Næsta námskeið ÍRA til undirbúnings amatörprófs verður haldið 16. september til 29. október í Háskólanum í Reykjavík.
Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur og lýkur með prófi Fjarskiptastofu til amatörleyfis, laugardag 2. nóvember.
Námskeiðið er öllum opið og eru ekki gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning. Kennt verður í HR á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl. 18:30-21:30. Námskeiðsgjald er 24.500 krónur.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-08-19 13:01:492024-08-19 19:09:05OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 22. ÁGÚST
SCRY/RTTYOps WW RTTY CONTEST Keppnin er í tveimur hlutum: Fyrri: Föstudag 23. ágúst frá kl. 22:00 til kl. 12:00 laugardag 24. ágúst. Síðari: Laugardag 24. ágúst frá kl. 12:00 til kl. 23:59 sunnudag 25. ágúst. Keppnin fer fram á RTTY á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + 4 tölustafir fyrir ár sem þátttakandi fékk fyrst leyfisbréf. https://rttyops.com/index.php/contests/cq-rttyops-ww-scry-rtty/cq-rttyops-ww-scry2-rtty-rules
HAVAII QSO PART Keppnin stendur yfir laugardag 24. ágúst frá kl. 04:00 til mánudags 26. ágúst kl. 04:00. Keppnin fer fram á CW, PHONE og DIGITAL. Skilaboð stöðva á Hawaii: RS(T) + 2 bókstafir fyrir hérað (e. district). Skilaboð stöðva í W/VE: RS(T) + 2 bókstafir fyrir ríki í USA eða fylki í Kanada (e. State/Province). Skilaboð annarra: RS(T). http://www.hawaiiqsoparty.org/
ALARA CONTEST Keppnin stendur yfir laugardag 24. ágúst frá kl. 06:00 til sunnudags 25. ágúst kl. 05:59. Keppnin fer fram á CW og SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð ALARA félaga: RS(T) + nafn. Skilaboð annarra: RS(T) + raðnúmer + nafn + 2 bókstafir fyrir YL/OM/CL (CL = klúbbstöð). https://www.alara.org.au/contests
YO DX HF CONTEST Keppnin stendur yfir laugardag 24. ágúst frá kl. 12:00 til sunnudags 25. ágúst kl. 12:00. Keppnin fer fram á CW og SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð YO stöðva: RS(T) + sýsla (e. county). Skilaboð annarra: RS(T) + raðnúmer. https://www.yodx.ro/
U.S. ISLANDS QSO PARTY Keppnin stendur yfir laugardag 24. ágúst frá kl. 03:00 til sunnudags 25. ágúst kl. 03:00. Keppnin fer fram á CW, SSB og DIGITAL á 160, 80, 40, 20, 15, 10 og 6 metrum. Skilaboð stöðva á eyjunum: RS(T) + USI/CISA kóði (sjá sérákvæði fyrir DIGI QSO í reglum). Skilaboð annarra: RS(T) + ríki í USA/fylki í Kanada/DXCC eining (sér sérákvæði fyrir DIGI QSO í reglum). http://usislands.org/qso-party-rules/
WORLD WIDE DIGI DX CONTEST Keppnin stendur yfir laugardag 24. ágúst frá kl. 12 til sunnudags 25. ágúst kl. 12:00. Keppnin fer fram á FT4/8 á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: 4 stafa Maidenhead reitur (e. gridsquare). https://ww-digi.com
CVA DX CONTEST Keppnin stendur yfir laugardag 24. ágúst frá kl. 18:00 til sunnudags 25. ágúst kl. 21:00. Keppnin fer fram á SSB á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð stöðva í Brasilíu: RS + 2 bókstafir fyrir hérað (e. state). Skilaboð annarra: RS + 2 bókstafir fyrir meginland (e. continent). Skilaboð klúbbstöðva sem tengjast her Brasilíu: RS + bókstafirnir MIL. https://cvadx.org/
ARRL International DX CW keppnin fór fram 17.-18. febrúar s.l. Meðal þátttakenda var félagsstöðin TF3W. Þeir sem virkjuðu stöðina voru Alex M. Senchurov, TF/UT4EK og Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA.
