NÝR BÚNAÐUR FYRIR OSCAR 100 PRÓFAÐUR
Ari Þórólfur Jóhannesson TF1A, VHF stjóri ÍRA, vann í dag (20. ágúst) við uppsetningu og tengingu búnaðar TF3IRA innanhúss fyrir Es’Hail-2/P4A / Oscar 100 gervitunglið í Skeljanesi.
Þótt frágangi sé ekki lokið, var haft fyrsta QSO‘ið frá TF3IRA með nýjum búnaði félagsins. Það var við G8DVR í Manchester á Englandi, kl. 20:40. Merki voru R/S 5-9 báðar leiðir.
Notaður var nýi transverter‘inn frá PE1CMO, sem bæði er fyrir „up“ og „down link“ á 70 cm, auk annars búnaðar. Hann er tengdur beint inn á Kenwood TS-2000 stöð félagsins. Eitt af því skemmtilega við TS-2000 stöðina er, að aflestur á stjórnborði sýnir vinnutíðnina á 10 GHz beint.
Stefnt er að því að ljúka vinnu við verkefnið á næstu dögum.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!