KIWISDR VIÐTÆKIÐ AFTUR Í BLÁFJÖLL
KiwiSDR viðtækið sem fært var úr Skeljanesi í apríl s.l. og hefur verið vistað hjá Erlingi Guðnasyni TF3E síðan, var flutt í morgun, 30. júlí, aftur upp í Bláfjöll. Vefslóð: http://blafjoll.utvarp.com eða http://bla.utvarp.com
Viðtækið er nú staðsett inni í upphituðu húsi og notar 70 metra langt vírloftnet fyrir amatörböndin frá 160 til 10 metra. Unun frá Ultimax 100 er notuð til að taka sýndarviðnám niður í fæðipunkti.
Það voru þeir Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A og Georg Kulp TF3GZ gerðu ferð á fjallið í dag og gengu frá uppsetningu. Þeir félagar telja, að núverandi uppsetning eigi að tryggja hnökralausa starfsemi viðtækisins á fjallinu.
Tvö önnur KiwiSDR viðtæki yfir netið eru virk, þ.e. á Bjargtöngum í Vesturbyggð og á Raufarhöfn. Vefslóðir:
Bjargtangar: http://bjarg.utvarp.com og
Raufarhöfn: http://raufarhofn.utvarp.com
Þakkir til Ara Þórólfs Jóhannessonar, TF1A og Georg Kulp, TF3GZ fyrir verðmætt framlag. Hér um að ræða mikilvæga viðbót fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir í þessum tíðnisviðum, auk hlustara og allra sem hafa áhuga á útbreiðslu radíóbylgna. Ennfremur þakkir til Erlings Guðnasonar, TF3E fyrir að hlaupa undir bagga með vistun viðtækisins frá því í apríl s.l.
Stjórn ÍRA.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!