðasta sunnudagsopnun á vetrardagskrá félagsins var í boði sunnudaginn 15. desember. Jónas Bjarnason, TF3JB, mætti í Skeljanes og fjallaði um helstu niðurstöður radíótíðniráðstefnu Alþjóða fjarskipta-sambandsins ITU, WRC-19, sem lauk þann 22. nóvember s.l.
Farið var sérstaklega yfir samþykkt ráðstefnunnar um 50 MHz bandið. Hún er stigskipt (eins og við var búist), þ.e. 44 þjóðríki á Svæði 1 munu veita leyfishöfum ríkjandi aðgang á 500 kHz (á 50-54 MHz) og 26 ríki munu veita ríkjandi aðgang að öllu sviðinu. Öll þjóðríki í Svæði 1 hafa samþykkt að veita radíóamatörum víkjandi aðgang að 50-52 MHz. Aðrar þjónustur sem fyrir voru með úthlutun í Svæði 1 og Svæði 3 munu halda fyrri heimildum. Núverandi ríkjandi aðgangur radíóamatöra að 50-54 MHz í Svæðum 2 og 3 helst óbreyttur.
Nánari útfærsla á 50 MHz tíðnisviðinu fer nú fram hjá hverju aðildarríkja ITU á næstu misserum. Fram kom, að ÍRA hefur þegar sett sig í samband við Póst- og fjarskiptastofnun vegna útfærslu tíðnisviðsins hér á landi.
Farið var ennfremur yfir önnur tíðnisvið, m.a. 5 GHz og 47 GHz og undirbúning næstu radíótíðniráðstefnu (WRC-23) með tilliti til 1240-1300 MHz tíðnisviðsins, sem kann að verða í hættu þá. Hann skýrði jafnframt frá þeim rástöfunum sem IARU hefur þegar hafið undirbúning á til að verja tíðnisviðið. Ennfremur var fjallað um WPT heimildir (e. Wireless Power Transmission) sem geta haft áhrif á fjarskipti radíóamatöra á HF böndunum (og á tíðnisviðum þar fyrir neðan).
Alls mættu 8 félagsmenn og 1 gestur í Skeljanes þennan
frostfagra og sólríka sunnudagsmorgun.
Alls voru 12
skráðir til prófs Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis, sem haldið var
laugardaginn 14. desember í Háskólanum í Reykjavík. Þar af sátu 10 próf í
raffræði og radíótækni og 9 próf í reglum og viðskiptum.
Þegar
tíðindamaður þurfti að víkja af vettvangi um kl. 16:00 var prófsýning í gangi.
Almennt var að heyra á þátttakendum að prófið hafi verið sanngjarnt.
Fréttir af
útkomu úr prófinu verða birtar strax og þær liggja fyrir frá PFS eftir helgina.
Þátttakendur í prófi Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis 14. desember. Á myndinni eru einnig þeir Jón Björnsson TF3PW umsjónarmaður námskeiða ÍRA og Einar Kjartansson TF3EK í prófnefnd. Einn þátttakanda vantar á myndina. Ljósmynd: TF3JB.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-14 16:34:362019-12-14 16:45:27PRÓF TIL AMATÖRLEYFIS 14. DESEMBER