http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-09-17 20:09:132019-09-17 20:11:33SAC CW keppnin er um helgina 21.-22. sept.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-09-17 09:36:452019-09-17 09:40:25OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 19. SEPTEMBER
Í
samræmi við starfsáætlun stjórnar og að höfðu samráði við Prófnefnd og
Umsjónarmann námskeiða, hefur verið ákveðið að kanna áhuga á þátttöku í
námskeiði til amatörprófs.
Fyrirhugað er að námskeiðið hefjist 14. október n.k. og ljúki með prófi Póst- og fjarskiptastofnunar í desember. Kennt verður á kvöldin tvo daga í viku í húsnæði Háskólans í Reykjavík. Námskeiðið er öllum opið og ekki eru gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá nafn sitt og tölvupóstfang á “ira hjá ira.is”. Skráningu fylgir engin skuldbinding, en veitir félaginu upplýsingar um fyrirhugaðan fjölda þátttakenda.
Fyrirspurnum
má beina á sama tölvupóstfang.
Skráning
er opin til 11. október n.k. Félagið setur þann fyrirvara um námskeiðshald, að lágmarksþátttaka
fáist.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-09-08 12:48:252019-09-08 13:02:39OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 12. SEPTEMBER
Sveinbjörn Jónsson, TF8V, hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Bragi Reynisson, TF3BR, hefur sett upplýsingar inn á Facebook þess efnis, að Sveinbjörn hafi látist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir stutt veikindi 6. september. Hann var á 55. aldursári, leyfishafi nr. 206.
Um leið og við minnumst Sveinbjörns með þökkum og virðingu
færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-09-06 11:26:242019-09-06 11:28:47SVEINBJÖRN JÓNSSON TF8V ER LÁTINN
Efnt var til kynningar- og umræðufundar í Skeljanesi 5. september
í tilefni bráðabirgðaákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 17/2019.
Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA, formaður EMC nefndar félagsins hafði framsögu og fór yfir ákvörðunina, sem varðar kvörtun vegna truflana frá radíóamatör á sjónvarpsmóttöku og gæðum nettengingar hjá nágranna hans.
Við mælingar tæknideildar PFS á vettvangi var truflunin
staðfest. Ekki kemur fram að búnaði leyfishafa sé áfátt, en ýmislegt fannst sem
betur mátti fara hjá nágrannanum, sem m.a. varðar VDSL fastlínusamband
(tengingar í götuskáp), aðrar tengingar og tækjabúnað hans.
Málið er ekki einfalt, því sem dæmi kemur m.a. fram, að radíóamatörinn var beðin um að vera ekki í loftinu í eina viku (sem hann samþykkti), en á þeim tíma komu áfram fram truflanir hjá nágrannanum.
Stjórn ÍRA mun ráðfæra sig við EMC nefnd félagsins og stefnt er að því að birta umfjöllun um málið í heild í næsta hefti CQ TF sem kemur út 29. september n.k.
Alls mættu 30 félagsmenn og 1 gestur í Skeljanes þetta fróðlega fimmtudagskvöld.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-09-06 10:37:132019-09-06 11:07:15ÁKVÖRÐUN PFS NR. 17/2019 VAR KYNNT
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-09-03 02:18:592019-09-03 13:13:21ÁKVÖRÐUN PFS TIL UMRÆÐU 5. SEPTEMBER
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-09-01 19:09:312019-09-01 19:14:14NÝTT CQ TF KEMUR ÚT 29. SEPTEMBER
ÍRA hefur borist að gjöf tveir vandaðir stólar til notkunar í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Það var Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, sem færði félaginu þessa nytsömu gjöf fimmtudaginn 29. ágúst. Stólarnir koma í góðar þarfir og hefur verið fundinn staður í fundarsal á 1. hæð.
Sama dag komu Thomas W. Brooks, KE1R og XYL Rosemarie Bagioni, N1DSP í heimsókn í Skeljanes og færðu félaginu að gjöf bækurnar Guide to HF Data on FT8 & PSK using WSJT-X and Fldigi eftir Rob Walker, G3ZJQ og Energy Choices for the Radio Amateur eftir Bob Bruninga, WB4APR. Báðar eru nýjar á markaði og komu fyrst út á þessu ári, 2019. Þá færðu þau okkur ennfremur nýjustu útgáfurnar af QEX og NCJ tímaritunum sem eru gefin út af ARRL. Gjafirnar verða merktar og munu liggja frammi í Skeljanesi.
