NÁMSKEIÐ Í SÉRFLOKKI
Hraðnámskeið var í boði á vetrardagskrá ÍRA sunnudaginn 1. mars þegar Yngvi Harðarson, TF3Y, mætti í Skeljanes með upprifjunarnámskeið á Win-Test keppnisforritinu.
Yngvi, sem hefur mikla reynslu af notkun Win-Test, fór vel yfir uppsetningu, notkun og viðhald forritsins. Hann sýndi uppsetninguna (skref fyrir skref), uppfærslu gagna, tengingarmöguleika og stillingar (fyrir mismunandi keppnir), auk þess sem nytsamar ábendingar um notkun fylgdu.
Hann fór vel yfir getu og möguleika forritsins, bæði í „Run“ og „S&P“ ham. Og fjallaði um mismunandi eiginleika í CW, SSB og RTTY keppnum, þ.á.m. stillingu tengiviðmóts, wtDX Telnet (hliðarforritisins) og uppsetningu á „Voice keyer“, RIGblaster og MicroHam búnaði. Þá kynnti hann nytsemi og möguleika mismunandi glugga á skjánum, út frá eigin reynslu.
Loks sýndi hann samhæfingu stöðvar og forrits með því að tengja eigin stöð á staðnum, þ.e. Elecraft KX-2. Glærur verða settar inn á heimasíðu, en þar til má smella á hlekkinn: http://bit.ly/2PD61mZ
Alls mættu 12 félagar og 1 gestur í Skeljanes þennan veðurmilda og ágæta vetrarmorgun í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA þakkar Yngva fyrir vandað, nytsamt og vel undirbúið námskeið.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!