Góður gestur og loftnetatilraunir í Skeljanesi
Fimmtudagskvöldið 5. júlí kom góður gestur í heimsókn í Skeljanes frá Finnlandi, OH6SO, og samhliða fóru fram utanhúss, loftnetatilraunir á 40 og 80 metrum á vegum TF3ARI. Sjá frásögn og myndir hér á eftir.
Leila Hämäläinen, OH6SO, heimsótti félagsaðstöðuna í Skeljanesi 5. júlí. Leila er býr í bænum Puuppola í Finnlandi, sem er um 250 km fyrir utan Helsinki og millilenti á Íslandi á heimleið frá Kanada. Maður hennar og dóttir eru einnig leyfishafar, Jari OH6PX og Heidi OH6SX. Leila er félagsmaður í SYLRA (Scandinavian YL Radio Amateurs) en sagðist ekki vera virk í samtökunum nú um stundir. Hún var mjög hrifin af aðstöðu Í.R.A í Skeljanesi og bað fyrir góðar kveðjur til íslenskra radíóamatöra.
__________
Fyrr um kvöldið kom Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI, með ferðaturn sinn og reisti (“blés upp”) á grasflötinni fyrir utan bílastæðið í Skeljanesi. Turninn er af afar óvanalegri gerð, kemst fyrir í ferðatösku og er síðan blásinn upp á ótrúlega fáum mínútum (með sérstökum blásara). Turninn, sem er keyptur frá Bandaríkjunum, nær 12 metra hæð. Festingar eru fyrir kóaxkapal með “frönskum rennilásum” upp eftir turninum auk þess sem setja má fíberrör efst. Það gerði Ari og festi efst í það svokallað “Double Bazooka” loftnet fyrir 40m og 80m böndin. Sjá myndir hér fyrir neðan.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!