Heimboð til félagsmanna Í.R.A. á miðvikudag
Flugmódelmenn bjóða félagsmönnum Í.R.A. á Hamranesflugvöll næstkomandi miðvikudagskvöld, þann 15. maí. Veðurspáin lítur nokkuð vel út, en við erum auðvitað háðir veðri í módelflugi. Miðvikudagar eru klúbbkvöld á flugvelli Þyts og þar erum við mættir um kvöldmatarleytið.
Hamranesflugvöllur er örskammt frá Hvaleyrarvatni fyrir ofan Hafnarfjörð. Tvær leiðir liggja þangað:
- Aka í átt að Kaldársseli og beygja til hægri inn að Hvaleyrarvatni. Aka framhjá vatninu og síðan um 500 metra.
- Aka Krísuvíkurveginn og beygja til vinstri skömmu eftir að komið er fram hjá gulu spennistöð Landsvirkjunar. Aka um 1000 metra í átt að Hvaleyrarvatni.
Umfjöllun hér: http://frettavefur.net/Forum/viewforum.php?id=2
Með góðri kveðju,
Ágúst H. Bjarnason, TF3OM.
(Ljósmyndir: TF3OM).
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!