,

NEYÐARFJARSKIPTI Á 40 og 20 METRUM

ÍRA hafa borist upplýsingar um tíðnir á 40 og 20 metrum sem hafa verið teknar til notkunar fyrir neyðarfjarskipti vegna fellibylsins Oscar sem gengur nú yfir Kúbu og stefnir m.a. á Bahamaeyjar, en  radíóamatörar annast neyðarfjarskipti á þessum svæðum.

Tíðnirnar eru: 7.110 MHz, 7.120 MHz og 14.325 MHz.

Þess er farið á leit að íslenskir radíóamatörar taki tillit til þessara forgangsfjarskipta, a.m.k. næstu daga.

Stjórn ÍRA.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

3 × 4 =