Stjórn ÍRA þakkar gefendunum góðar og nytsamar gjafir.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-08-31 20:46:292019-08-31 21:10:42Gjafir til félagsins
Fundi í undirbúningsnefnd ITU vegna tíðniákvörðunarráðstefna ITU 2019 og 2023 (WRC) lauk í Ankara í Tyrklandi í gær, 29. ágúst.
Meðal mála sem varða tíðnisvið radíóamatöra, er léttir að skýra frá því að tillögu franskra stjórnvalda um hugsanlegan aðgang flugþjónustunnar að 144-146 MHz bandinu (mál vegna WRC 2023), var felld á fundinum.
Í annan stað verður tillaga um úthlutun 50-52 MHz bandsins til radíóamatöra tekin á dagskrá á ráðstefnunni 2019, á víkjandi grundvelli, með neðanmálsgrein um lönd sem munu heimila sínum leyfishöfum að fá ríkjandi aðild að tíðnisviðinu 50-50.5 MHz.
ÍRA þakkar Póst- og fjarskiptastofnun fyrir stuðninginn við ofangreind mál (og fleiri) á þessum vettvangi. Síðast, en ekki síst, ber að þakka fulltrúum radíóamatörþjónustunnar, IARU, fyrir góðan undirbúning og skeleggan málflutning.
Nánar verður fjallað um þessi mál (og fleiri) í næsta hefti CQ TF (4. tbl. 2019) sem kemur út sunnudaginn 29. september n.k.
Góð mæting var í félagsaðstöðuna í Skeljanesi 29. ágúst.
Heiðursgestir kvöldsins voru Thomas W. Brooks, KE1R og XYL Rosemarie Bagioni,
N1DSP frá Connecticut í Bandaríkjunum. Ennfremur kom Elín Sigurðardóttir,
TF2EQ, á staðinn en hún er í stuttri heimsókn á Íslandi um þessar mundir.
Þau hjón búa steinsnar frá aðalstöðvum ARRL í Connecticut og
starfar Tom þar m.a. sem sjálfboðaliði og Rosemarie er virk í neyðarfjarskiptum
radíóamatöra þar um slóðir. Þau voru afar ánægð með ferðina til Íslands og áttu
vart nógu sterk orð um fegurð náttúru landsins.
Þau voru jafnframt mjög ánægð með að hitta svo marga
íslenska leyfishafa, en 24 félagsmenn mættu í Skeljanes þetta síðasta kvöld
ágústmánaðar.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-08-30 10:27:092019-08-30 10:32:58Góð mæting og góðir gestir í Skeljanesi
Baldvin Þórarinsson, TF3-Ø33, mætti í Skeljanes upp úr hádeginu í dag (29. ágúst). Á dagskrá var að hreinsa til og gera snyrtilegt við húsið sjálft og við innganginn. Verkið gekk hratt og fljótt fyrir sig og er nú orðið boðlegt fyrir félagsmenn og gesti að heimsækja staðinn.
Leigumarkaður BYKO í Breidd sá okkur fyrir Honda sláttuorfi
með öflugum bensínmótor, en Baldi kom færandi hendi með stunguskóflu og
rakstursáhöld heiman að frá sér.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-08-29 18:29:002019-08-30 09:05:56Snyrt til við innganginn í Skeljanesi
SAC CW keppnin er um helgina 21.-22. sept.
Morshluti Scandinavian Activity keppninnar (SAC) verður haldinn um helgina, 21. – 22. september.
Þetta er 24 klst. keppni sem hefst á laugardag á hádegi og lýkur á sunnudag á hádegi.
Norðurlöndin keppa á móti heiminum og innbyrðis. Sjá reglur í viðhengi. Mikilvægt er að sem flestar TF-stöðvar taki þátt!
Stjórn ÍRA.
http://www.sactest.net/blog/
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 19. SEPTEMBER
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 19. september.
