OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 16. SEPTEMBER
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 16. september fyrir félagsmenn og gesti frá kl. 20:00.
Fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Innkomin QSL kort hafa verið flokkuð í hólf félagsmanna. Kaffi og meðlæti verður í fundarsal. Nýjustu tímaritin liggja frammi.
Vegna Covid-19 er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
.
.
.
Myndin er af PC borðum sem TF3FG færði okkur síðasta fimmtudag. M.a. 7400 rásir í sökklum, Eprom, OPmagnarar og fleira áhugavert.
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!