Ágætu félagar!
Nýtt töluvpóstfang hefur verið tekið í notkun fyrir þá sem vilja hafa samband við félagið. Það er tf3ira@gmail.com og verður í notkun til bráðabirgða uns ira@ira.is kemst í lag.
73 de TF2JB.
Ágætu félagar!
Nýtt töluvpóstfang hefur verið tekið í notkun fyrir þá sem vilja hafa samband við félagið. Það er tf3ira@gmail.com og verður í notkun til bráðabirgða uns ira@ira.is kemst í lag.
73 de TF2JB.
Undanfarin þrjú kvöld hefur Morse-hópurinn verið með CW-tilraunaútsendingu á 3712 kHz. Sent er frá TF3IRA og byrjað klukkan 9:30 á kvöldin. Í gærkvöldi var sendur út fyrsti hluti texta sem finna má á á WIKIPEDIA-vefnum: http://en.wikipedia.org/wiki/Little_Red_Riding_Hood og verður því haldið áfram í kvöld.
Æfingatextarnir verða settir inn á heimasíðu hópsins og þar geta þeir sem nota tækifærið og æfa sig sett inn textann sem þeir náðu. Og nú er um að gera að setja sinn texta/árangur sem fyrst eftir að æfingunni lýkur því vel líklegt er að einhver verðlaun verði í boði fyrir þann sem fyrstur setur inn réttastan texta. Heimasíða hópsins er í veftrénu undir “hvað er amatörradíó”.
Í kvöld mun Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA hefja QTC sendingar á morsi á 3710 kHz. Sendingarnar hefjast kl. 21.30 og standa í um 30 mínútur. Textinn sem sendur verður mun vera aðgengilegur á netinu og eru menn beðnir að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Í.R.A. og póstlista. Í fyrstu mun vera sent út á hverju kvöldi í eina viku á sama tíma.
73
Guðmundur, TF3SG
Morse-æfingasendingar hafa verið undanfarin tvö kvöld og til stendur að reyna að bæta við sendingu á samfelldum texta og um að gera að reyna að lesa þann texta beint í höfuðið eins og það er kallað.
73 de TF3JA
Á næsta fimmtudag 26. nóvember, mun Kristján Benediktsson, TF3KB halda erindi í félagsheimili Í.R.A. og gera grein fyrir skipulagi alþjóðasamtaka amatöra IARU, hinna ýmsu svæðissamtaka eins og IARU svæði 1 og norrænu samtökunum NRAU, og aðild Í.R.A. að þessu starfi. Gert er ráð fyrir að erindi Kristjáns hefjist upp úr kl. 20.15. Það er margt spennandi að gerast í samtökum amatöra erlendis. Kristján er manna fróðastur og getur miðlað af áratuga reynslu sinni af samskiptum sínum við félaga erlendis.
73
Guðmundur, TF3SG
Góðir félagar!
Veit einhver til þess að haft hafi verið 160 m QSO við Japan héðan úr bíl, eða annað álíka langt?
Undanfarið hef ég loks verið að klára breytingu á bílloftnetinu mínu og smíða til þess gerðan tjúner. Ekki síst til að geta hlustað úr bílnum á 160 m á stöðum þar sem suðið er minna en víðast í Reykjavík og heima hjá mér. Ekki seinna vænna að ná í skottið á þessu einstaka sólblettalágmarki, sem kannski kemur aðeins einu sinni á virkri æfi amatörs.
Ég keyrði út að Gróttu í kvöld til að prófa, og kallaði CQ DX á 1823 kHz CW. Eftir nokkur skipti svaraði JA7FUJ með vel læsilegt merki, ég gaf honum 569 og fékk 559 til baka. Ég sagði honum að ég væri með 100 W og “whip ant”, sem hann kvittaði fyrir.
Á eftir kallaði UA9FGR í Asiatic Russia, annan DX utan Evrópu hafði ég ekki.
Eftir þetta hlustaði ég eftir Japönum sem Evrópa var að hafa samband við, til að fá hugmynd um skilyrðin. Þau voru ekki sérlega góð, aðeins 2 voru með svo góð merki að ég las þá auðveldlega. Aðrir voru misilla læsilegir og marga heyrði ég bara alls ekki þó þeir fengju gott RST í Evrópu. Þegar TF4M kom á bandið kl. 21:30 tók hann 4 QSO, að ég held, við Japan. Ég heyrði engan þeirra. Þó suðið væri nógu daufara þarna úti á nesi en inni í bænum til að gera gæfumuninn fyrir notagildi bandsins, var það samt nóg til að kæfa veik merki.
Loftnetið er sett saman með “byssustingstengi” svo það er lítið mál að skipta á styttri topp fyrir umferðina, og/eða taka út spóluna.
Á 160 m fæ ég út 2,1 – 2,4 A RF eftir því hvaða samsetningu ég nota í stönginni.
73, Villi TF3DX
Takk strákar!
