Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 3. febrúar frá kl. 20:00.

Í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem gildir til 24. febrúar n.k., hafa verið gerðar tilslakanir. Almennar fjöldatakmarkanir miðast nú við 50 manns og er ekki skylt að nota andlitsgrímur þar sem hægt er að viðhafa a.m.k. eins metra nándarreglu.

Í ljósi þessa verður grímunotkun valkvæð, þ.e. ekki er gerð krafa um slíkt þann 3. febrúar. Í annan stað, verða kaffiveitingar teknar upp á ný.

Almennt séð er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.

Verið velkomin í Skeljanes!

Stjórn ÍRA.

https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Samkomuregluger%c3%b0%20fr%c3%a1%2029.%20jan%c3%baar%202022%20undirritu%c3%b0.pdf

.

.

Síðdegis Í dag, 29. janúar, var KiwiSDR viðtækið [sem var í Vík í Mýrdal] flutt og sett upp að Galtastöðum í Flóahreppi. Viðtækið hefur afnot af tveimur T-loftnetum sem eru strengd á milli sex 15 metra hárra tréstaura þar á staðnum.

KiwiSDR viðtækin vinna frá 10 kHz upp í 30 MHz. Hægt er að hlusta á AM, FM, SSB og CW sendingar og má velja bandbreidd sem hentar hverri mótun. Allt að átta notendur geta verið skráðir inn samtímis.

Georg Kulp, TF3GZ lánar viðtækið, Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A lánar beini og veitti tæknilega aðstoð og Jóhann Einarsson, TF1TJN útvegaði aðstöðu og setti tækið upp á staðnum.

Slóðin er:  http://floi.utvarp.com/

Þakkir til Ara, Georgs og Jóhanns fyrir verðmætt framlag. Hér um að ræða mikilvæga viðbót fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir í þessum tíðnisviðum, auk hlustara og allra sem hafa áhuga á útbreiðslu radíóbylgna.

Stjórn ÍRA.

T-lofnetin sem eru tengd við KiwiSDR viðtækið eru strengd efst á milli sex 15 metra hárra tréstaura.

KiwiSDR viðtækin í Bláfjöllum og Vík í Mýrdal hafa verið teknir niður. Viðtækið sem var í Vík verður sett upp á næstunni á nýjum stað fyrir austan fjall.

Georg Kulp, TF3GZ fór í Bláfjöll í dag (29. janúar) og sótti KiwiSDR viðtækið. Að sögn Georgs er leitað að nýrri staðsetningu. Í sömu ferð var stafrænn D-STAR endurvarpi Ólafs B. Ólafssonar, TF3ML tengdur á ný og í framhaldi uppfærður af Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF1A með aðstoð Terry M. Stader, KA8SCP.

Endurvarpinn TF3RPI hefur gátt yfir netið út í heim og hefur uppfærslan í för með sér aukna möguleika og vinnslugetu frá því sem áður var. Tækið styður þar með nýjustu D-STAR uppfærslurnar frá Icom. Tíðni: 439.950 MHz (QRG inn -5 MHz).

KiwiSDR viðtækin á Bjargtöngum og á Raufarhöfn sem ná yfir tíðnisviðið fra 10 kHz til 30 MHz eru í góðu lagi, auk Airspy R2 SDR vitækisins í Perlunni í Reykjavík sem þekur tíðnisviðið 24-1800 MHz.

Bjargtangar: http://bjarg.utvarp.com/
Raufarhöfn: http://raufarhofn.utvarp.com/
Perlan Reykjavík: http://perlan.utvarp.com/

Þakkir til þeirra Ara, Georgs og Terry‘s.

Stjórn ÍRA.

Vetrarríki í Bláfjöllum 29. janúar 2022. Ljósmynd: Georg Kulp TF3GZ.
Mynd af tækjaskápnum fyrir TF3RPI í stöðvarhúsinu í Bláfjöllum. Ljósmynd: Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A.

Ágæti félagsmaður!

Með tilvísan til 17. gr. félagslaga, er hér með boðað til aðalfundar ÍRA sunnudaginn 20. febrúar 2022.

Fundurinn verður haldinn í sérstökum fundarsal safnaðarheimilis Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00.

Dagskrá er samkvæmt 19. gr. félagslaga.

Afhending verðlauna og viðurkenninga vegna fjarskiptaviðburða ársins 2021 fer fram í fundarhléi.

Reykjavík 28. janúar 2022,
fyrir hönd stjórnar ÍRA,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Ágætu félagsmenn!

Mér er ánægja að tilkynna um útkomu félagsblaðsins okkar, CQ TF. 1. tbl. 2022, sem kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni.

73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.

Vefslóð á nýja blaðið: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2022/01/2022-1.pdf

Sigurður Kolbeinsson, TF8TN hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.

