SMIRK keppnin hefst á laugardag 17. júní kl. 00:00 og lýkur á sunnudag 18. júní kl. 24:00. Keppnin fer fram á tali (SSB) og morsi (CW) á 6 metrum. Skilaboð: RS(T)+4 stafa reitur (e. grid square). http://smirk.info/contest.html
PAJAJARAN keppnin stendur yfir laugardaginn 17. júní frá kl. 00:00 til 23:59. Keppnin fer fram á tali (SSB) á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RS+raðnúmer. https://pbdx-contest.id/
IARU REGION 1 50 MHz keppnin stendur yfir laugardaginn 17. júní frá kl. 14:00 til sunnudags 18. júní kl. 14:00. Keppnin fer fram á tali (SSB) og morsi (CW) á 6 metrum. Skilaboð: RS(T)+QSO númer+6 stafa reitur (e. grid square). https://www.iaru-r1.org/wp-content/uploads/2021/03/Rules-2021.pdf
STEW PERRY TOPBAND CHALLANGE keppnin stendur yfir laugardag 17. júní frá kl. 15:00 til sunnudags 18. júní kl. 15:00. Keppnin fer fram á morsi (CW) á 160 metrum. Skilaboð RST+4 stafa reitur (e. grid square). https://www.kkn.net/stew/
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-12 16:35:042023-06-12 16:43:13OPIÐ Í SKELJANESI FIMMTUDAG 15. JÚNÍ
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-07 19:47:492023-06-07 19:49:16ENN TEKIÐ Á MÓTI EFNI Í CQ TF
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-06-04 17:22:042023-06-04 17:22:05OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 8. JÚNÍ
Valgeir Pétursson, TF3VP mætti í Skeljanes fimmtudaginn 1. júní og flutti erindið: „Samsetning á HF transistormagnara“.
Valgeir skýrði okkur frá í máli og myndum, hvernig smíði RF magnara fyrir HF böndin og 50 MHz fer fram. Hann getur gefið út allt að 1kW og vinnur frá 160-10m, auk 50 MHz. Fram kom hjá Valgeiri, að sumt er heimasmíðað en margt er keypt samsett og jafnvel forprófað, flest það veigamesta frá Jim, W6PQL.
Öll samsetning, uppröðun og fyrirkomulag eininganna var hönnum Valgeirs. Magnarinn var opinn til sýnis á staðnum ásamt aflgjafa og síueiningu og þótti flestum mikið til koma að sjá bæði eljuna og natnina sem lögð hefur verið í verkið.
Valgeir svaraði spurningum, þakkaði Benedikt Sveinssyni, TF3T fyrir dygga aðstoð og fékk að lokum verðskuldað klapp og þakkir viðstaddra. Menn ræddu síðan málin yfir kaffi fram undir kl. 23:00.
Sérstakir gestir félagsins þetta fimmtudagskvöld voru þeir Daggeir Pálsson, TF7DHP frá Akureyri, Kristján J. Gunnarsson, TF4WD frá Sauðárkróki og Dervin Beldman, PD9DX frá Holten í Hollandi.
Alls voru 35 félagsmenn og 2 gestir í Skeljanesi þetta ágæta fimmtudagskvöld í mildu sumarveðri í vesturbænum í Reykjavík.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-05-30 19:23:482023-05-30 19:24:47RITSTJÓRI KALLAR EFTIR EFNI Í CQ TF
Síðasti viðburður á vetrardagskrá félagsins vorið 2023 verður haldinn í Skeljanesi fimmtudaginn 1. júní kl. 20:30.
Þá mætir Valgeir Pétursson, TF3VP í Skeljanes með erindið: Samsetning á HF transistormagnara.
Valgeir hefur verið að smíða RF magnara fyrir HF tíðnir með transistorútgangi og ætlar að segja okkur frá þessu ferli í máli og myndum. Hann kemur með smíðagripinn með sér á staðinn.
Félagsmenn eru hvattir til að missa ekki af erindi Valgeirs. Veglegar kaffiveitingar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-05-29 11:12:432023-05-30 11:42:21TF3VP Í SKELJANESI Á FIMMTUDAG
Tvennt var á dagskrá í Skeljanesi fimmtudaginn 25. maí. Annars vegar afhending verðlauna og viðurkenninga fyrir Páskaleikana 2023 sem Hrafnkell Sigurðsson, TF8KY umsjónarmaður annaðist og hins vegar flutningur erindis kvöldsins: Gervitungl radíóamatöra í umsjá Heimis Þórs Sverrissonar, TF3ANT (W1ANT).
Hrafnkell, TF8KY byrjaði dagskrána kl. 20:00 og flutti fróðlegt yfirlit um gang leikanna í ár, m.a. um fjölda stöðva sem léku til stiga, virkni færanlegra stöðva, skráð QSO og fjölda banda sem notuð voru í leikunum ásamt upplýsingum um lengstu sambönd. Síðan fór fram afhending verðlauna og viðurkenninga. Þessir fengu verðlaunagripi ÍRA: 1. sæti TF8KY, 2. sæti TF1AM og 3. sæti TF2MSN. Viðurkenningaskjöl ÍRA: 1. sæti TF2MSN, 2. sæti TF8KY og 3. sæti Sigmundur Karlsson, TF3VE.
Heimir Þór Sverrisson, TF3ANT (W1ANT) byrjaði sitt erindi kl. 20:30 um Gervitungl radíóamatöra. Það skiptist í þrjá kafla: (1) Samskiptin þar sem fjallað var um endurvarpa í rauntíma og um geymslu og áframsendingu gagna. (2) Tilraunir þar sem fjallað var um þær fjölmörgu tilraunir sem radíóamatörar hafa gert í geimnum allt frá fyrstu sendingunum frá OSCAR-1 í desember 1961 og (3) um Fræðsluþáttinn, þ.e. að með samstarfi við menntastofnanir hafa radíóamatörar hjálpað menntastofnunum við vísindatilraunir úr geimnum, og síðar geta notað sömu tungl til samskipta.
Erindi Heimis Þórs var fróðlegt, vandað og vel heppnað og veitti viðstöddum sýn inn í sérhæfðan heim geimfjarskipta. Það var vel upp byggt og hann nálgaðist viðfangsefnið af léttleika og lipurð vísindamannsins sem hefur innsýn, þekkingu og leiftrandi áhuga á umfjöllunarefninu. Heimir bauð upp á spurningar úr sal samhliða flutningi og var þeim svarað jafnóðum, fljótt og vel.
Sérstakar þakkir til þeirra Hrafnkels og Heimis Þórs fyrir frábær erindi. Hrafnkell hefur gert Páskaleikana að stórviðburði og Heimir Þór færði okkur vandað erindi í hæsta gæðaflokki. Einnig sérstakar þakkir til Hinriks Vilhjálmssonar, TF3VH fyrir tæknistjórn við að streyma viðburðinum.
Erlendir gestir félagsins þetta fimmtudagskvöld voru þau Christian, DL1MGB og XYL. Chris er þekktur keppnis- og “DX-maður“ sem m.a. hefur verið QRV í alþjóðlegum keppnum og frá tugum DXCC landa, bæði á eigin vegum og með fleirum frá sjaldgæfum DXCC einingum, s.s. Clipperton.
Alls tóku 55 þátt í viðburðum þetta frábæra fimmtudagskvöld í Skeljanesi; 47 á staðnum (þar af 6 gestir) og 8 tengdir yfir netið.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2023-05-22 09:36:292023-05-23 22:21:23SKELJANES Á FIMMTUDAG