Það er komin staðfesting á tölvupósti, sem ég set hér með, m.a. vegna þess að þýðingin er nokkur gestaþraut sem ég gæti þegið hjálp með! En ég held að það yrði lítið úr okkur ef við þyrftum að spreyta okkur á Japönsku.
Hello.
Thank you for QSO for today. I was able to hear your signal surely, and to confirm it. None of JA seems to have been calling though CQ was put out after of me. I was surprised with mobile of 100W. Moreover, I thought pedeshon of the island with/M because I was.
Please send right or wrong of the photograph because my mail address is OK.
JA7FUJ
73, Villi TF3DX
Loksins kom gott veður í Reykjavík og hentugur tími (sunnudaginn 1. nóvember 2009) til að ljúka þeirri vinnu við SteppIR loftnetið sem hófst fyrir réttum 2 mánuðum, þ.e. 30. ágúst s.l. Í dag var straumsnúran fyrir Alfa Spid rótorinn endurnýjuð og hún spennt eftir nýjum burðarstreng í nokkurri fjarlægð frá þeim eldri (en fæðilínan og straumsnúran fyrir SteppIR loftnetið deila áfram eldri burðarstrengnum). Nýtt fyrirkomulag tryggir, að truflanir sem áður voru vegna nálægðar straumsnúranna og fæðilínunnar, hverfa. Hustler 6BTV margbanda loftnetsstöngin var jafnframt yfirfarin. Niðurstaða dagsins: Vel heppnað verk, góður félagsskapur og SteppIR loftnetið nú að fullu nothæft. (TF2JB og Gunnar Svanur Hjálmarsson tóku ljósmyndir).
Fræðslukvöld fimmtudag um EZNEC loftnets herminn.
Á fimmtudaginn 29 október mun Guðmundur Löve, TF3GL segja frá og halda fræðsluerindi um EZNEC forritið. Nokkur forrit eru til sem herma eftir loftnetum en óhætt er að segja að EZNEC hefur í seinni tíð náð töluverðri útbreiðslu. Erindi Guðmundar mun hefjast rétt uppúr kl. 20.00 í félagsheimili ÍRA.
73
Guðmundur, TF3SG
Morsnámskeiðið sem verið hefur í haust heldur áfram á fimmtudögum kl. 19.00 í vetur. Þetta er kjörið tækifæri einnig fyrir þá sem eitthvað kunna og vilja gjarnan auka við hraðann. Axel Sölvason er óþreyttur að halda áfram. Næsti tími er á fimmtudaginn 29. október í félagsheimili ÍRA og ef þáttaka verður góð eru hugmyndir uppi um að bæta við öðrum tíma. 73Guðmundur, TF3SG
Októberhefti CQ TF (4. tbl. 2009) er nú komið út í forútgáfu. Blaðið má finna á vefslóðinni http://dev.ira.is/wp-content/uploads/2016/09/cqtf_27arg_2009_04tbl.pdf á ÍRA spjallinu. Smellið á framangreinda slóð til að opna síðuna með blaðinu á PDF formi. Athugið að eingöngu félagar ÍRA hafa aðgang að þessari vefslóð.
Lesendur geta komið ábendingum um villur eða athugasemdum til ritstjóra, ef einhverjar eru, fram til 24. okt. Ritstjóri gerir lagfæringar eftir því sem þarf og við verður komið. Að því loknu verður endanleg útgáfa blaðsins vistuð á netinu og fjölfölduð.
73 – Kristinn Andersen, TF3KX, ritstjóri CQ TF
Netfang: tf3kx@simnet.is, GSM: 825-8130
Nú fer námskeið til undirbúnings radíóamatörprófs á vegum félagsins Íslenskir radíóamatörar að hefjast.
Námskeiðið er ætlað öllum sem áhuga hafa á að afla sér leyfis hjá Póst- og Fjarskiptastofnun sem radíóamatörar.
Námskeiðið hefst þann 22. október kl 20:30 með kynningarkvöldi um hvað mun fara fram á námskeiðinu. Kennsla hefst svo þriðjudaginn 27. október kl 20:00.
Kynningarkvöldið mun fara fram í aðstöðu félags Íslenskra Radíóamatöra í Skeljanesi.
Námskeiðið hefur vefsíðu þar sem tilkynningar og ýtarupplýsingar tengdar námskeiðinu verður að finna.
Kennt verður svo í Flensborgarskóla. Kennt verður tvisvar í viku, þriðjudags og fimmtudagskvöld frá kl. 20:00.
Gengið er inn norðanmeginn í Flensborgarskóla. Sjá nánar á vefsíðu námskeiðsins.
Námskeiðið stendur í um 8 vikur og stefnt er á að ljúka því með prófi fyrir jól. Námskeiðið er að mestu bóklegt.
Námskeiðsgjaldið er 12þús kr. og er innifalið í því öll kennslugögn.
Áhugsamir eru beðnir um að mæta á kynningarkvöldið og ganga frá skráningu á námskeiðið.