Nýjustu tímaritin, góður félagsskapur, kaffi og meðlæti.
Stjórn ÍRA.
Námskeið ÍRA til amatörprófs
Í samræmi við starfsáætlun stjórnar og að höfðu samráði við Prófnefnd og Umsjónarmann námskeiða, hefur verið ákveðið að kanna áhuga á þátttöku í námskeiði til amatörprófs.
Fyrirhugað er að námskeiðið hefjist 14. október n.k. og ljúki með prófi Póst- og fjarskiptastofnunar í desember. Kennt verður á kvöldin tvo daga í viku í húsnæði Háskólans í Reykjavík. Námskeiðið er öllum opið og ekki eru gerðar kröfur um sérstaka menntun eða undirbúning.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá nafn sitt og tölvupóstfang á “ira hjá ira.is”. Skráningu fylgir engin skuldbinding, en veitir félaginu upplýsingar um fyrirhugaðan fjölda þátttakenda.
Fyrirspurnum má beina á sama tölvupóstfang.
Skráning er opin til 11. október n.k. Félagið setur þann fyrirvara um námskeiðshald, að lágmarksþátttaka fáist.
Stjórn ÍRA.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 12. SEPTEMBER
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 12. september.
Nýjustu tímaritin, góður félagsskapur, kaffi og meðlæti.
Stjórn ÍRA.
SVEINBJÖRN JÓNSSON TF8V ER LÁTINN
Sveinbjörn Jónsson, TF8V, hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað.
Bragi Reynisson, TF3BR, hefur sett upplýsingar inn á Facebook þess efnis, að Sveinbjörn hafi látist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir stutt veikindi 6. september. Hann var á 55. aldursári, leyfishafi nr. 206.
Um leið og við minnumst Sveinbjörns með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar,
Jónas Bjarnason, TF3JB
formaður
ÁKVÖRÐUN PFS NR. 17/2019 VAR KYNNT
Efnt var til kynningar- og umræðufundar í Skeljanesi 5. september í tilefni bráðabirgðaákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 17/2019.
Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA, formaður EMC nefndar félagsins hafði framsögu og fór yfir ákvörðunina, sem varðar kvörtun vegna truflana frá radíóamatör á sjónvarpsmóttöku og gæðum nettengingar hjá nágranna hans.
Við mælingar tæknideildar PFS á vettvangi var truflunin staðfest. Ekki kemur fram að búnaði leyfishafa sé áfátt, en ýmislegt fannst sem betur mátti fara hjá nágrannanum, sem m.a. varðar VDSL fastlínusamband (tengingar í götuskáp), aðrar tengingar og tækjabúnað hans.
Málið er ekki einfalt, því sem dæmi kemur m.a. fram, að radíóamatörinn var beðin um að vera ekki í loftinu í eina viku (sem hann samþykkti), en á þeim tíma komu áfram fram truflanir hjá nágrannanum.
Stjórn ÍRA mun ráðfæra sig við EMC nefnd félagsins og stefnt er að því að birta umfjöllun um málið í heild í næsta hefti CQ TF sem kemur út 29. september n.k.
Alls mættu 30 félagsmenn og 1 gestur í Skeljanes þetta fróðlega fimmtudagskvöld.
ÁKVÖRÐUN PFS TIL UMRÆÐU 5. SEPTEMBER
Skýrt var frá bráðabirgðaákvörðun PFS nr. 17/2019 er varðar fjarskiptatruflanir af völdum talstöðvarnotkunar á heimasíðu ÍRA þann 23. ágúst s.l.
Stjórn ÍRA hefur ákveðið, að höfðu samráði við EMC nefnd félagsins, að málið verið til umræðu í Skeljanesi, fimmtudaginn 5. september n.k., kl. 20:30.
Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA, formaður EMC nefndar, mun hafa framsögu.
Kaffiveitingar.
Stjórn ÍRA.
NÝTT CQ TF KEMUR ÚT 29. SEPTEMBER
Nú styttist í septemberhefti CQ TF.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið – frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr.