Niðurstöður hafa nú borist frá keppnisstjórn ARRL og varð TF3W í 3. sæti í Evrópu og í 7. sæti yfir heiminn í keppnisflokknum „Multioperator, Single transmitter, Low power“. Alls voru höfð 1.539 sambönd á 5 böndum. Viðvera: 33 klst. og heildarfjöldi punkta: 975.480. Þakkir til Alex og Sæmundar fyrir þátttökuna og hamingjuóskir með árangurinn.
Alls var skilað inn dagbókum fyrir eftirfarandi 6 TF kallmerki í keppninni: TF2R, TF3DC, TF3EO, TF3SG, TF3VS og TF3W.
Þetta er 27. árið sem viðburðurinn verður haldinn. Skráð þátttaka er þegar frá um 400 vitum og vitaskipum í 50 þjóðlöndum, þ.á.m. frá öllum Norðurlöndunum.
Um er að ræða tveggja sólarhringa viðburð og er miðað við, að flestir sem koma til dvalar í vita, á vitaskipi eða í nágrenni hafi komið sér fyrir upp úr hádegi á laugardegi. Enginn íslenskur viti hefur verið skráður í ár.
Það er vaskur hópur félagsmanna sem stendur að baki uppsetningu og annast rekstur og viðhald viðtækja yfir netið. Þeir leggja metnað í að halda þeim gangandi – svo ekki sé talað um tíma og fjármuni. Þetta eru Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A (Reykjavík), Georg Kulp TF3GZ (Reykjavík), Árni Helgason TF4AH (Patreksfirði), Karl Georg Karlsson TF3CZ (Reykjavík) og Kristján J. Gunnarsson, TF4WD á Sauðárkróki. Um er að ræða eftirtalin viðtæki með vefslóð:
ÍRA metur þetta framlag mikils og þakkar þessum félagsmönnum fyrir dugnað og elju við að sinna verkefninu sem er mikilvægt fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir í þessum tíðnisviðum, auk hlustara og allra sem áhuga hafa á útbreiðslu radíóbylgna.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-08-15 09:36:012024-08-15 09:38:52HF OG VHF VIÐTÆKI YFIR NETIÐ
SARTG WW RTTY CONTEST Keppnin stendur yfir laugardag 17. ágúst og sunnudag 18. ágúst og er í 3 hlutum. (a) Laugardag kl. 00:00-08:00; (b) laugardag kl. 16:00-24:00; (c) sunnudag kl. 08:00-16:00. Keppnin fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð: RST + raðnúmer. https://www.sartg.com/contest/wwrules.htm
KEYMAN‘S CLUB OF JAPAN CW CONTEST Keppnin hefst laugardag 17. ágúst kl. 12:00 og lýkur sunnudag 18. ágúst kl. 12:00. Hún fer fram á CW á 160, 80, 40, 20, 15, 10 og 6 metrum. Skilaboð JA: RST + 2 bókstafir fyrir hérað (Prefecture/district code). Skilaboð annarra: RST + CQ svæði. https://kcj-cw.com/contest/rule/2024_45_kcj_dx_.pdf
NORTH AMERICAN QSO PARTY, SSB Keppnin hefst laugardag 17. ágúst kl. 18:00 og lýkur sunnudag 18. ágúst kl. 05:59. Hún fer fram á SSB á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð stöðva í NA: RS + Nafn + QTH (ríki í Bandaríkjunum, fylki í Kanada, DXCC eining). Skilaboð annarra: RS + nafn. https://www.ncjweb.com/NAQP-Rules.pdf
CVA DX CONTEST, CW Keppnin hefst laugardag 17. ágúst kl. 18:00 og lýkur sunnudag 18. ágúst kl. 21:00. Hún fer fram á CW á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Skilaboð stöðva í Brasilíu: RST + 2 stafir fyrir hérað (e. state). Skilaboð annarra: RST + 2 bókstafir fyrir meginland (e. continent). Skilaboð klúbbstöðva sem tengjast her Brasilíu: RST + bókstafirnir MIL. https://cvadx.org
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-08-12 22:51:372024-08-12 22:54:19OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 15. ÁGÚST
Laugardaginn 10. ágúst heimsóttu þau Fan Yechen BI1NGN, eiginkona hans og vinur þeirra hjóna félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi. Þau eru búsett í Beijing í Kína og voru hér á landi í stuttri heimsókn sem ferðamenn.
