ARRL 160 metra keppnin á morsi hefst föstudag 4. desember kl. 22:00 og lýkur sunnudag 6. desember kl. 16:00. Þetta er 42 klst. keppni þar sem markmiðið er að hafa sambönd við sem flestar stöðvar í Norður-Ameríku (W/VE).

Einvörðungu sambönd við stöðvar í Norður-Ameríku gilda til stiga og sem margfaldarar. Undantekningar eru stöðvar í Alaska (KL7), Í Karíbahafi (KP1-KP5) og í Kyrrahafi (KHØ-KH9) þ.á.m. á Hawaii (KH6).

G-leyfishafar geta sótt um heimild til notkunar tíðnisviðsins 1850-1900 kHz. Heimildin veitir jafnframt leyfi til að nota fullt afl á tilgreindu tíðnisviði í keppninni, 1kW. Leyfishafar skulu sækja sérstaklega um heimild til PFS á hrh@pfs.is eða á pfs@pfs.is Hafi verið fengin heimild af þessu tagi á árinu 2020 gildir hún einnig um þessa keppni, en ákjósanlegt er að senda tölvupóst til stofnunarinnar þess efnis að leyfishafi muni jafnframt nýta heimildina í þessari keppni frá sama QTH.

Keppnisreglur: http://www.arrl.org/160-meter

Kallmerkið TF3YOTA var virkjað í gær (1. desember) um gervihnöttinn ES‘hail-2 / Oscar 100. Elín Sigurðardóttir, TF2EQ ungmennafulltrúi ÍRA setti stöðina í loftið frá Skeljanesi.

Viðburðurinn gekk með ágætum og náðust sambönd við alls 55 stöðvar í 19 þjóðlöndum. Lengstu samböndin voru við radíóamatöra í Suður-Afríku (ZS6), Brasilíu (PS8), Indlandi (VU2), Ísrael (4Z4) og Asíu-Rússlandi (RA9). Einnig voru sambönd við stöðvar í Evrópu, þ.e. í Búlgaríu, Englandi, Evrópu-Rússlandi, Frakklandi, Hollandi, Írlandi, Lúxemborg, Noregi, Póllandi, Portúgal, Slóveníu, Sviss, Tékklandi og Þýskalandi.

YOTA verkefnið hófst árið 2018 og er starfrækt í desember ár hvert. Það er hugsað til að auka áhuga ungs fólks á amatör radíói. Verkefnið er á vegum IARU Svæðis 1. ÍRA hefur verið þátttakandi frá upphafi.

Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins aðstoðaði Elínu í gær og birti skemmtilegt myndskeið af fjarskiptunum á FB.

Elín Sigurðardóttir, TF2EQ er ungmennafulltrúi félagsins og YOTA verkefnisstjóri ásamt Árna Frey Rúnarssyni, TF8RN. Frekari virkni er áformuð frá TF3YOTA í mánuðinum, m.a. á 14 MHz.

Stjórn ÍRA.

Elín Sigurðardóttir TF2EQ virkjaði TF3YOTA í fjarskiptaaðstöðu ÍRA í Skeljanesi í gær, 1. desember. Fjarskiptin fóru fram um Es’hail-2 / Oscar-100 gervitunglið. Ljósmynd: TF3JB.

Stjórn ÍRA hefur ákveðið að félagsaðstaðan í Skeljanesi verði lokuð næsta fimmtudag, 3. desember vegna Covid-19 faraldursins.

Líkur aukast á að slakað verði á kröfum vegna faraldursins eftir að framlengingu reglugerðar heilbrigðisráðherra lýkur þann 9. desember. Gangi mál á besta veg, bindum við vonir við að geta opnað á ný 10. desember n.k.

Það er von okkar að þessari ákvörðun fylgi ríkur skilningur.

Stjórn ÍRA.

Stærsta morskeppni ársins, CQ WORLD WIDE DX keppnin fór fram helgina 28.-29. nóvember. Um er að ræða 48 klst. keppni á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metra böndunum.

