Alþjóðadagur radíóamatöra er á fimmtudag, 18. apríl. Þann mánaðardag árið 1925 voru alþjóðasamtök landsfélaga radíóamatöra – International Amateur Radio Union, IARU – stofnuð, fyrir 94 árum. Aðildarfélög IARU voru í upphafi 25 talsins, en eru í dag starfandi í yfir 160 þjóðlöndum heims með yfir 4 milljónir leyfishafa.
IARU er skipt niður á þrjú svæði í heiminum: Svæði-1 sem nær yfir Evrópu, Afríku, Miðausturlönd og norður hluta Asíu; Svæði-2 sem þekur Norður- og Suður Ameríku og Svæði-3, sem nær yfir Ástralíu, Nýja Sjáland, Kyrrahafseyjar og stærstan hluta Asíu.
Stjórn ÍRA óskar félagsmönnum til hamingju með alþjóðadag radíóamatöra árið 2019.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-14 16:07:022019-04-14 16:16:42ALÞJÓÐADAGUR RADÍÓAMATÖRA ER 18. APRÍL
Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY, mætti í Skeljanes 11. apríl og sagði okkur ferðasögu
frá DX-leiðangri til Seychelles eyja sumarið 2016. Eftir kaffihlé, fór hann yfir
og kynnti reglur Páskaleikana 2019.
Keli sagðist hafa verið tiltölulega reynslulítill í DX og keppnum þegar honum var boðið að taka þátt í S79V leiðangrinum 1.-10. júlí 2016. Hann sýndi myndir og myndbönd úr ferðinni, lýsti m.a. undirbúningi og uppsetningu einsbands VDA loftneta og skýrði smíði þeirra og virkni. Hann sagði ferðina vel heppnaða og lærdómsríka, en höfð voru yfir 20 þúsund QSO. Ferðafélagar voru þeir Paul A65DR, Joel A65BX, Martin A65DC, Gerald A65CB og Obaid A61DJ.
Eftir kaffihlé var farið yfir komandi Páskaleika ÍRA. Keli fór yfir „log-viðmót“ og virkni, rifjaði upp reynslu fyrra árs leika, fór yfir tíðnisvið og reglur leikanna. Fjörlegar umræður urðu um reglurnar, samanborið við VHF leikana og 80 metra bandið og skipst á skoðunum. Reglur og leikjavefur verður sett á heimasíðu félagsins á næstu dögum til kynningar.
Erindi Kela var áhugavert og vel flutt. Hann svaraði spurningum greiðlega í líflegum umræðum. Að lokum fékk Hrafnkell verðskuldað klapp og þakkir viðstaddra. Menn ræddu málin síðan áfram allt fram undir kl. 23. Alls mættu 19 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
Næst á vetrardagskrá ÍRA er ferðasaga Hrafnkels Sigurðssonar TF8KY frá DX-leiðangri til Seychelles eyja, sem flutt verður í Skeljanesi fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:30.
Keli slóst í för með þeim Paul A65DR, Joel A65BX, Martin A65DC og Obaid A65DJ til Mahe eyju, sem er stærst í Seychelles eyjaklasanum í Indlandshafi, 1.-10. júlí 2016.
Hópurinn hafði alls 20.135 QSO. Fimm TF kallmerki náðu 14 samböndum við S79V á SSB, RTTY og PSK á 17, 20 og 40 metrum. Seychelles er á CQ svæði 39 og IOTA AS-024; fjarlægð frá TF er um 9500 km.
Mætum tímanlega! Veglegar kaffiveitingar.
P.s. Keli mun kynna Páskaleikana 2019 eftir frásögnina af ferðinni til Seychelles eyja.
ÍRA gekkst fyrir nýjung í félagsstarfinu í Skeljanesi í dag laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða grunnnámskeið með Arduino örtölvur í formi sýnikennslu og verkefna fyrir byrjendur. Leiðbeinandi var Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS.
Fullbókað var á námskeiðinu, en miðað er við mest sex þátttakendur en átta voru mættir. Þegar tíðindamann bar að garði skömmu fyrir hádegið voru menn önnum kafnir líkt og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum.
Námskeiðið hófst kl. 10 árdegis og er miðað við að því ljúki um kl. 15 í eftirmiðdaginn. Aðspurður sagði TF3VS að athugað verði með að bjóða nýtt námskeið eftir páska.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-06 13:32:292019-04-07 09:41:53FULLBÓKAÐ Á ARDUINO NÁMSKEIÐ HJÁ TF3VS
Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, mætti í Skeljanes 4. apríl með erindið „Radíótækni í árdaga“.
Hann fór yfir söguna (með dæmum) um hvernig frumherjarnir smíðuðu senda og viðtæki áður en lampar og transistorar voru fundnir upp. Upphaflegu radíótækin voru nefnilega vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð á rafeindatækni á tímum þegar neistasendar voru alls ráðandi.
Erindið var vandað, forvitnilegt, skemmtilegt og afar vel flutt. Vilhjálmur sló á létta strengi á milli þess sem hann skýrði frá tækninni, dreifði á meðal viðstaddra tæknibókum og sýnishornum af ýmsu tagi. Rúsínan í pylsuendanum var síðan þegar hann ræsti raunverulegan neistasendi og leyfði viðstöddum að sjá neistann og síðar, að hlusta á neistann í viðtæki (sjá myndbandsbút neðst).
