Endurnýjun tímabundinna sérheimilda
Athygli leyfishafa er vakin á því að sækja þarf sérstaklega um heimild(ir) til notkunar á eftirtöldum tíðnisviðum sem eru til tímabundinnar úthlutunar, ýmist á árinu 2013 eða á árunum 2013-2014. Leyfishöfum sem hafa heimildir Póst- og fjarskiptastofnunar til að vinna í einhverju eða öllum þessara tíðnisviða (sem renna út þann 31. desemeber n.k.) er góðfúslega bent á, að PFS fer þess á leit að leyfishafar sendi inn nýjar umsóknir fyrir þessi tíðnisvið fyrir ofangreind tímabil. Umrædd tíðnisvið eru:
- 1850-1900 kHz (á 160 metrum) í tilgreindum alþjóðlegum keppnum. Heimild dags. 9.11.12 gildir fyrir almanaksárið 2013.
- 5260-5410 kHz (á 60 metrum). Heimild dags. 13.11.12 gildir fyrir almanaksárin 2013 og 2014.
- 70.000-70.200 MHz (á 4 metrum). Heimild dags. 14.11.12 gildir fyrir almanaksárin 2013 og 2014.
Bent er á, að senda má umsóknir í tölvupósti á póstföngin hrh(hjá)pfs.is eða pfs(hjá)pfs.is Sækja má um heimild til notkunar á einu eða á öllum ofangreindum tíðnisviðum í sama tölvupósti. Leyfishöfum er jafnframt bent á, að kynna sér skilyrði stofnunarinnar fyrir leyfisveitingum; sbr. tilgreindar vefslóðir neðar á síðunni.
F.h. stjórnar Í.R.A.,
Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!