A.m.k. 10 TF kallmerki voru á meðal þátttakenda: TF1AM, TF3AO, TF3DC, TF3EO, TF3JB, TF3SG, TF3VS, TF3W, TF3Y og TF8KY.

Fjölmargir keppnisriðlar voru í boði og mun betur koma í ljós á næstunni hvernig íslensku stöðvarnar röðuðust.

https://www.cqww.com/

KiwiSDR viðtækið í Bláfjöllum hefur verið úti síðan á miðvikudag (25.11.).

Þeir félagar, Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A og Georg Kulp TF3GZ gerðu ferð á fjallið í dag (29.11.) í erfiðum veðurskilyrðum til að kanna með stöðu mála. Í ljós kom, að kassinn sem hýsir viðtækið heldur ekki frá raka (þrátt fyrir búnað til þess). Ekki tókst því að gangsetja viðtækið vegna bleytu.

Þeir félagar telja að e.t.v. sé besta lausnin að flytja viðtækið annað, þar sem veðuraðstæður eru ekki jafn erfiðar til að tryggja hnökralausa starfsemi. Næstu daga verður lagst yfir verkefnið. Stefnt er að því að viðtækið verði komið í notkun á nýjum stað fyrir áramót.

Tvö önnur KiwiSDR viðtæki yfir netið eru virk, þ.e. á Bjargtöngum í Vesturbyggð og á Raufarhöfn. Vefslóðir:  Bjargtangar: http://bjarg.utvarp.com  og Raufarhöfn: http://raufarhofn.utvarp.com

Þakkir til þeirra félaga, TF1A og TF3GZ fyrir dugnaðinn.

Stjórn ÍRA.

Myndin er af TF1A við skápinn sem hýsir viðtækið. Ljósmynd: TF3GZ.

Vírinn (fyrir ofan) er 1 mm loftnetsþráður fyrir viðtækið. Ísingin mældist 8 cm þykk og veturinn rétt nýbyrjaður. Ljósmynd: TF3GZ.
Samið var um flutning upp á fjallið í þar til gerðu farartæki enda ófært að komast öðruvísi á toppinn sem er í 690 metra hæð. Ljósmynd: Georg Kulp TF3GZ.

Stjórn ÍRA samþykkti á fundi 24. þ.m., að fara þess á leit við prófnefnd félagsins að gengist verði fyrir námskeiði til amatörprófs á vori komanda.

Miðað er við að námskeiðið verði haldið í húsnæði Háskólans í Reykjavík líkt og verið hefur frá árinu 2013. Verði kórónaveiran COVID-19 hins vegar enn hamlandi á þeim tíma, verður þess farið á leit við nefndina, að undirbúið verði að bjóða námskeiðið yfir netið.

Fljótlega á nýju ári, þegar fyrir liggur um stöðu faraldursins verður tilkynnt á þessum vettvangi (með góðum fyrirvara) um dagsetningar. Til skoðunar er, að bjóða upp á sérstakt kynningarkvöld í Skeljanesi um fyrirkomulag námskeiðs, námsefni og próf hjá Póst- og fjarskiptastofnun.

Jón Björnsson, TF3PW er umsjónarmaður námskeiða félagsins. Senda má fyrirspurnir til hans á netfangið: ira [hjá] ira.is

Stjórn ÍRA.

Háskólinn í Reykjavík er staðsettur við Menntaveg í Öskjuhlíð skammt frá Reykjavíkurflugvelli. Ljósmynd: HR.

Jón Björnsson, TF3PW bauð til netspjalls 26. nóvember kl. 20:00. Notað var vefforritið Zoom sem sækja má frítt á netið.

Góð mæting var og skráðu sig alls níu félagsmenn á fundinn sem stóð í rúmlega 1 klst. og 45 mínútur. Eins og við var að búast var umfjöllunarefnið margvíslegt þótt engin sérstök dagskrá hafi verið sett upp fyrirfram, enda margir að prófa fjarfundabúnað í fyrsta skipti.

