Nú á sunnudag verður félagsaðstaðan opin frá kl. 9 til 12.  Það verður heitt kaffi á könnuni og nýbakað vínabrauð.  Þema dagsins eru loftnetshugmyndir og þáttaka í keppnum.  Er hægt að koma upp loftneti og taka þátt í næsta CQ WW 160m á CW 29 til 31 janúar n.k.?

73

Guðmundur, TF3SG

Radíóamatörar um allan heim eru beðnir um að taka tillit til neyðarfjarskiptaumferðar á tíðnunum 14245, 14300, 7045 og 3720 kHz í dag og næstu daga. Þetta er vegna jarðskjálftanna á Haiti. Sjá nánar meðfylgjandi upplýsingar:

“Amateur Radio operators should be made aware that emergency traffic pertaining to the Haitian earthquake is expected on 14265 kHz. CO2KK, Arnie, the IARU Region II Area C Emergency Coordinator, has organized nets on 7045 and 3720 kHz. As of 0245Z today no HH stations had checked in. Additional frequencies may be activated on different bands at different times of day, so be sure to listen carefully before transmitting to make sure you are not interfering with emergency traffic.

Late yesterday a 7.0 magnitude earthquake hit Haiti (HH), which has since been followed by more than a dozen aftershocks. HH2/HB9AMO, Pierre, is OK and was located about 140 km north of Port-au-Prince in Cap Haitien. He is there working for the United Nations World Food Program. Later today Pierre will be traveling to the capital. Communications in and out of Haiti have been largely cut. No word has been received as of yet from any of the national HH Amateur Radio operators”.

TF2JB

Comment frá TF3Y

Það er fróðleg umfjöllun á vef CNN um amatörfjarskipti á Haiti í kjölfar náttúruhamfaranna hér .

 Comment frá TF3JA

og á http://www.arrl.org/arrlletter/?issue=2010-01-21

Laugardaginn 23. janúar næstkomandi er fyrirhugað að halda amatörpróf fyrir þá sem vilja öðlast réttindi sem amatörar eða auka réttindi sýn (úr N leyfi í G leyfi).

Raf- og radíótækniprófið verður haldið í Flensborgarskóla (gengið inn norðanmeginn, sjá hér ) kl. 10:00 um morguninn og prófið í lögum og reglugerð ásamt viðskiptaháttum kl. 12:00.

Þeir sem ekki sitja námskeiðið sem nú er í gangi til undirbúnings en hafa hug á að þreyta próf eru beðnir um að láta Hrafnkel TF3HR vita (he@klaki.net).

 TF3HR

TF3RPC er kominn í loftið á ný – reiðubúinn til þjónustu! Endurvarpinn hefur jafnframt fengið nýja tíðni sem er 25 kHz ofar í bandinu heldur en sú eldri. Nýja tíðnin er: 145.775 MHz (eldri tíðni var 145.750 MHz).

Nýja tíðnin var í hlustun allan desembermánuð fram í byrjun þessa mánaðar. Síðan hefur stöðin verið prufukeyrð í sendingu á nýju tíðninni að undaförnu. Niðurstöður lofa mjög góðu. Engu að síður verður að líta á næstu 3 mánuði sem reynslutímabil og eru menn hvattir til að nota endurvarpann svo og að muna eftir að endurforrita stöðvar sínar (og leitara) með nýju tíðninni: 145.775 MHz.

Endurvarpsstöðin er af gerðinni Kenwood TKR-750 og var hún til viðgerðar hjá Sigurði Harðarsyni, TF3WS. Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði vel unnið verk.

 TF2JB

Úrslitin í SSB hluta CQ WPX keppninnar 2009 hafa verið gerð opinber. Alls skiluðu sjö íslenskar stöðar inn radíódagbókum til keppnisstjórnar.

Bestum heildarárangri TF-stöðva náði Jón Ágúst Erlingsson, TF3ZA, eða 1,088,472 punktum. Hann keppti í einmenningsflokki á 14 MHz (hámarks útgangsafl). Jón hafði alls 1336 QSO og 616 forskeyti (e. prefixes). Sigurður Jakobsson, TF3CW, náði næst bestum heildarárangri, eða 853,440 punktum. Hann keppti í einmenningsflokki á öllum böndum (hámarks útgangsafl). Sigurður hafði alls 941 QSO og 480 forskeyti. Andrés Þórarinsson, TF3AM, náði þriðja besta árangri, eða 100,188 punktum. Hann keppti í einmenningsflokki á öllum böndum (hámarks útgangsafl). Andrés hafði alls 342 QSO og 242 forskeyti.

Fyrstu morsútsendingar á nýju ári hefjast 7 janúar kl. 19.00 og það er Jón Þóroddur, TF3JA sem heldur ótrauður áfram því starfi sem hófst seinni part síðasta árs.  Sendingar verða á 3710 KHz. Nánar verður sagt frá morskennslu ÍRA seinna.

73

Guðmundur, TF3SG

Sælir félagar, langar að segja ykkur frá því að í gærmorgun 3. janúar var ég með tvö sambönd við ZL1 og ZL4.  Hreint ótrúlegt merki frá ZL1 sem var með merki upp á 57.  Einnig sterk merki í Alaska, og svo Japan kl. 15.45 GMT  Sambandið við ZL4DH er lengsta samband sem ég hef haft samtals 17.819 km. samkvæmt Google Earth en ZL4DH er í TeAnau í Fiordland.

73 bestu jóla og áramótakveðjur og takk fyrir árið sem var að líða,

Guðmundur, TF3SG

Comment frá TF2JB

Þetta er frábær árangur Guðmundur. Til hamingju.
73 de TF2JB.

Stjórn Í.R.A. óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári.

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Sælir félagar, langar að segja ykkur frá því að ég var að prófa nýtt loftnet á 80m SSB og var svo heppinn að vera með flott samband strax við VK6LK, einnig HL3, Mexíkó og nokkrar JA.

73

Guðmundur, TF3SG

síðasta blaði CQ TF var auglýst eftir áhugasömum félagsmönnum til þess að endurskoða og fara yfir reglur TF útileikana.

Upprunalega var frestur til 14. nóvember s.l.  Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest til áramóta.

Félagsmenn sem áhuga hafa á að starfa í þessum starfshóp, er bent á að hafa samband við formann (TF2JB) eða varaformann (TF3SG)

73

Guðmundur, TF3Sg