Eftir því sem best er vitað, er Fan fyrsti kínverski radíóamatörinn sem heimsækir ÍRA og fær úthlutað kallmerki frá Fjarskiptastofnun; BI1NGN/TF.
Eftirtaldir félagar tóku á móti gestunum: Jónas Bjarnason, TF3JB formaður ÍRA; Andrés Þórarinsson, TF1AM varaformaður ÍRA; Sigurður R. Jakobsson, TF3CW; Jón Svavarsson, TF3JON og Mathías Hagvaag, TF3MH QSL stjóri TF-ÍRA QSL Bureau.
Fan, BI1NGN hefur verið leyfishafi í fimm ár og er mjög áhugasamur um amatör radíó. Hann sagði að radíóamatörum hafi fjölgað mikið í Kína undanfarin ár. Hann nefndi að klúbburinn hans í Peking telji rúmlega 200 manns og eru þau með aðild að landsfélagi radíóamatöra í Kína, „Chinese Radio Sports And Orienteering Association (CRSAOA)“.
Klúbbfélagar hafa húsnæði þar sem þau hittast og bjóða m.a. upp á námskeið, en þar er ekki aðstaða til að setja upp loftnet. Þess í stað hittast félagarnir um helgar og fara þá á mismunandi staði með sendibúnað og loftnet og setja upp og virkja kallmerki klúbbsins. Hann sagði að það væri mjög vinsælt, en þau eru með klúbbstöð sem hefur kallmerkið BY1TL. Hann segir að þau séu rúmlega 200 í klúbbnum.
Hann var mjög hrifinn af fjarskiptaaðstöðu ÍRA í Skeljanesi en ekki gafst tími til að fara í loftið. Fan nefndi að lokum að þau væru yfir sig hrifinn af fegurð náttúru Íslands og jákvæðu viðmóti landsmanna.
Þakkir til Jóns Svavarssonar, TF3JON fyrir ljósmyndir.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-08-12 09:43:592024-08-12 10:08:00GÓÐIR GESTIR FRÁ KÍNA
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A og Georg Kulp, TF3GZ settu upp fyrr í sumar svokallaðan „HT“ hugbúnað í tengslum við 2 metra bandið.
Hugbúnaðurinn gefur félagsmönnum sem eru með búsetu þar sem ekki næst samband við VHF endurvarpa eða eru á ferðalagi og ná ekki sambandi við endurvarpa á 2 metrum – en hafa aðgang að netinu – aðgang í gegnum TF3RPB (QRG 145.650 MHz) endurvarpann í Bláfjöllum með því að sækja forrit á heimasíðu HT: ttps://play.google.com/store/apps/details?id=com.benshikj.ht&hl=en_US
Á heimasíðunni er í boði frítt „HT DWP“ „app“ til að tengjast Bláfjöllum yfir netið – t.d. í gegnum heimilistölvu eða GSM síma. Félagsmenn um allt land geta þannig fengið afnot af 2 metra bandinu. Notaður er UHF hlekkur í Bláfjöllum (QRG 439.975).
Eins og er fara fjarskiptin fram í gegnum búnað á heimili Georgs Kulp, TF3GZ í Reykjavík en fyrirhugað er að flytja búnaðurinn á endanlegt QTH innan tíðar. Það er félagssjóður ÍRA sem kostar verkefnið, samkvæmt samþykkt á fundi stjórnar ÍRA þan 19. október (2023).
Sérstakar þakkir til þeirra Ara og Georgs fyrir aðkomu þeirra að þessu mikilvæga verkefni.
Þakkir einnig til félagsmanna sem hafa lagt til búnað til verkefnisins: TF1EIN aflgjafa; TF3GZ Diamond loftnet og TF3JB Samsung GSM síma.
Vegna fjölda fyrirspurna eru þessar upplýsingar endurteknar, en þær voru fyrst settar á heimasíðu ÍRA og FB síður 31. maí s.l.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2024-08-11 12:51:242024-08-11 12:55:43AÐGANGUR AÐ 2 METRA BANDINU