S55ZMS ER NÝR RADÍÓVITI Á 40 MHZ
Nýr radíóviti, S55ZMS, er virkur á 40.570 MHz á 8 metra bandi. Hann sendir út á morsi og PI4 stafrænni mótun.
Vitinn varð virkur 9. febrúar 2021. Sendiafl er 7W og loftnet er láréttur tvípóll. Loftnet vitans er staðsett á einum af loftnetsturnum keppnisstöðvarinnar S53M í norðausturhluta Slóveníu.
Þetta er fjórði radíóvitinn á 8 metrum, sbr. grein Guðmundar Sigurðssonar, TF3GZ um 40 MHz bandið sem birtist í 1. tbl. CQ TF 2021, bls. 41. http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/01/cqtf_35arg_2021_01tbl.pdf
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!