M.a. var rætt var um tækin; QRP stöðvarnar: SKY SDR frá Ariel-51, FDM-DUO frá Elad, CommRadio CTX-10 frá AeroStream og Augonaut VI frá Ten-Tec. Ennfremur um Yaesu FTdx101D, nýju FTdx10 stöðina og Icom IC-7100 og 7300. Þá var áhugaverð umræða um SDR viðtæki. Einnig var rætt um góð skilyrði s.l. tvo mánuði út frá sólarsveiflu 25 og um fjarskipti á VHF/UHF um endurvarpann í alþjóðlegu geimstöðinni. Menn skiptust einnig á vefslóðum á áhugaverðar heimasíður.

Bestu þakkir til Jóns Björnssonar, TF3PW fyrir að bjóða til þessa annars netspjalls, sem er í kjölfar „purfuhittings“ Ágústar H. Bjarnasonar, TF3OM fyrir réttri viku. Skemmtileg tilbreyting og vel heppnuð a.m.k. á meðan félagsaðstaðan í Skeljanesi er lokuð vegna COVID-19.

Stjórn ÍRA.

Ágúst H. Bjarnason, TF3OM opnaði og stjórnaði netspjalli fyrir félagsmenn s.l. fimmtudag sem gekk prýðilega vel.

Jón Björnsson, TF3PW ætlar að opna netspjall í kvöld kl. 20:00 fimmtudaginn 26. nóvember. Notað veður vefforritið Zoom sem má sækja frítt á netið. Þátttaka er möguleg frá tölvu eða GSM síma.

Engin sérstök dagskrá er fyrirhuguð, en hugmyndin er að menn geti prófað samskiptin ef áhugi er fyrir hendi. Sjá upplýsingar neðar.

Stjórn ÍRA.

Join Zoom Meeting
https://us05web.zoom.us/j/81985758676?pwd=cTlvRG91VUhQR1JlQzJsNXNaT1htZz09

Meeting ID: 819 8575 8676
Passcode: S0nL9m

Kallmerki með viðskeytið „YOTA“ verða áberandi á böndunum í desembermánuði. ÍRA hefur tekið þátt í viðburðinum frá upphafi (2018) með starfrækslu kallmerkisins TF3YOTA.

Elín Sigurðardóttir TF2EQ ungmennafulltrúi ÍRA, mun setja TF3YOTA í loftið frá Skeljanesi þegar 1. desember og byrjar með samböndum í gegnum OSCAR-100 gervihnöttinn. Hún verður jafnframt QRV á 20 metrum SSB í mánuðinum.

YOTA verkefnið Yongsters On The Air er starfrækt í desember ár hvert og er hugsað til að auka áhuga ungs fólks á amatör radíói.

Elín Sigurðardóttir TF2EQ er frumkvöðull að þátttöku okkar í verkefninu og er jafnframt YOTA verkefnisstjóri félagsins ásamt Árna Frey Rúnarssyni TF8RN.

Elín Sigurðardóttir TF2EQ starfrækti TF3YOTA í fyrra (2019) m.a. um Es’hail/Oscar 100 gervitunglið. Myndin var tekin þegar hún fór í loftið í Skeljanesi um gervitunglið 19. desember það ár. Hún hafði yfir 200 QSO. Mynd: TF3JB.  

Skilyrðin á HF byrjuðu að batna í byrjun október s.l. Aðeins er tæpt 1 ár síðan við vorum í botni 11 ára sólblettasveiflunnar, þannig að ekki var búist við batnandi skilyrðum þetta fljótt.

Síðustu daga féllu skilyrðin nokkuð en eru á uppleið. Í dag (23.11.) stendur Flux‘inn í 94 og sólblettafjöldi í 35.

Líkt og gjarnan gerist þegar sólin er þetta virk koma truflanir (segulstormar) vegna þess að meiri virkni sólar þýðir meiri norðurljós og óstöðugleika sbr. stöplaritið frá NOAA fyrir K-gildið vikuna 17.-23. nóvember.

Skilyrðaspáin fyrir Flux‘inn stendur í 94 fram á laugar-dag en fer svo lækkandi (í 85) m.v. 7. desember.

27 daga spá NOAA (23.11.-11-12.2020): https://www.swpc.noaa.gov/products/27-day-outlook-107-cm-radio-flux-and-geomagnetic-indices