Það var góð mæting í Skeljanes þetta fallega síðvetrarkvöld í Reykjavík, eða alls 36 manns. Þar af voru 4 gestir. Vilhjálmur uppskar verðskuldað lófaklapp að lokum. Bestu þakkir til Vilhjálms Þórs TF3DX.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-05 11:37:522019-04-07 09:36:58TF3DX FÓR Á KOSTUM Í SKELJANESI
Grunnnámskeið með Arduino örtölvur verður haldið í Skeljanesi laugardaginn 6. apríl. Um er að ræða sýnikennslu og verkefni fyrir byrjendur. Leiðbeinandi er Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS. Námskeiðið hefst kl. 10:00.
Miðað er við að þátttakendur komi með eigin Arduino örtölvur (er ekki skilyrði) og vinni hagnýt verkefni sem nýtast í amatör radíói. Menn þurfa helst að hafa eigin fartölvu þótt þeir komi ekki með Arduino.
Félagsmenn eru beðnir að senda póst til félagsins á póstfangið ira hjá ira.is þar sem eftirfarandi kemur fram:
Nafn þátttakanda
Kemur viðkomandi með sína eigin Arduino örtölvu með sér (ekki skilyrði)
Hefur viðkomandi einhverja reynslu af arduino örtölvum
Hefur viðkomandi einhverja reynslu af forritun yfirleitt
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn að nýta þetta spennandi tækifæri. Vandaðar kaffiveitingar.
Næsta erindi á vetrardagskrá ÍRA verður í boði fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:30. Þá mætir Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, í Skeljanes með erindið „Radíótækni í árdaga.“
Vilhjálmur segir sjálfur: „Hvernig var hægt að smíða senda
og viðtæki áður lampar og nórar (transistorar) voru fundnir upp? Segja má að
upphaflegu radíótækin hafi verið vélræn (mekanísk) í grunninn, fremur en byggð
á rafeindatækni. Neistasendar voru alls ráðandi, sjá mynd. Neistasendir verður ræstur,
þó ekki út í loftnet! Notkun þeirra til fjarskipta var bönnuð fyrir löngu“.
Stjórn ÍRA hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Veglegar
kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-04-02 08:59:062019-04-02 09:00:11TF3DX Í SKELJANESI: RADÍÓTÆKNI Í ÁRDAGA
Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 2. tölublaðs CQ TF 2019, sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni. Margir hafa lagt hönd á plóg og mörgum ber að þakka, en sér í lagi TF3VS sem annaðist umbrotsvinnu. CQ TF er að þessu sinni 40 blaðsíður að stærð. 73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00Ölvir Sveinssonhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngÖlvir Sveinsson2019-03-31 20:39:102019-03-31 22:32:12Nýtt CQ TF er komið út
Jónas Bjarnason TF3JB mætti í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 með erindið: „DX sambönd og hvernig best og fljótvirk-ast er staðið að öflun QSL korta“.
Fyrst var farið yfir nokkrar glærur í myndvarpanum, m.a. (1)
hvers vegna við notum QSL kort; (2) hvar menn „ná“ DX‘inum helst; (3) mikilvægi
þess að QSO sé örugglega í log; (4) hvaða aðferðum má beita til að fá QSL kort
fljótt; (5) umfjöllun um eigið QSL kort; og (6) umfjöllun um að erfiðara getur
verið að fá QSL kort frá sumum löndum en öðrum og fl.
Í sófasettinu var síðan rætt um hinar ýmsu aðferðir sem hægt er að beita til að ná „þeim feita“ og rætt um DX‘inn út frá QSO’um við einstaklinga, klúbbstöðvar og DX-leiðangra. Farið yfir fyrirbærin DIRECT kort, QSL MANAGER‘A, OQRS aðferð og kosti þess að gerast styrktaraðili DX-leiðangra.
Alls mættu 10 félagar og 1 gestur þennan veðurmilda sunnudagsmorgun í Skeljanes. Umræðum lauk formlega upp úr kl. 12:30 en umfjöllunarefnið var „heitt“ þannig að síðustu menn ræddu málin áfram fram undir kl. 14. TF3JB fékk að lokum gott klapp og lofaði að gera grein fyrir umfjöllunarefninu í CQ TF.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-03-31 19:45:232019-03-31 19:55:30SÓFAUMRÆÐUR Í SKELJANESI UM DX & QSL KORT
Jónas Bjarnason TF3JB mætir í sófaumræður sunnudaginn 31. mars kl. 10:30 og er yfirskriftin:
„DX sambönd og hvernig best og fljótvirkast er staðið að
öflun QSL korta“.
Húsið verður opnað kl. 10 árdegis. Miðað er við að dagskrá verði tæmd á hádegi. Kaffi og kaffibrauð frá Björnsbakaríi.
Um sunnudagsopnanir. Sunnudagsopnanir hafa verið skýrðar á þann veg að um sé að ræða fyrirkomulag menntandi umræðu á messutíma sem er hugsuð afslöppuð, þ.e. þar sem menn sitja með kaffibolla í leðursófasettinu og ræða amatör radíó. Tiltekinn leyfishafi sem hefur staðgóða þekkingu á viðkomandi umræðuefni leiðir umfjöllun og svarar spurningum.