Samkvæmt minningargrein sem birtist í Mbl. í dag, 25. janúar lést hann 22. desember 2021 og hefur útförin farið fram.

Hann var á 57. aldursári og handhafi leyfisbréfs radíóamatöra nr. 478.

Um leið og við minnumst Sigurðar með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.

Fyrir hönd stjórnar ÍRA,

Jónas Bjarnason, TF3JB
formaður

Stjórn ÍRA hefur ákveðið að félagsaðstaðan í Skeljanesi verði áfram lokuð fimmtudaginn 27. janúar.

Ákvörðunin byggir á reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem gildir til 2. febrúar n.k. þar sem fjöldatakmarkanir miðast nú við mest 10 manns. Og ennfremur á yfirlýsingu ríkislögreglustjóra frá 11. þ.m. janúar, um neyðarstig almannavarna vegna Covid-19.

Ákvörðunin gildir fyrir fimmtudag 27. janúar. Athugað verður með að auglýsa opnun á ný strax og aðstæður leyfa.

Það er von okkar að þessari ákvörðun fylgi ríkur skilningur.

Stjórn ÍRA.

CQ World Wide 160 metra morskeppnin fer fram um næstu helgi. Keppnin hefst á föstudag 28. janúar kl. 22:00 og lýkur á sunnudag 30. janúar kl. 22:00. Markmiðið er að ná eins mörgum samböndum og unnt er við aðrar stöðvar radíóamatöra um allan heim á keppnistímanum.

QSO punktar.
Sambönd við TF stöðvar 2 punktar; innan Evrópu 5 punktar; utan Evrópu 10 punktar og við /MM stöðvar 5 punktar.

Margfaldarar.

  • Einingar á DXCC lista.
  • Lönd á WAE lista. Þau eru: GM (Hjaltlandseyjar), IG9/IH9 (Lampedusa og Pantelleria eyjar), IT, JW (Bjarnareyja), TA1 (Evrópuhluti Tyrklands) og 4U1VIC.
  • 48 ríki Bandaríkjanna (e. contiguous states) og „District of Columbia (DC)“.
  • 14 fylki Kanada: VO1, VO2, NB, NS, PEI (VY2), VE2, VE3, VE4, VE5, VE6, VE7, VE8 (NWT), VY1 (YUK), VY0.

Leyfilegt tíðnisvið í keppninni á IARU Svæði 1 (okkar svæði) er 1810-2000 kHz. Ath. að leyfishafar sem ætla að vinna á tíðnisviðinu 1850-1900 kHz  þurfa að hafa sótt um tíðni- og aflheimildir til Fjarskiptastofu fyrir keppnina. Keppnisreglur: https://www.cqww.com/

Með ósk um gott gengi!

Stjórn ÍRA.

Ávarpsbréf til nýrra félaga er tilbúið og lauk vinnu við það í byrjun janúar. Um er að ræða 3. útgáfu. Bæklingurinn er hluti af upplýsingum sem sendar eru til nýrra félaga, sem jafnframt fá send lög félagsins, nýjasta CQ TF og nýjustu ársskýrslu. Sjá má ávarpsbréfið á þessari vefslóð:

http://www.ira.is/wp-content/uploads/2022/01/Avarp_2022.pdf

Útgáfuform er óbreytt, þ.e. opna í stærðinni A4 (fjórar blaðsíður) sem prentaðar í lit. Ávarpsbréfið veitir innsýn í starfsemi ÍRA og tæpir á helstu þjónustuþáttum við félagsmenn. Efnið verður einnig til aflestrar á heimasíðu félagsins.

Verkefnið var unnið af stjórn félagsins en umbrot var í öruggum höndum Vilhjálms Í. Sigurjónssonar, TF3VS.

Stjórn ÍRA.

Airspy R2 SDR viðtækið í Perlunni í Reykjavík komst í lag í dag, 21. janúar. Það hafði verið úti í nokkurn tíma vegna bilunar. Tiðnispan þess er frá 24 MHz til 1800 MHz. Vefslóð: http://perlan.utvarp.com/ Þakkir til Karls Georgs Karlssonar, TF3CZ.

KiwiSDR viðtækið á Raufarhöfn verður væntanlega komið í lag fyrir kvöldið (21. janúar) en það hefur verið úti síðasta sólarhringinn. Tíðnispan þess er frá 10 kHz til 30 MHz. Vefslóð: http://raufarhofn.utvarp.com/

Kiwi SDR viðtækin í Bláfjöllum, Bjargtöngum og í Vík í Mýrdal eru í góðu lagi.

Stjórn ÍRA.

Uppfært 21. janúar kl. 17:04 – Viðtækið á Raufarhöfn komið inn! Þakkir til Rögnvaldar Helgasonar, TF3-055.