Næsti viðburður á vetrardagskrá félagsins fer fram í Skeljanesi laugardaginn 20. október kl. 16-19. Þá munu þeir Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI og Benedikt Guðnason, TF3TNT, verða með kynningu á því hvernig DX-sambönd um gervitungl fara fram.
Þetta er spennandi viðburður, m.a. í ljósi þess að TF3IRA er nú að fullu QRV til fjarskipta af þessu tagi, en á laugardag verður tekið í notkun nýtt “tracking” forrit frá Northern Lights Software Associates (NLSA), Nova for Windows; útgáfa 2.2c, sem er vinsælasta forritið af þessari tegund í heiminum í dag.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn sem hafa í hyggju að koma sér upp búnaði til gervihnattafjarskipta eða hafa áhuga á fjarskiptum af þessu tagi, að láta þennan viðburð ekki fram hjá sér fara.
Gervihnattabúnaður TF3IRA.
(1) VHF/UHF hringpóluð Yagi loftnet frá M2. VHF loftnetið er af 2MCP14 gerð; 14 staka með 10.2 dBdc ávinningi. UHF loftnetið er af 436CP30 gerð; 30 staka með 14.15 dBdc ávinningi. (2) Rótor er frá Yaesu af G-5400B gerð, sambyggður fyrir lóðréttar og láréttar stillingar. Með honum fylgir fjölstillikassi (e. Elevation Azimuth Dual Controller) stýranlegur frá tölvu. (3) VHF og UHF formagnarar eru frá SSB-Electronic GmbH. Mögnun er 20 dB/0,8 dB suðhlutfall á VHF og 20 dB/0,9 dB suðhlutfall á UHF. (4) Kenwood TS-2000 sendi-/móttökustöð félagsins er notuð til fjarskipta um gervitungl. Hún er 100W á 144-146 MHz og 50W á 430-440 MHz.