Skilafrestur efnis er til 14. september n.k. Netfang ritstjóra: tf3sb@ox.is
73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
–
Gjafir til félagsins
ÍRA hefur borist að gjöf tveir vandaðir stólar til notkunar í félagsaðstöðunni í Skeljanesi. Það var Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, sem færði félaginu þessa nytsömu gjöf fimmtudaginn 29. ágúst. Stólarnir koma í góðar þarfir og hefur verið fundinn staður í fundarsal á 1. hæð.
Sama dag komu Thomas W. Brooks, KE1R og XYL Rosemarie Bagioni, N1DSP í heimsókn í Skeljanes og færðu félaginu að gjöf bækurnar Guide to HF Data on FT8 & PSK using WSJT-X and Fldigi eftir Rob Walker, G3ZJQ og Energy Choices for the Radio Amateur eftir Bob Bruninga, WB4APR. Báðar eru nýjar á markaði og komu fyrst út á þessu ári, 2019. Þá færðu þau okkur ennfremur nýjustu útgáfurnar af QEX og NCJ tímaritunum sem eru gefin út af ARRL. Gjafirnar verða merktar og munu liggja frammi í Skeljanesi.
Stjórn ÍRA þakkar gefendunum góðar og nytsamar gjafir.
Góðar fréttir fyrir radíóamatöra
Fundi í undirbúningsnefnd ITU vegna tíðniákvörðunarráðstefna ITU 2019 og 2023 (WRC) lauk í Ankara í Tyrklandi í gær, 29. ágúst.
Meðal mála sem varða tíðnisvið radíóamatöra, er léttir að skýra frá því að tillögu franskra stjórnvalda um hugsanlegan aðgang flugþjónustunnar að 144-146 MHz bandinu (mál vegna WRC 2023), var felld á fundinum.
Í annan stað verður tillaga um úthlutun 50-52 MHz bandsins til radíóamatöra tekin á dagskrá á ráðstefnunni 2019, á víkjandi grundvelli, með neðanmálsgrein um lönd sem munu heimila sínum leyfishöfum að fá ríkjandi aðild að tíðnisviðinu 50-50.5 MHz.
ÍRA þakkar Póst- og fjarskiptastofnun fyrir stuðninginn við ofangreind mál (og fleiri) á þessum vettvangi. Síðast, en ekki síst, ber að þakka fulltrúum radíóamatörþjónustunnar, IARU, fyrir góðan undirbúning og skeleggan málflutning.
Nánar verður fjallað um þessi mál (og fleiri) í næsta hefti CQ TF (4. tbl. 2019) sem kemur út sunnudaginn 29. september n.k.
Stjórn ÍRA.
Góð mæting og góðir gestir í Skeljanesi
Góð mæting var í félagsaðstöðuna í Skeljanesi 29. ágúst. Heiðursgestir kvöldsins voru Thomas W. Brooks, KE1R og XYL Rosemarie Bagioni, N1DSP frá Connecticut í Bandaríkjunum. Ennfremur kom Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, á staðinn en hún er í stuttri heimsókn á Íslandi um þessar mundir.
Þau hjón búa steinsnar frá aðalstöðvum ARRL í Connecticut og starfar Tom þar m.a. sem sjálfboðaliði og Rosemarie er virk í neyðarfjarskiptum radíóamatöra þar um slóðir. Þau voru afar ánægð með ferðina til Íslands og áttu vart nógu sterk orð um fegurð náttúru landsins.
Þau voru jafnframt mjög ánægð með að hitta svo marga íslenska leyfishafa, en 24 félagsmenn mættu í Skeljanes þetta síðasta kvöld ágústmánaðar.
Snyrt til við innganginn í Skeljanesi
Baldvin Þórarinsson, TF3-Ø33, mætti í Skeljanes upp úr hádeginu í dag (29. ágúst). Á dagskrá var að hreinsa til og gera snyrtilegt við húsið sjálft og við innganginn. Verkið gekk hratt og fljótt fyrir sig og er nú orðið boðlegt fyrir félagsmenn og gesti að heimsækja staðinn.
Leigumarkaður BYKO í Breidd sá okkur fyrir Honda sláttuorfi með öflugum bensínmótor, en Baldi kom færandi hendi með stunguskóflu og rakstursáhöld heiman að frá sér.
Bestu þakkir til Baldvins fyrir vel unnið verk.